fbpx
Þriðjudagur 26.maí 2026
Fréttir

Bát hvolfdi í Hvalfirði

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 12. ágúst 2024 21:21

Aðgerðin er umfangsmikil að sögn Landsbjargar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á áttunda tímanum í kvöld vegna tilkynningar um að bát hefði hvolft í Hvalfirði. Einnig lögregla, sjóbjörgunarsveitir og áhöfnin á sjómælingaskipinu Baldri.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

„Vegfarendur sögðu bátinn vera um 300 metra frá landi og sáu mann á kili bátsins,“ segir í tilkynningunni. „Björgunarsveitir frá Akranesi, Kjalarnesi og Reykjavík héldu á staðinn og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var ræst út á mesta forgangi.“

Þegar björgunarfólk kom á staðinn hafði manninum tekist að komast um borð af sjálfsdáðum. Hann var hins vegar blautur og kaldur og hlúðu viðbragðsaðilar að honum. Eftir það var hann fluttur með þyrlu til skoðunar á sjúkrahúsi í Reykjavík.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tómas rýfur þögnina – Dómurinn sé fullur af alvarlegum rangfærslum og ærumeiðingum – „Andemariam Beyene var ekki aðeins sjúklingur minn“

Tómas rýfur þögnina – Dómurinn sé fullur af alvarlegum rangfærslum og ærumeiðingum – „Andemariam Beyene var ekki aðeins sjúklingur minn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Undarlegir svikapóstar sendir út undir nöfnum formanns Rithöfundasambandsins og forseta ASÍ – „Ég er með hálsbólgu vegna barkabólgu“

Undarlegir svikapóstar sendir út undir nöfnum formanns Rithöfundasambandsins og forseta ASÍ – „Ég er með hálsbólgu vegna barkabólgu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Plastbarkamálið: Segir ekkert því til fyrirstöðu að hefja sakamálarannsókn á Tómasi

Plastbarkamálið: Segir ekkert því til fyrirstöðu að hefja sakamálarannsókn á Tómasi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hjúkrunarfræðingurinn Atli lýkur meðferð við berklum í kvöld – „Ég get mætt í vinnuna í næstu viku og smitast aftur“

Hjúkrunarfræðingurinn Atli lýkur meðferð við berklum í kvöld – „Ég get mætt í vinnuna í næstu viku og smitast aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Plastbarkamálið: Getur Tómas starfað áfram sem læknir?

Plastbarkamálið: Getur Tómas starfað áfram sem læknir?
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kynsjúkdómafaraldur í Evrópu – Ísland í vondum málum

Kynsjúkdómafaraldur í Evrópu – Ísland í vondum málum