fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Landsréttur þyngdi dóm yfir manni sem beitti eiginkonu og þrjú börn ofbeldi – Ógnarástand á heimilinu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 16. júní 2022 17:30

Landsréttur. Mynd: Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur álítur að stöðugt ógnarástand hafi ríkt á heimili manns sem beitti eiginkonu sína og þrjú börn ofbeldi. Þetta kemur fram í dómi sem féll í morgun. Landsréttur þyngdi fangelsisdóm héraðsdóms yfir manninum úr eins árs fangelsi í eins og hálfs árs fangelsi. Leggur Landsréttur áherslu á það í niðurstöðu sinni að eðlilegt sé að meta ofbeldisbrot í nánum samböndum heildstætt án þess að sanna þurfi hvert og eitt tilvik fyrir sig. Segir Landsréttur að í því ógnarástandi sem maðurinn hafi skapað á heimili sínu hafi kona hans og börn getað átt von á ofbeldi næstum hvenær sem var.

Í ákæru var maðurinn meðal annars sakaður um að hafa misboðið ólögráða syni sínum andlega og líkamlega með því að kasta bolla með heitu tei í áttina að honum, hóta honum lífláti, rífa í föt hans, sparka í rúmdýnu, rífa handklæðaslá af vegg á baðhergi og slá með henni í stigahandrið og í höfuð móður drengsins að honum ásjáandi.

Í öðru tilviki er maðurinn sagður hafa rifið í hár sonar síns og sveiflað höfði hans til og frá ásamt því að ráðast á móður og bræður drengsins að honum ásjáandi.

Hafði þvaglát í ferðatösku

Maðurinn er meðal annars sakaður um að hafa slegið eiginkonu sína með ferðatösku í höfuðið, farið síðan með ferðatöskuna inn í hjónaherbergi og haft þvaglát í hana. Hann er einnig sakaður um mörg önnur ofbeldisbrot gagnvart konunni.

Sem fyrr segir var fangelsisdómur mannsins fyrir Landsrétti þyngdur upp í eitt og hálft ár en miskabætur til handa konu hans og börnum eru óbreyttar frá dómi í héraði. Er hann dæmdur til að greiða eiginkonunni 1,2 milljónir í bætur, einu barninu 1 milljón, öðru 800 þúsund krónur og því þriðja 600 þúsund.

Dóma Landsréttar og héraðsdóms í málinu má lesa hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Gróf upp látna systur sína og gekk með hana þriggja kílómetra leið

Gróf upp látna systur sína og gekk með hana þriggja kílómetra leið
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sláandi þróun meðal íslenskra ungmenna – Ofbeldi, ójafnrétti, persónunjósnir, klám og leynilegir nektarmyndahópar

Sláandi þróun meðal íslenskra ungmenna – Ofbeldi, ójafnrétti, persónunjósnir, klám og leynilegir nektarmyndahópar
Fréttir
Í gær

Jón Pétur dregur í land – „Ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál“

Jón Pétur dregur í land – „Ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál“
Fréttir
Í gær

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“