fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

„Framsókn gekk í gegnum hreinsunareld“

Halla Signý er Made in Sveitin – Miðflokksmenn sakna Framsóknar – Ánægð að enginn sé dreginn til ábyrgðar í #metoo

Ari Brynjólfsson
Laugardaginn 27. janúar 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég hef varla komið í Austurstræti síðan ég var 17 eða 18 ára, það er frekar undarlegt að vera byrjuð að vinna hérna,“ segir Halla Signý Kristjánsdóttir, nýr þingmaður Framsóknarflokksins. Halla Signý kemur að vestan og brennur fyrir byggðamálum. Blaðamaður DV settist niður með Höllu og ræddi við hana um stjórnmálin, landsbyggðina og breytingarnar sem eru að verða á samfélaginu.

„Þetta er draumaríkisstjórnin mín. Við keyrum á samhljóm, sátt og samvinnu. Katrín Jakobsdóttir er samnefnari fyrir samvinnu og traustið sem stjórnmálin þurfa á að halda. Minn flokkur er í ríkisstjórn af heilindum og ég efast ekki um að hinir séu það líka. Það var einhver kergja í Vinstri grænum en ég get ekki séð að þau hafi unnið af heilindum í sínu starfi. Auðvitað er maður ekki alveg sammála þessum flokkum í einu og öllu en miðað við stöðuna í dag þá er ég viss um að þessi stjórn geti setið lengi,“ segir Halla Signý.

Framsóknarflokkurinn klofnaði í fyrrahaust og hlaut sína verstu útkomu í kosningum frá stofnun með aðeins 10,7 prósenta fylgi. Halla hefur verið í Framsóknarflokknum frá því að hún var 15 ára gömul, hún kveðst þó ekki fylgja flokknum í einu og öllu. „Framsókn hefur ekkert alltaf fylgt mínum skoðunum. Okkar stefna snýst ekki um persónur, Framsókn gekk í gegnum hreinsunareld og ég er mjög ánægð með flokkinn núna.“

Halla Signý segir að Framsókn sé ekki í sárum eftir að flokkurinn klofnaði, flokkurinn hafi verið í meiri sárum áður en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson stofnaði Miðflokkinn.
Hreinsunareldur Framsóknar Halla Signý segir að Framsókn sé ekki í sárum eftir að flokkurinn klofnaði, flokkurinn hafi verið í meiri sárum áður en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson stofnaði Miðflokkinn.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Miðflokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar tók til sín marga fyrrverandi Framsóknarmenn og mikið fylgi. Halla hafnar því að Framsókn sé í sárum: „Sigmundur fór úr flokknum og það fóru nokkrir með honum, ég segi bara, komi bara þeir sem koma vilja og öllum er frjálst að fara. Við erum ekki í neinum sárum. Við vorum í miklu meiri sárum á meðan hann var í flokknum. Við sáum vissulega á bak mörgu góðu fólki yfir í Miðflokkinn, en ég veit um marga sem eru að horfa til okkar aftur. Ef það eru sárindi þá myndi ég frekar segja að það sé hinum megin, þau sakna okkar,“ segir Halla og hlær.

Byggðastefna er ekki ölmusa

Halla Signý býr enn fyrir vestan þar sem hún sinnir börnum, barnabörnum og öðrum börnum. „Ég segi líka að ég eigi uppkominn eiginmann,“ segir hún og hlær. „Við fljúgumst á og reynum að hittast eins oft og við getum.“ Halla hefur verið búsett fyrir vestan alla sína ævi og því tekur tíma að venjast höfuðborginni. Þess má geta að fyrir ofan skrifborð Höllu er gatnakort af höfuðborgarsvæðinu sem skilið var eftir af fyrrverandi þingmanni. „Það er náttúrlega að rata, ég er nú alveg komin með helstu leiðirnar á hreint núna. Það er ýmislegt sem kona sem er „Made in sveitin“ þarf að taka inn, það er ekkert mál að moka bílinn út úr skafli en að vera föst í umferðaröngþveiti … það er nýtt, en ég er að læra.“

Það er ekkert mál að moka bílinn út úr skafli en að vera föst í umferðaröngþveiti … það er nýtt.

