fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Kim Jong Un hrósar „hetjunum“ sem sprengja sig í tætlur frekar en að láta Úkraínumenn ná sér

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 15:30

Einræðisherrann Kim Jong Un sendir hermenn á vígvöllinn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kim Jong Un, einræðisherra Norður Kóreu, hrósar þeim hermönnum sem sprengja sig í tætlur frekar en að láta Úkraínumenn handsama sig á vígvellinum. Sagði hann þá vera hetjur.

Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu.

Norður Kóreumenn hafa sent Rússum hermenn til þess að taka þátt í innrásinni í Úkraínu. Talið er að þeir séu um 15 þúsund talsins og eru einkum staðsettir á víglínunni í Kursk héraði í norður Úkraínu.

Mannfallið hefur verið gríðarlegt. Talið er að minnsta kosti 6 þúsund þeirra hafi dáið í átökunum og enn fleiri særst. Hvorki yfirvöld í Norður Kóreu né Rússlandi hafa viljað viðurkenna þetta mikla mannfall.

Landráð að láta handsama sig

Fjöldi þeirra Kóreumanna sem særst hafa eða orðið innikróaðir í átökunum hafa sprengt sig í loft upp með handsprengjum frekar en að láta taka sig sem stríðsfanga. Einræðisherrann Kim Jong Un hrósaði þessum hermönnum í ræðu í vikunni og lýsti þeim sem „hetjum.“

Sjá einnig:

Norður-Kóreumenn stráfelldir í Úkraínustríðinu – Enginn skeytir um örlög þeirra

„Óhikað hafa þeir ákveðið að sprengja sig sjálfa, í sjálfsvígsárás, til þess að verja okkar mikla heiður,“ sagði Un. „Sjálfsfórn þeirra án þess að vænta bóta og hollusta þeirra án þess að vænta umbunar er skilgreiningin á hámarki við hollustu herliðsins okkar.“

Sumir hafa hins vegar verið teknir til fanga eða þá hafa flúið og viljandi látið handsama sig. Þeir fangar hafa sagst hafa fengið fyrirmæli frá yfirboðurum sínum um að drepa sig frekar en að láta ná sér. Það sé landráð að láta handsama sig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Verðbólgan eilítið niður á við

Verðbólgan eilítið niður á við
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig“

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig“