fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Fréttir

Sigmundur lét kanna mögulegt innbrot rétt fyrir Wintris-þáttinn

„Við ítar­lega leit fund­ust ekki stað­fest ummerki að inn­brot hafi átt sér stað“

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 12. september 2016 17:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, fór þess á leit við rekstrarfélag stjórnarráðsins að það kannaði hvort brotist hefði verið inn í tölvu hans.

Kjarninn greindi frá þessu í dag.

Þar er vísað í svar frá rekstrarfélaginu þar sem segir að félaginu hafi borist beiðni frá Sigmundi þann 1. apríl síðastliðinn um að skoða tölvu hans vegna rökstudds gruns um mögulegt innbrot. Tveimur dögum síðar, eða þann 3. apríl, var Wintris-þátturinn sýndur í Kastljósi Sjónvarps þar sem greint var frá aflandsfélagi Sigmundar og eiginkonu hans.

Sigmundur sagði á haustþingi miðstjórnar Framsóknarflokksins um helgina að hann væri þess fullviss um að brotist hefði verið inn í tölvu hans. „Ég veit að það var brotist inn í tölvuna hjá mér,“ sagði Sigmundur. Hann sagði einnig að hann hefði verið eltur á ferðum sínum erlendis af kröfuhöfum í þrotabú föllnu bankanna. Þetta hefði gerst meðan hann var forsætisráðherra.

„Þann 1.apríl 2016 barst félag­inu beiðni frá for­sæt­is­ráð­herra um að skoða tölvu ráð­herra vegna rök­studds gruns hans um mögu­legt inn­brot. Við ítar­lega leit fund­ust ekki stað­fest ummerki að inn­brot hafi átt sér stað,“ segir í svarinu sem Kjarninn vísar til.

Í frétt Vísis fyrr í dag var greint frá því að embætti ríkislögreglustjóra hefði ekki verið tilkynnt um mögulegt innbrot í tölvu fyrrverandi forsætisráðherra. Orðrétt sagði í svari ríkislögreglustjóra til Vísis: „Embætti ríkislögreglustjóra hefur ekki verið tilkynnt um innbrot í tölvu fyrrverandi forsætisráðherra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust