fbpx
Mánudagur 20.maí 2024
Fréttir

Skýr skilaboð frá „Hakkavélinni“ – Þetta dugir ekki

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 30. apríl 2024 09:30

Úkraínumenn og Rússar berjast enn nærri Bakhmut. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mörg þúsund milljarðar eru á leið til Úkraínu í formi hernaðarstuðnings frá Bandaríkjunum. En úkraínska hermenn, sem eru í miklum vanda á vígvellinum, vantar svolítið sem er ekki einfaldlega hægt að kaupa fyrir peninga.

Það kemur sér auðvitað vel fyrir þá að fá skotfæri og vopn en það vantar einnig hermenn. Þetta sagði Pavlo Palisa, yfirmaður 93. vélvæddu herdeildarinnar sem berst við Bakmút sem er einnig þekkt sem „Hakkavélin“.

Í samtali við úkraínska ríkisfjölmiðilinn Suspilne sagði ofurstinn að hann vanti hermenn til að halda aftur af Rússunum sem hafi hert árásir sínar að undanförnu. „Þetta er miklu mikilvægara en skotfæri. Einn hermaður verður nú að berjast við þrjá eða fjóra,“ sagði hann.

Joe Biden, Bandaríkjaforseti, stað festi í síðustu viku lagafrumvarp sem færir Úkraínu hernaðaraðstoð upp á 60 milljarða dollara.

„Að sjálfsögðu gætir skotfæraskortsins í bardögunum. Fyrst og fremst eykur hann mannfall okkar. Við gerum það sem við getum, það er ekki í boði að gefast upp,“ sagði Palisa.

Hann sagðist telja að Rússar hafi fimm til sjö sinnum fleiri hermenn en Úkraínu.

Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War segir í nýrri stöðugreiningu að það skipti Úkraínu auðvitað miklu máli að fá fleiri skotfæri en það sé enn mikilvægara að leysa mönnunarvanda hersins. Það hversu langan tíma það tekur að fá nýja hermenn, muni skipta miklu varðandi möguleika Úkraínumanna á að gera gagnsókn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sviptingar í Landsrétti – Ákæru gegn látinni móður Jónasar James Norris vísað frá dómi

Sviptingar í Landsrétti – Ákæru gegn látinni móður Jónasar James Norris vísað frá dómi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilja reisa vonarvita fyrir Grindavík – Upplýsta Grindavíkur geit

Vilja reisa vonarvita fyrir Grindavík – Upplýsta Grindavíkur geit
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rúnar Hroði gefst ekki upp: „Ég ætla að fara með þetta alla leið“

Rúnar Hroði gefst ekki upp: „Ég ætla að fara með þetta alla leið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kristín nefnir algeng mistök við fasteignakaup og hvernig hægt er að forðast þau

Kristín nefnir algeng mistök við fasteignakaup og hvernig hægt er að forðast þau
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Málfræðingur ver viðtengingarhátt – „Hvar er sómakennd ykkar?“

Málfræðingur ver viðtengingarhátt – „Hvar er sómakennd ykkar?“