fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026

Eina sem hún vildi voru augabrúnir – Nú situr hún eftir – Einhleyp og í sárum

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 14. apríl 2019 17:30

Greyið Jami.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona að nafni Jami Ledbetter, 42 ára, hefur komist í heimsfréttirnar síðustu daga, en líklegast ekki út af ástæðum sem hún hefði fremur viljað. Þannig er mál með vexti að Jami fæddist án augabrúna og var himinlifandi þegar að dætur hennar gáfu henni gjafakort í næstum varanlegt augnbrúnatattú, eða „microblading“. Sagt er frá þessu á vef WDAF.

Þeir sem ekki vita hvað „microblading“ er þá er um að ræða form af húðflúri sem er næstum því varanlegt, en þeir sem framkvæma þennan verknað nota lítinn hníf eða nál til að apa eftir hárum í augabrúnum.

Sjálfstraustið í molum

Jami pantaði tíma en var hins vegar ekki parsátt þegar að meðferðinni var lokið. Þá blasti þessi mynd við henni í spegli:

Brúnirnar voru það dökkar að Jami gat ekki falið þær með farða og í samtali við WDAF segir hún að sjálfstraustið hafi verið í molum út af þessu.

„Ég var miður mín. Ég var meira að segja að hitta karlmann og hann hætti að hitta mig á þessum tímapunkti,“ segir Jamie.

Hún fann aðra manneskju sem lofaði að geta lagað gömlu brúnirnar. Það gekk hins vegar ekki heldur upp og endaði Jami með fjórar augabrúnir. Algjör hörmung. Nú er hún hins vegar búin að setja sig í samband við húðflúrlistamanninn Kara Gutierrez sem ætlar að laga augabrúnirnar hennar.

„Ég þurfti að hafa mig alla við svo ég myndi ekki fara að hágráta því þetta er það versta sem ég hef séð,“ segir Kara. Nú tekur við löng meðferð til að laga augabrúnirnar og verður heildarkostnaður líklega um þúsund dollarar, eða tæplega 120 þúsund krónur.

„Ef ég hefði vitað að þetta myndi enda svona hefði ég örugglega aldrei gert þetta,“ segir Jami.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Sturlaður leikur í París – Allt opið í hálfleik

Sturlaður leikur í París – Allt opið í hálfleik
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Óvænt orðaður við Manchester United á dögunum en sögusagnir eru um að fleiri ensk stórlið fylgist með honum

Óvænt orðaður við Manchester United á dögunum en sögusagnir eru um að fleiri ensk stórlið fylgist með honum
Eyjan
Fyrir 15 klukkutímum

Orðið á götunni: Hlýtur að styttast í nýjan ritstjóra Morgunblaðsins – ástandið orðið vandræðalegt

Orðið á götunni: Hlýtur að styttast í nýjan ritstjóra Morgunblaðsins – ástandið orðið vandræðalegt
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Chelsea bætir tveimur áhugaverðum kostum á lista sinn

Chelsea bætir tveimur áhugaverðum kostum á lista sinn
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Örorkubætur kosta ríkissjóð tugi milljarða – Lítill en hækkandi hluti rennur til útlendinga

Örorkubætur kosta ríkissjóð tugi milljarða – Lítill en hækkandi hluti rennur til útlendinga

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.