fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024

Guðný er sorgmædd og reið: „Tveir ungir einstaklingar misstu líf sitt til fíkninnar síðastliðna tvo sólarhringa, við megum ekki hundsa vandamálið“

Aníta Estíva Harðardóttir
Föstudaginn 26. janúar 2018 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðný Bjarneyjar er sorgmædd og virkilega reið yfir því að hafa fengið staðfestar fréttir af tveimur ungum einstaklingum sem misstu líf sitt til fíkninnar síðastliðna tvo sólarhringa. Guðný segist vera virkilega reið yfir því að meðferðaraðilar neyðist til þess að draga úr þjónustu, fækka meðferðarplássum og loka á alla þjónustu á landsbyggðinni.

Foreldrar, börn og systkini eru að horfa á eftir ástvinum sínum. Fyrst í klær Bakkusar konungs og svo í hendur dauðans. Þeir vinna saman, Bakkus sem vill koma þegnum sínum í geðveiki fíknarinnar þar til hjarta þeirra hættir að slá en þá tekur dauðinn við og fagnar hverju lífi sem hann fær. Andstyggð, þessir tveir saman,

segir Guðný í einlægri færslu á Facebook.

Í samtali við Bleikt segir Guðný að málið sé allt of alvarlegt til þess að það megi hundsa það.

Þessir tveir einstaklingar sem ég hef fengið staðfestingu á að hafi látist undanfarna tvo sólarhringa eru sennilega ekki þeir einu.

Tvær ungar manneskjur sem eiga fullt af fólki í kringum sig sem nú syrgja og sakna. Tvær ungar manneskjur sem Bakkus klófesti, átti, píndi og kvaldi áður en hann kom þeim í hendur dauðans. Hann hikar ekki við að nota ljáinn sér í hag, skítt með hvað öllum öðrum finnst.

Guðný segir að vegna fjárskorts og niðurskurðar hafi meðferðaraðilar neyðst til þess að draga úr þjónustu til fólks með fíknivandamál.

Ég er sorgmædd og reið, nei ég er sorgmædd og bandöskubrjáluð. Við sem gerum okkur grein fyrr því sem er að gerast eigum að öskra, arga og garga. Stappa niður fótunum þar til ráðamenn þjóðarinnar átta sig. Þeim virðast ekki duga tölurnar um látna, við verðum að sýna þeim. Gera þeim skylt að mæta í jarðarfarirnar, sjá afleiðingar, sjá sorgina.

Guðný segir að ekki megi taka dauðsföll af völdum sjúkdómsins alkóhólisma sem eðlilegum og sjálfsögðum hlut.

Líkt og þetta sé eðlileg framvinda. Það er ekki lögmál að fólk þurfi að deyja úr alkóhólisma. Ólíkt mörgum krónískum og banvænum sjúkdómum er hægt að ná góðum bata. En margir/flestir af þeim sem þjást af sjúkdómnum þurfa hjálp við að afeitrast og ná lágmarks jafnvægi. Þá hjálp er verið að minnka, skera niður og loka á.

Guðný segir að það séu ekki einungis sjúklingarnir sjálfir sem þjást af völdum alkóhólisma heldur einnig heilu fjölskyldurnar.

Þær eru jafnvel tvístraðar og eru í sárum. Aðstandendur, augun sem gráta, hjörtun sem blæða, eru alveg næg ástæða til þess að eitthvað sé gert til að fækka dauðsföllum, sorg og söknuði. Að ég tali nú ekki um alla þá sem eru látnir. Elsku vinir, gefum okkur tíma til þess að hlúa að þeim sem þurfa að ganga í gegnum sorg og missi, enginn á að þurfa að standa einn í sorg.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Féll í yfirlið á Subway og var fluttur á sjúkrahús: ‘Stóri engillinn’ kom til bjargar – ,,Er allt í lagi með þig!?“

Féll í yfirlið á Subway og var fluttur á sjúkrahús: ‘Stóri engillinn’ kom til bjargar – ,,Er allt í lagi með þig!?“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

England: Chelsea kom til baka á Villa Park

England: Chelsea kom til baka á Villa Park
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Verðandi stjóri Liverpool minnir hann á goðsögnina

Verðandi stjóri Liverpool minnir hann á goðsögnina
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

15 þúsund manns hvetja hann í að vera áfram

15 þúsund manns hvetja hann í að vera áfram
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Segja að næsti heimsfaraldur verði væntanlega af völdum flensuveiru

Segja að næsti heimsfaraldur verði væntanlega af völdum flensuveiru
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Enn og aftur orðaður við brottför – Hafa harðneitað að hann sé til sölu

Enn og aftur orðaður við brottför – Hafa harðneitað að hann sé til sölu
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Arteta virðist hafa fulla trú á 16 ára strák – Gæti fengið sæti á bekknum

Arteta virðist hafa fulla trú á 16 ára strák – Gæti fengið sæti á bekknum
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Salah um rifrildið: ,,Ef ég tjái mig verður allt brjálað“

Salah um rifrildið: ,,Ef ég tjái mig verður allt brjálað“