Kærum rignir inn til lögreglu
Halldór Sanne er í gæsluvarðhaldi. Maðurinn hefur ítrekað ratað á síður blaðanna vegna ýmis konar svika og pretta, auk þess sem hann hefur hlotið dóma fyrir fjársvik, þar á meðal þungan dóm í Danmörku fyrir símasvindl.
Lögreglu hafa borist fjölmargar kærur og ábendingar vegna fjársvika á undanförnum dögum og vikum, í tengslum við leigu á íbúðarhúsnæði. Fréttablaðið greinir frá þessu. „Vegna rannsóknarhagsmuna var hann í gær úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald,“ hefur blaðið eftir Grími Grímssyni yfirlögregluþjón.
Eins og DV greindi frá í fyrra gengur Halldór undir ýmsum nöfnum. Hann hefur kallað sig Halldór Viðar Hafsteinsson og Aldo Bae en sá síðarnefndi státaði af því að hafa víðtæka reynslu úr viðskiptalífinu og hafa unnið fyrir mörg stærstu fyrirtæki heims.
Sjá einnig: Rukkaði fyrir lífvarðanámskeið sem hann hélt aldrei