fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Baráttan um æðsta embætti lögreglunnar

Ritstjórn DV
Laugardaginn 18. janúar 2020 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjö um­sókn­ir bár­ust um embætti rík­is­lög­reglu­stjóra sem aug­lýst var laust til um­sókn­ar eftir að Haraldur Johannessen lét af störfum um áramót eftir 22 ára starf. Um­sókn­ar­frest­ur stöðunnar rann út þann 10. janú­ar. Settur ríkislögreglustjóri í fjarveru Haralds er Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri á Suðurlandi, en sjálfur ákvað hann að sækja ekki um starfið.

Ríkislögreglustjóri fer með æðsta yfirvald löggæslumála og almannavarna í umboði ráðherra, lögum samkvæmt. Ríkislögreglustjóri er meðal annars yfirmaður sérsveitarinnar, greiningardeildar, alþjóðadeildar, fjarskiptamiðstöðvar og almannavarna.

Það er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra sem sér um að skipa í stöðuna til fimm ára.

 

Öryggisvörður í felum

Arnar Ágústsson er huldumanneskjan í hópi umsækjenda, ef svo mætti að orði komast. Arnar er sagður vera öryggisvörður sem áður gegndi slíkum störfum hjá Isavia. Samkvæmt heimildum er hann fæddur árið 1983 og stundar nám við Háskóla Íslands.

 

Ausinn lofi á samfélagsmiðlum

Grímur Grímsson er menntaður við­skipta­fræðingur og hefur starfað sem lög­reglu­maður í þrjá­tíu ár. Hann vakti mikla at­hygli í leitinni að Birnu Brjáns­dóttur en hann gegndi þá stöðu yfir­manns mið­lægrar rann­sóknar­deildar og kom fram fyrir hönd lög­reglunnar í fjöl­miðlum. Á þessum tíma naut hann mikils stuðnings fólks á samfélagsmiðlum, þar sem fólk fór fögrum orðum um vinnubrögð hans og framgöngu í fjölmiðlum. Grímur er nú­verandi tengsla­full­trúi Ís­lands hjá Europol.

 

Berst gegn heimilisofbeldi

Halla Bergþóra Björnsdóttir lauk kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1995 og meistaraprófi í Evrópurétti frá lagadeild Stokkhólmsháskóla árið 1999. Lögmannsréttindi við héraðsdóm hlaut hún ári fyrr. Hún var svo sett sýslumaður og lögreglustjóri á Akranesi 2009 og síðan lögreglustjóri á Norðurlandi eystra í ársbyrjun 2015. Ári síðar kynnti hún, ásamt forstöðumanni barnaverndar Akureyrarkaupstaðar, samstarfsverkefni lögreglunnar og Akureyrarkaupstaðar með það að markmiði að vinna gegn heimilisofbeldi.

 

Vel tengd

Kristín Jóhannesdóttir lögmaður er á meðal umsækjenda. Hún var framkvæmdastjóri hjá fjárfestingafélaginu Gaumi. Hún sat í stjórn Baugs og hefur lengi starfað sem lögfræðingur, en hún er systir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, fjárfestis.

 

Lunkinn á píanóið

Logi Kjartansson hefur undanfarin ár starfað sem lögfræðingur hjá stjórnsýslusviði Ríkislögreglustjóra. Einnig hefur hann starfað á lögfræðisviði umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og starfaði sem píanókennari hjá Tónlistarskólanum á Egilsstöðum.

 

Vill fjölga rýmum

Páll Winkel er forstjóri Fangelsismálastofnunar og hefur gegnt því starfi síðan 2007. Áður hafði hann sinnt stöðu aðstoðarríkislögreglustjóra. Páll hefur verið opinn um að vilja fjölga rýmum í opnu fangelsi á Íslandi.

 

Úr skattinum í ofbeldisvarnardeild

Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á Höfuðborgarsvæðinu sótti um

Sigríður Björk Guðjónsdóttir hefur gegnt störfum lögreglustjóra um árabil hjá ofbeldisvarnardeild. Hún var fyrsta konan til að taka við embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu en áður hafði hún unnið á Suðurnesjum. Hún var aðstoðarríkislögreglustjóri á árunum 2007–2008, sýslumaður á Ísafirði 2002–2006 og þar áður skattstjóri Vestfjarðaumdæmis.

Sigríður hefur verið umdeild í gegnum tíðina og vakti málið mikla athygli þegar hún var sögð hafa brotið gegn starfsmannalögum, jafnréttislögum, stjórnsýslulögum, ýmsum meginreglum stjórnsýsluréttar og reglugerð um aðgerðir gegn einelti og ofbeldi á vinnustöðum með framgöngu sinni gagnvart Aldísi Hilmarsdóttur, fyrrverandi yfirmanni fíkniefnadeildar. Hæstirétt­­ur dæmdi ís­­lenska ríkið til að greiða Al­­dísi 1,5 millj­­ón­ir króna í miska­bæt­­ur. Áður hafði ríkið verið sýknað í hér­aði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi