fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Fréttir

Hér verða áramótabrennurnar

Ari Brynjólfsson
Sunnudaginn 30. desember 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú vinna starfsmenn sveitarfélaga hörðum höndum að því að hlaða í áramótabrennur. Yfir 90 brennur verða haldnar um allt land á gamlárskvöld. Sextán brennur verða á höfuðborgarsvæðinu og er eldur borinn að þeim flestum kl. 20.30 á gamlárskvöld. Á því eru þó nokkrar undantekningar, á Úlfarsfelli er tendrað kl. 15.00 um daginn og í Skerjafirði er eldur borinn að kestinum kl. 21.00 eftir blysför sem hefst kl. 20.30.

Líkt og áður er sjaldnast formleg dagskrá á brennunum en hvetur Reykjavíkurborg fólk til að rifja upp álfasöngvana og mæta með góða skapið.

 

Reykjavík

Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð kl. 20:30.

Geirsnef kl. 20:30.

Við Suðurfell kl. 20:30.

Við Ægisíðu kl. 20:30.

Gufunes við gömlu öskuhaugana kl. 20:30.

Skerjafjörður gegnt Skildinganesi 48 – 52 kl. 21. (Blysför kl. 20:30)

Vestan Laugarásvegar móts við Valbjarnarvöll. kl. 20:30

Fylkisbrennan, við Rauðavatn. kl. 20:30.

Kjalarnes

Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna. kl. 20:30

Hafnarfjörður

Ásvellir, við Tjarnarvelli 7 kl. 20:30

Seltjarnarnes

Valhúsahæð. kl. 20:30

Kópavogur

Kópavogsdalur við Smárahvammsvöllur 20:30 (Flugeldasýning kl. 21:10)

Í Vatnsenda fyrir ofan Gulaþing 20:30

Álftanes

Á bökkunum við Tröð.

Mosfellsbær

Í Ullarnesbrekkum við hesthúsahverfið. Bálið tendrað kl. 20:00

Garðabær

Við Sjávargrund. kl. 21:00

Akureyri

Við Réttarhvamm

Egilsstaðir

Á nesinu vestan við Kirkjuna á Egilsstöðum. kl.16:30

Hægt verður að koma með efni á brennurnar í dag. Best er að fá hreint timbur á brennurnar. Stærstur hluti þess sem fer á brennurnar eru vörubretti en einnig er fenginn afgangur af jólatréssölunni. Plast, gúmmí og unnið timbur á ekki erindi í köstinn. Hætt verður að taka á móti efni þegar þær eru orðnar hæfilega stórar eða í síðasta lagi kl. 12.00 á gamlársdag. Stærð brennanna ræðst meðal annars af mati Eldvarnareftirlitsins á aðstæðum á hverjum stað.

Fólk er hvatt til að skjóta ekki upp flugeldum við brennurnar og minnt er á hlífðargleraugu og hanska. Einnig skal minnt á að bannað er að kveikja sína eigin áramótabrennu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust