Lögregla handtók ölvaðan mann á Austurvelli í gær en hann hafði verið að áreita gesti á bar í nágrenninu og sýnt af sér ógnandi hegðun. Hann var handtekinn við komu lögreglu á vettvang og fluttur á lögreglustöð þar sem málið fór í hefðbundið ferli.
Þá var lögregla send ásamt sjúkraliði í heimahús en þar kvaðst aðili hafa orðið fyrir líkamsárás. Við komu viðbragðsaðila á vettvang brást hann ókvæða við og sýndi af sér ógnandi hegðun gagnvart lögreglu og sjúkraliði. Þrátt fyrir nokkrar fortölur af hálfu lögreglu og sjúkraliðs á vettvangi náði maðurinn engri stjórn á sér og fór að hann var handtekinn eftir að hafa brotið rúðu í hamaganginum. Málið er í rannsókn.
Lögreglu var svo tilkynnt um grunsamlegar ferðir manns í miðborginni sem var að sögn tilkynnanda að taka í hurðarhúna og lýsa inn í bifreiðar. Mannsins var leitað en fannst ekki við leit lögreglu.
Leigubílstjóri óskaði svo eftir aðstoð lögreglu eftir að hafa lent í vandræðum með farþega sem neitaði að borga fargjald. Var honum leiðbeint með framhaldið af hálfu lögreglu.
Loks var tilkynnt um ölvaðan einstakling sem hótaði afgreiðslufólki á bensínstöð. Við komu lögreglu á vettvang kannaðist maðurinn ekki við neitt og var honum því vísað á brott en á því stigi lágu engar kröfur fyrir í málinu. Nokkru síðar barst lögreglu önnur tilkynning um einstakling sem væri með hótanir í verslun skammt frá og reyndist það vera sá hinn sami. Hann var færður í lögreglutök og streittist hann á móti handtöku. Maðurinn var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.