fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Fréttir

Harmleikurinn í Vindakór: Eiríkur segir Dumitru hafa stolið hálsmeni móður Daníels

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 2. febrúar 2022 12:16

Dumitru Calin. Mynd: Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiríkur Sigurbjörnsson, faðir Daníels Eiríkssonar, sem lést eftir samskipti sín við Rúmenann Dumitru Calin, fyrir utan heimili sitt að Vindakór í Kópavogi, 2. apríl árið 2021, sneri sér að blaðamanni, í örstuttu hléi í vitnaleiðslum, sem urðu vegna tæknibilunar í upptöku og vildi koma upplýsingum á framfæri.

Sagði Eiríkur að Dumitru hefði stolið hálsmeni af Daníel sem móðir hans átti, Segir hann að þess vegna hafi Daníel alltaf verið að reyna að ná í Dumitru en  Dumitru bar fyrir rétti í dag að Daníel hafi ofsótt sig og hann hafi verið dauðhræddur við hann.

Eiríkur heldur því einnig fram að vitni hafi séð Dumitru bakka yfir Daníel. Ekkert slíkt hefur komið fram í vitnaleiðslum né í ákæru. Konan sem heldur þessu fram hefur ekki þorað að bera vitni hjá lögreglu eða við dóminn.

Í sjálfu réttarhléinu ræddi Eiríkur aftur við blaðamann og segist hann hafa blendnar tilfinningar gagnvart ákærunni. „Ég vona hins vegar að þetta mál verði til þess að þessi drengur snúi við blaðinu og nái áttum í lífinu,“ sagði Eiríkur í kristilegum anda.

Segir Eiríkur engan hefndarhug vera í sér en hann vilji sjá réttlætið ná fram að ganga.

Kona að nafni Cassandra, sem er unnusta Dumitru, bar vitni í málinu. Hún hitti Dumitru um morguninn rétt eftir atvikið. Segir hún hann hafa verið mjög hræddan og þau bæði óttast að Daníel væri að koma til þeirra. Framburður hennar var að mestu í samræmi við framburð Dumitru og er einfaldlega sú frásögn sem hún hafði eftir honum.

Sjá einnig: Banamaður Daníels ber vitni

Stífur kjálki og áverkar á höfðið

Lögreglumaður sem komst fyrstur á vettvang í Vindakór örlagamorguninn 2. apríl bar vitni.

„Fyrsta hugsun var bara hvað hafði komið fyrir. Við vissum ekkert hvað hafði gerst. Við sáum ekkert sem benti til þess hvað hafði gerst. Við vissum ekkert, það var enginn sem gat sagt okkur neitt. Hann hafði bara fundist þarna. Við héldum kannski að hann hefði fallið eða farið einhversskonar krampa. Hann gæti hafa verið undir áhrifum lyfja, við vissum ekkert,“ sagði hann.

Lögreglumaðurinn var spurður hvort eitthvað hefði bent til þess að maðurinn væri alvarlega slasaður. Sagði hann já og tilgreindi þessi atriði: Stífur kjálki, áverkar á höfði og maga, smá aflögun á höfði. Einnig greindi hann frá rauðum litlum punktum á hnakka sem þó blæddi ekki úr.

 

 

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust