fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Sérfræðingur segir þetta skýringuna á að Rússar eru ekki með yfirráð í lofti yfir Úkraínu

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 14. september 2022 08:50

Rússneskar Mig-29 orustuþotur. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftir rúmlega sex mánaða stríð í Úkraínu er úkraínski flugherinn enn til og er jafnvel öflugri en nokkru sinni áður. Þetta er eitthvað sem fáir reiknuðu með þegar Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar. Ekki var annað að sjá en þeir hefðu algjöra yfirburði á öllum sviðum. En annað hefur komið á daginn og nú síðast komu Úkraínumenn þeim algjörlega opna skjöldu í Kharkiv og hafa hrakið Rússa á brott frá stóru landsvæði.

Eins og staðan er núna þá getur úkraínski herinn enn veitt sveitum sínum á jörðu niðri stuðning úr lofti, bæði með herþotum og þyrlum. Þetta hefur komið berlega í ljós í sókn hersins í Kherson en þar hófu Úkraínumenn langa boðaða gagnsókn fyrir hálfum mánuði. En eins og hefur komið í ljós um helgina þá var sú sókn aðallega hugsuð sem blekkingaraðgerð til að fá Rússa til að flytja hermenn frá Kharkiv til Kherson. Síðan gerðu Úkraínumenn skyndisókn í Kharkiv sem hefur gengið vel.

Karsten Marrup, majór og yfirmaður loftvarnamiðstöðvar danska hersins, sagði í samtali við Jótlandspóstinn að Rússar hafi misst af tækifærinu til að tryggja sér yfirráð í lofti í Úkraínu. Úkraínumenn geti veitt hersveitum sínum í Kherson stuðning úr lofti og meira að segja hinir hægfleygu Bayraktardrónar virðist aftur gegna hlutverki ef miða má við myndbönd frá úkraínska hernum.

Hann sagði að ekki sé annað að sjá en Úkraínumönnum gangi vel að halda loftvörnum Rússa í Kherson niðri og geti um leið veitt hersveitum sínum stuðning úr lofti í sókn þeirra. Þetta sé aðeins hægt af því að hvorugur stríðsaðilinn hafi tryggt sér yfirráð í lofti.

„Ef maður horfir á síðustu sex mánuði stríðsins, sem hefur eiginlega staðið síðan 2014, þá virðist sem Rússar hafi á pappírunum mikla getu sem er hægt að nota til margs. En þeir eru bara ekki færir um að framkvæma flóknar aðgerðir. Þeir geta flogið tveimur herþotum hlið við hlið, eins og þeir gera á æfingum, en að nýta getuna til flókinna aðgerða í lofti virðast þeir ekki færir um. Það er að minnsta kosti ekkert sem bendir til að þeir hafi gert það,“ sagði Marrup.

Hann sagði einnig að vandræði Rússar í loftinu séu enn meiri vegna þess að þeir eigi í erfiðleikum með loftvarnir sínar. Bent hafi verið á að þeir ráði yfir ratsjárkerfum, sem drífa langt, rafrænum ruglurum og fleiri tækjum. Ef stjórnendur þessara tækja geti ekki starfað saman þá sé kerfið ekki eins gott að það lítur út fyrir að vera á pappírunum. Margar myndir hafi birst frá Úkraínu og Sýrlandi þar sem sést þegar rússnesk Pantsir-loftvarnarkerfi hafa orðið fyrir árásum úr lofti, þrátt fyrir að þau eigi að geta varið sig sjálf. Ef kerfin sé svo flókin að það sé ekki hægt að stjórna þeim þá sé það ekki gott fyrir Rússa. Þetta sé enn eitt atriðið sem sýni að þeir séu ekki eins góðir og talið var.

En það er ekki bara getuleysi Rússar sem veldur því að Úkraínumenn hafa ekki tapað slagnum um yfirráð í lofti. Þeir hafa fengið, og fá enn, mikið af vestrænum vopnum, til dæmis loftvarnarkerfi. Þeir hafa einnig fengið háþróuð flugskeyti af HARM gerð frá Bandaríkjunum. Þau geta eytt ratsjárkerfum sem eru tengd við rússnesk loftvarnarkerfi. Úkraínumönnum hefur tekist að koma þessum flugskeytum fyrir í MIG-29 flugvélunum sínum og hugsanlega í MIG-27 orustuþotum.

Einnig geta upplýsingar, sem Bandaríkjamenn hafa aflað, hafa komið Úkraínumönnum að gagni. Marrup sagði hugsanlegt að Bandaríkjamenn hafi varað Úkraínumenn tímanlega við um yfirvofandi innrás aðfaranótt 24. febrúar sem hafi gert Úkraínumönnum kleift að flytja flugvélar sínar frá hefðbundnum flugvöllum sínum. Að minnsta kosti tókst þeim að forða flugvélum sínum frá langdrægum rússneskum flugskeytum.

Eftir að stríðið hófst hafa Vesturlönd látið Úkraínumenn fá mikið af varahlutum í flugvélar og hafa þeir því getað haldið flugvélum sínum á lofti. Hafa fréttir borist af því að þeir séu raunar með fleiri flughæfar orustuþotur nú en fyrir stríð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum
Fréttir
Í gær

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slys við Dalveg: Bíl ekið inn í skrifstofu Útlendingastofnunnar

Slys við Dalveg: Bíl ekið inn í skrifstofu Útlendingastofnunnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun