fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Kynningardeild DV
Miðvikudaginn 14. febrúar 2024 11:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýr Peugeot E-208 verður frumsýndur hjá Brimborg, Bíldshöfða 8 í Reykjavík dagana 15.– 24. febrúar.

Peugeot E-208 er ein táknmynda stefnu Peugeot í rafbílum og nú er hann kominn á markað í nýrri mynd. Búið er að fríska upp á hönnunina með nýju útliti og gera hann enn ómótstæðilegri, kraftmeiri og með aukinni drægni sem er allt að 409 km skv. WLTP mælingu.

Nýr Peugeot E-208 býður upp á:

· Enn meira aðdráttarafl með ómótstæðilegu sportlegu útliti, og einkennandi skrautlýsingu að framan sem er tákn fyrir klær ljónsins og gefur bílnum sterkan svip og persónuleika ásamt nýju Peugeot merki sem endurspeglar hágæði bílsins.

· Meiri hughrif, með stafrænu og tæknivæddara PEUGEOT i-Cockpit® innrarými sem eykur akstursánægju.

· Hágæði með rafbílagen í kjarna hönnunarinnar er nýr E-208 með allt að 409 km drægni skv. WLTP og nýjustu kynslóð PEUGEOT upplýsinga- og afþreyingarkerfis.

Peugeot E-208 er arfleifð níu kynslóða Peugeot bíla sem hefur notið mikillar velgengni síðan hann kom á markað í lok árs 2019. Yfir milljón eintök hafa verið framleidd og árin 2021 og 2022 var Peugeot 208 mest seldi bíllinn í Evrópu. Þessi árangur er að miklu leyti að þakka velgengni rafbílsins E-208 sem var mest seldi rafbíll í Evrópu í sínum stærðarflokki.

Nýi rafbíllinn mun nú fást í þremur útfærslum með nýjum 115kW/156 hestafla mótor og 51kWh rafhlöðu sem gefur allt að 409 km drægni skv. WLTP mælingu.

Ómótstæðilegt aðdráttarafl: sportleg hönnun sem grípur augað

Uppfærsla á bíl sem hefur náð slíkum árangri eins og Peugeot E-208 hefur gert er ekki einfalt verkefni. Áskorun hönnunarteymis Peugeot var að vernda sérkenni bílsins og hið ómótstæðilega aðdráttarafl sem hefur gert bílinn svo vel heppnaðan en gera hann að sama skapi enn nútímalegri. Þó nokkrir hlutir tóku breytingum í þessari nýju uppfærslu.

· Nýtt útlit

Nýr Peugeot E-208 skartar nýjum, sterklegum og áberandi framenda sem endurspeglar nýtt tímabil í hönnun Peugeot bíla, með nýju myndmerki bílamerkisins í forgrunni. Einkennandi skrautlýsing að framan táknar klær ljónsins og gefur bílnum sterkan svip og persónuleika. Löngu lóðréttu ljósin eru áberandi hluti af útliti bílsins og gera hann sportlegan og breiðari að framan í útliti.

Hin táknrænu afturljós sem samanstóðu af þremur lóðréttum röndum „rauðu ljónsklærnar“ hafa verið endurskilgreind í nýrri hönnun. Á nýju útgáfunni eru ljósin lóðrétt og samanstanda af þremur glæsilegum ljósdíóðalínum sem teygja svarta röndina utan um skottlokið og gefa bílnum töfrandi útlit og meiri breidd.

· Úthugsuð hönnun

Nýjar felgur E-208 skáka hinu hefðbundna og eru samtímis hannaðar til að bæta drægni og orkunotkun bílsins og gefa sportlegt og spennandi yfirbragð. Allure útgáfan kemur með nýjum 16” álfelgum en GT útgáfan 17”. Báðar með glæsilega nýja Peugeot merkinu í miðju felgunnar.

· Aukin þægindi

Sérformuð sæti úr hágæðaefnum, mjúk örtrefjaefni, hiti í sætum og nudd í bílstjórasæti eru meðal valkosta Peugeot E-208.

Hughrif: Aukin akstursánægja og lipurð með næstu kynslóðar PEUGEOT i-Cockpit®

Hinn táknræni i-Cockpit® var kynntur til leiks í fyrstu kynslóðinni af Peugeot 208. Í dag er hann orðinn langtum tæknilegri, tengdari og notendavænni og veitir hina einstöku akstursupplifun og lipurð sem Peugeot bílarnir eru þekktir fyrir.

· Ný hönnun á stafrænu mælaborði

10” stafræna þrívíddarmælaborðið hefur nú fengið nýja hönnun í Peugeot E-208 GT. Mælaborðið er stillanlegt og þægilega staðsett í augnhæð ökumanns.

· Netta, þægilega stýrið

Netta og þægilega stýrið sem er hluti af einstakri akstursánægju Peugeot bíla helst óbreytt að lögun og hýsir helstu stjórntæki fyrir margmiðlunarkerfið, t.d. hljóð og hljóðstyrk, síma og raddstýringar og skapar þannig enn betra notendaviðmót.

Hágæði: Með rafvæðingu í genunum og stafrænar tengingar

Nýr E-208 stígur stórt skref fram á við og með rafbílagen í kjarna hönnunarinnar býður hann upp á allt að 409 km drægni skv. WLTP og stafrænar tengingar með MyPeugeot appi í símanum.

· Enn meiri drægni. Nú allt að 409 km.

Nýi E-208 býður upp á 115kW/156bhp rafmótor, ásamt 51kWh rafhlöðu, sem gefur drægni upp á allt að 409 km skv. WTLP mælingum.

Tvær gerðir af innbyggðum AC hleðslustýringum eru fáanlegar í Peugeot E-208 sem henta fyrir alla notkun og hleðslulausnir. 7,4 kW AC hleðslustýring er staðalbúnaður og 11 kW þriggja fasa AC hleðslustýring er fáanleg sem aukabúnaður.

Áætlaður hleðslutími frá 20% í 80% drægni er u.þ.b. 30 mínútur í 100 kW hraðhleðslu. 4 klst og 25 mínútur í heimahleðslu með 7,4 kW AC hleðslustýringu og 2 klst og 55 mínútur með 11 kW AC hleðslustýringu.

10“ margmiðlunarskjár og gott afþreyingarkerfi

Í Peugeot E-208 er 10“margmiðlunarskjár og Peugeot i-Connect afþreyingarkerfi. Auðvelt er að stilla og aðlaga kerfið sem er eins einfalt í notkun og viðmót snjallsíma. Þægilegar flýtileiðir í stýri og á píanótökkum undir skjánum auðvelda notkunina enn frekar. Snjallsímar geta tengst afþreyingarkerfi ökutækisins þráðlaust með Apple CarPlay og Android Auto.

· Fleiri USB tengi og sneggri farsímahleðsla

Þrjú USB tengi koma nú sem staðalbúnaður í Allure og GT útfærslunum. Tvö frammí og eitt aftur í bílnum. Einnig er nú í boði 15W þráðlaus símahleðsla sem er þrefalt hraðari en áður.

· Hásnerpu myndavélar fyrir bílastæðaaðstoð

Nýjar háskerpu myndavélar að framan og aftan ásamt vali um blindpunktsaðvörun veita 360° yfirsýn af umhverfi bílsins og gera það auðvelt að leggja í stæði. Fáanlegt í GT útfærslu

· Nýjasta tækni í ökumannsaðstoð

Peugeot E-208 er fáanlegur með nýjustu kynslóð af aðstoðarkerfum sem auka öryggi og ánægju í akstri. Sem dæmi um fjölbreytta ökumannsaðstoð sem er fáanleg í E-208 má nefna: Hraðastillir „Cruise control“, nálægðarskynjara og blindpunktsaðvörun, LED aðalljós með sjálfvirkri hæðarstillingu, aðlögunarhæfan hraðastilli, umferðaskiltalesara, veglínuskynjara með hjálparstýringu, ökumannsvaka, öryggishemlun og áðurnefndar fram- og bakkmyndavélar.

· Stafrænar tengingar

MyPeugeot® snjallsímaforritið eykur þægindi Peugeot E-208 og býður meðal annars upp á fjarstýrða forhitun og hleðslustýringu þar sem hægt er að tímastilla, kveikja og slökkva á hleðslu.

7 ára ábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu

Gæði Peugeot bíla eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðunni. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðanda.

Sérkjör í hraðhleðslu til viðskiptavina Peugeot á Íslandi og Brimborg bjóða viðskiptavinum sínum sérlega hagstæð kjör á hleðslustöðvum og uppsetningu þeirra ásamt sérkjörum í hraðhleðsluneti Brimborgar Bílorku. Söluráðgjafar Peugeot veita allar upplýsingar um kjör til viðskiptavina.

Nýr Peugeot E-208 verður frumsýndur 15. – 24 febrúar í sýningarsal Peugeot við Bíldshöfða 8 í Reykjavík. Sýningar- og reynsluakstursbílar verða á staðnum og eins verður í boði ráðgjöf varðandi hleðslu rafbíla og uppsetningu hleðslustöð

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
16.11.2023

Það geta allir fundið eitthvað fyrir jólaundirbúninginn á Svörtudögum Boozt

Það geta allir fundið eitthvað fyrir jólaundirbúninginn á Svörtudögum Boozt
Kynning
15.07.2023

Spennandi tilboð á beinu flugi með Úrval Útsýn til Tenerife, Alicante og Verona

Spennandi tilboð á beinu flugi með Úrval Útsýn til Tenerife, Alicante og Verona
Kynning
30.06.2023

Veitingafélagið boðar til góðgerðadaga – Helmingur af allri sölu rennur til langveikra barna, forvarna gegn sjálfsvígum og til aðstandanda alkóhólista

Veitingafélagið boðar til góðgerðadaga – Helmingur af allri sölu rennur til langveikra barna, forvarna gegn sjálfsvígum og til aðstandanda alkóhólista
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum
Kynning
28.03.2023

Vistvænni salernisferðir í bígerð

Vistvænni salernisferðir í bígerð