fbpx
Mánudagur 20.maí 2024
Fréttir

Auði brugðið við að fylgjast með blindfullum útskriftarnemum dimmitera í miðbænum – „Þar ælir hann og ælir, milli þess sem hann missir meðvitund“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 10. maí 2024 15:03

Auður Jónsdóttir rithöfundur Mynd: Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rithöfundinum Auði Jónsdóttur var verulega brugðið í miðbænum fyrr í dag þar sem hún fylgdist með útskriftarnemum dimmitera. Leist henni ekki á blikuna þar sem hún sá áfengisdauðan dreng liggja í götunni fyrir utan Subway og vini hans, sem einnig voru afar drukknir, stumra yfir honum. Segir Auður að aðstæðurnar hafi verið stjórnlausar og hún því hringt á sjúkrabíl og síðan lögregluna til þess að kalla eftir aðstoð fyrir drenginn en það var hægara sagt en gert. Telur hún að illa hefði getað farið og kallar hún eftir sérstakri gæslu í miðbænum framvegis þegar krakkar eru að dimmitera.

Hér má lesa reynslusögu Auðar í heild sinni:

Lífvana drengur lá á götunni fyrir utan Subway upp úr hádegi. Erfitt að greina lífsmark og augun lukt aftur til fulls. Inni voru félagar í búningum að dimitera. Þegar var engin leið að ná til hans hringdi ég á sjúkrabíl en þá voru nokkrir drukknir unglingar komnir út. Mér var tjáð að ég gæti ekki fengið sjúkrabíl, fyrst þyrfti löggan að koma og meta aðstæður. Svo mér var beint að löggunni og bað um bíl. Smá lífsmark bærist með drengnum og vinirnir byrja að hnoðast með hann sem var stærri en þau flest og höfuð hans flengdist fram og aftur. Skíthrædd reyndi ég að fá þau til að fara ekki að dröslast með hann með flöktandi meðvitund en aðstöðurnar voru stjórnlausar. Þau flest mjög drukkin að reyna að bera hann áfram og næstum missa, þar til þau skelltu honum á bekk við Prikið. Þar ælir hann og ælir, milli þess sem hann missir meðvitund, krakkarnir rembast við að halda honum meðan sum reyna að reka mig í burtu og önnur að reyna að hjálpa,Þarna er liðin löng stund og ég hringi aftur í 112 og fæ aftur samband lögguna. Þá vita þeir ekki hvenær bíllinn kemur.

Ég var þarna orðin ansi hvöss og það ágerðist þegar ég var spurð af löggunni hvernig ætti að senda bíl ef enginn væri laus. Aftur er strákurinn eins og lífvana, en tveir vinir ná að halda honum með herkjum svo höfuð hans hendist ekki í vegg eða stéttina. Hann var of stór til að ég treysti mér til að leggja hann slysalaust á götuna með aðstoð drukkinna unglinga. Starfsfólk á Prikinu hafðu þá fyrir einhverri stundu sagst ætla að hringja á hjálp, sem þau hafa líklega gert en ekkert bólaði á löggunni. Þá hringdi ég mjög hvöss aftur í 112 og ítrekaðu beiðni um sjúkrabíl ef enginn löggubíll væri laus. Þá var sagt við mig að því miður væru svo margir að slasa sig í augnablikinu að það þyrfti að forgangsraða. Þau bara hefðu ekki bíla!

Þarna var líklega farið að slaga upp undir klukkutíma síðan ég hringdi, vinir stráksins líka orðnir hissa á biðinni og strákurinn ennþá meðvitundarlaus en átak fyrir þá að halda honum svo hann myndi ekki skella fram fyrir sig. Svo loks kom löggan. Man ekki hvort ég var búin að hringja einu sinni enn. Og þeir byrja að pota í strákinn sem rankar aðeins við sér og gubbar smá vatni og meira veit ég ekki því mín var ekki þörf lengur. En svona getur verið stórhættulegt og eiginlega ætti að vera sérstök gæsla í miðbænum þegar krakkar eru að dimmitera.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helga með ásakanir í garð Katrínar og Kára – „Áfall fyrir okkur hjá Persónuvernd“

Helga með ásakanir í garð Katrínar og Kára – „Áfall fyrir okkur hjá Persónuvernd“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán Einar saumaði að Höllu Tómasdóttur – „Varst þú blind á hætturnar og þennan hrylling sem var að hlaðast upp?“

Stefán Einar saumaði að Höllu Tómasdóttur – „Varst þú blind á hætturnar og þennan hrylling sem var að hlaðast upp?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“