Þótt hún sé óvön höfuðborginni vill Halla alls ekki að höfuðborginni sé stillt upp á móti landsbyggðinni. „Við eigum ekki að tala hvort annað niður því við þurfum á hvort öðru að halda. Í þessu nútímaþjóðfélagi þá skiptir það ekki máli hvar á landinu fólk er staðsett, landsbyggðin er að taka jafn mikinn þátt í fjórðu iðnbyltingunni og aðrir.“ Halla hefur hins vegar áhyggjur af því að erfitt sé að manna stöður og lítur hún sérstaklega til þess að laða aðflutta aftur í heimabyggð. Sem dæmi var hún fjármálastjóri Bolungarvíkur en ekki hefur tekist að manna stöðuna eftir að hún náði kjöri á þing. „Það er erfitt að fá til okkar skurðlækna, það er ekki hægt að starfrækja fæðingardeild án skurðlæknis.“

Byggðastefna byggir ekki á því að láta höfuðborgarbúa niðurgreiða búsetu á landsbyggðinni, segir Halla Signý. Þvert á móti á að nota fjármagn sem verður til á svæðinu til uppbyggingar þar. Horfir hún sérstaklega til Noregs eftir fyrirmynd. „Þetta er ekki ölmusa. Við erum að leggja mikið til. Ef laxeldi á Vestfjörðum færi upp í 30 þúsund tonn þá væri það að leggja 25 milljarða inn í þjóðarbúið. Með því væri hægt að borga allar helstu samgönguúrbætur sem þarf á svæðinu. Það væri hægt að borga uppbyggingu á Dynjandisheiði, veg um Teigsskóg, Dýrafjarðagöng kosta svo átta milljarða.“

Ekki eftirherma

Halla Signý er sannkölluð sveitakona, hún var alin upp á Ingjaldssandi og var bóndi í 10 ár í Önundarfirði. „Ég er yngst tólf systkina, tíu komust á legg.“ Bróðir hennar er Jóhannes Kristjánsson eftirherma, Halla er sjálf ekki eftirherma. „Ég er alveg laus við það. Við deilum þeim hæfileikum að taka fljótt eftir ýmsu í fari fólks, en ég læt það vera að hafa það eftir eins og hann gerir,“ segir Halla og brosir.

Halla Signý er systir Jóhannesar eftirhermu, hún segist sjálf ekki herma eftir fólki en hún sé með hæfileikana sem þurfi til.
Hermir ekki eftir fólki Halla Signý er systir Jóhannesar eftirhermu, hún segist sjálf ekki herma eftir fólki en hún sé með hæfileikana sem þurfi til.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hún er með ákveðna skýringu á hvaðan þessir hæfileiki kemur. „Sagnahefðin er mjög rík í móðurættinni. Amma var mikil sagnakona og var með eftirhermur, þegar hún sagði frá þá lék hún fólkið sem hún talaði um. Mamma gerði þetta líka, hún var fædd 1923 og það var ekki útvarp á heimilinu, þá var hún send til að hlusta á fréttirnar og svo endursagði hún fréttatímann fyrir fjölskylduna.“

## „Svona var bara þessi hugsun“

Þú hefur verið virk í félagsstörfum í áratugi, tengir þú reynslu þína við #metoo-byltinguna?

„Maður verður vitni að ýmsu. Fyrir nokkrum árum var þetta bardagi, ég var kosin á stéttarsambandsþing bænda. Þar sat ég ásamt þremur konum. Þá voru örfá ár frá því að fyrsta konan var kjörin á búnaðarþing í 150 ára sögu Búnaðarfélags Íslands. Þú getur ímyndað þér hvernig þetta var. Þetta var bara önnur kynslóð.“

Við erum allt of gjörn á að draga einhvern til ábyrgðar og hengja.

Halla segir að sem ungur bóndi hafi hún mætt andstöðu ekki bara karla heldur einnig kvenna. „Oft kom harðasta gagnrýnin frá öðrum konum. Það er búin að vera bylting síðustu ár, nú er formaður sauðfjárbænda kona.“ Halla rifjar upp að fyrir nokkrum árum þá átti að skipta um hreppstjóra í sveitinni, þegar þeir voru enn við lýði. „Ég lagði það til að kona myndi gegna því embætti, það þótti fáránlegt því konan var sjö barna móðir og hefði ekki tíma til þess. Svo var maðurinn hennar settur í starfið. Svona var bara þessi hugsun.“

Hún lítur svo á að samfélagið sé að ganga í gegnum tjald þar sem ójafnrétti fortíðar er skilið eftir. „Við erum allt of gjörn á að draga einhvern til ábyrgðar og hengja. Ég er mjög ánægð að í þessari byltingu séum við ekki að fara þangað, þetta er samfélagsmein sem við þurfum að vinna á öll saman. Við erum ekki að fara að hengja einhvern eða breyta fortíðinni. Þetta er eins og að ganga í gegnum tjald, við berum öll einhverja ábyrgð og skiljum þetta öll eftir í fortíðinni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala