fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Lögreglan á Vestfjörðum sendir frá sér tilkynningu – Vegfarendur björguðu konu og ungu barni út úr bílflakinu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 16. janúar 2021 19:34

Mynd: Facebook-síða lögreglunna á Vestfjörðum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Vestfjörðum hefur sent frá sér tilkynningu vegna slyssins í Skötufirði þar sem bíll rann til á veginum og lenti úti í sjó. Lögreglan segir í tilkynningu sinni að tveimur vegfarendum sem komu fyrstir á vettvang, með hjálp annarra tveggja sem komu að skömmu síðar, hafi tekist að koma tveimur farþegum út úr bílnum og upp á land, konu og ungu barni, en þriðji aðilinn hafi verið fastur uppi á þaki bílflaksins.

Samkvæmt tilkynningu lögreglu var ökumaður bílsins ekki alvarlega slasaður en orðinn kaldur. Sagt er einnig að líðan eins sé betri en hinna.

Sjá einnig: Bíll með þrjá innanborðs í sjóinn í Ísafjarðardjúpi

Lögreglan hrósar sérstaklega vegfaraendunum fjórum sem þarna brugðust við. Fólkið sem lenti úti í sjó í bílnum var þriggja manna pólsk fjölskylda. Tilkynning lögreglunnar, þar sem farið er yfir málið, er eftirfarandi:

„Kl.10:16 í morgun barst tilkynning til Neyðarlínunnar um umferðarslys í Skötufirði. Tilkynningin barst frá tveimur vegfarendum sem áttu þar leið hjá. Tilkynningin hljóðaði þannig að bifreið hafi lent út af veginum og hafnað í sjónum og að þrjár manneskjur væru um borð.

Vegfarendurnir tveir, sem komu fyrstir á vettvang, hófu þegar að gera ráðstafanir til að koma fólkinu til bjargar. Þeim bættist liðsauki þegar tveir aðrir vegfarendur komu að. Þessum aðilum tókst að koma tveimur farþegum úr bifreiðinni, konu og ungu barni úr bifreiðinni og upp á land. Hófu þessir fjórmenningar endurlífgun. Þriðji aðilinn var fastur upp á þaki bílflaksins.

Viðbragðsaðilar á norðanverðum Vestfjörðum voru kallaðir út og aðgerðastjórn almannavarna á Vestfjörðum var virkjuð sem og samhæfingamiðstöð almannavarna í Reykjavík.

Klukkustund eftir að tilkynningin barst voru fyrstu viðbragðsaðilar komnir á vettvang og tóku við endurlífgun og öðrum aðgerðum á vettvangi.

Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar komu á vettvang, með tvo lækna og kafara. Fyrir voru um 50 viðbragðsaðilar, slökkviliðsmenn, sjúkraflutningamenn, björgunarsveitarmenn og lögreglumenn, auk tveggja lækna sem komu frá Ísafirði. Björgunarsveitarmenn komu á vettvang á tveimur björgunarskipum, þeim Gísla Jóns frá Ísafirði og Kobba Láka frá Bolungarvík. Ökumanni var bjargað af bílflakinu um borð í annan björgunarbátinn. Hann ekki alvarlega slasaður en orðinn kaldur.

Þyrlurnar fluttu síðan ökumann og farþegana tvo til Reykjavíkur þar sem þau njóta læknismeðferðar. Líðan eins þeirra er betri en hinna. Aðstandendum fólksins hefur verið gert viðvart um slysið.

Fólkið sem í bílnum var er af erlendu þjóðerni, en búsett á Vestfjörðum. Það kom erlendis frá í nótt. Vegna þessa þurfti aðgerðastjórn og umdæmissóttvarnalæknir að setja alls 18 viðbragðsaðila í úrvinnslusóttkví auk þeirra fjögurra einstaklinga sem komu fyrstir á vettvang, alls 22 manns.

Vegna þessa var sóttvarnahús opnað í Önundarfirði þar sem stór hluti þessa viðbragðsaðila er í sóttkví. Vonir standa til þess að þeirri sóttkví ljúki á morgun þegar seinni sýnataka hjá einstaklingunum þremur liggur fyrir. Fyrri sýnataka hjá fólkinu á landamærunum reyndist neikvæð.

Ástæða er til þess að hrósa vegfarendunum fjórum sem komu fyrstir á vettvang fyrir þrekvirki við björgunina en aðstæður voru afar erfiðar. Viðbragðsaðilar brugðust hratt og vel við og unnu vel á vettvangi. Veður var gott en nokkur hálka á vegi.

Þegar þetta er ritað er ekki vitað frekar um líðan fólksins. Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Vestfjörðum. En einnig kemur rannsóknarnefnd samgönguslysa að þeirri rannsókn.“

https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=2201499776651374&id=804745209660178

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“