fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Fríða Björk um börnin sem eru skólakerfinu oft „erfið“: „Oft mætti grípa mun fyrr í taumana“

Fríða B. Sandholt
Þriðjudaginn 13. febrúar 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég á þrjú börn sem öll eru komin í grunnskóla, sem er auðvitað bara gott og blessað. Skólakerfið á íslandi er yfir höfuð mjög gott og sem betur fer búum við að því að hafa þetta flotta skólakerfi og alla þessa frábæru kennara sem halda utan um starfið og styðja og fræða börnin okkar ásamt því að hugga þau og gleðjast með þeim í gleði og sorgum.

Engin börn eru eins
Og engir tveir einstaklingar hafa sömu þarfirnar og engir tveir einstaklingarnir eru sömu námsmennirnir. Við erum jú, öll eins misjöfn og við erum mörg.

Sem betur fer hentar skólakerfið okkar flestum börnum.
En í þessum pósti langar mig til að minnast á þau börn sem ekki eru þessi „skólavænu börn“ ef svo má að orði komast.

Það eru börnin sem:

  • Eiga erfitt með að læra stafina
  • Eiga erfitt með að klára að lesa heila blaðsíðu á þessu korteri sem miðað er við að þeu lesi heima daglega
  • Eru ekki orðin læs í 4. bekk og jafnvel enn seinna
  • Eiga erfitt með að hugsa í orðum og hugsa þess vegna í myndum
  • Muna allt sem sagt er við þau
  • Eiga jafnvel auðveldara með að læra af youtube heldur en af „bókinni“
  • Geta ekki lært margföldunartöfluna og deilingu, sama hversu hart þau leggja á sig
  • Geta ekki munað tölustafi
  • Eiga erfitt með stærðfræði
  • Eiga erfitt með að læra á klukku

Svo eitthvað sé nefnt.

Þetta eru börnin okkar sem eru jafnvel, þó ekki alltaf, með einhverjar greiningar eins og t.d. lesblindu, talnablindu, AdhdAdd og fleiri greiningar og raskanir. Hjá sumum börnum liggur þeirra geta bara frekar í líkamlegum þroska, eins og t.d. í íþróttum og önnur börn hafa sterkari tilfinningagreind.

Þetta eru listamennirnir, tónlistarfólkið og hugmyndasmiðirnir okkar

Þetta eru að öllum líkindum börnin okkar sem verða „dugnaðarforkarnir“ í líkamlegri vinnu.
Þetta eru að  öllum líkindum húsasmíðameistararnir okkar, sem byggja húsin fyrir okkur, rafvirkjarnir sem leggja rafmagn fyrir húsin okkar og allar virkjanirnar okkar, járnsmiðirnir sem smíða fyrir okkur handriðin á nýbyggingarnar okkar, bifvélavirkjarnir sem gera við bílana okkar.
Þetta eru listamennirnir, tónlistarfólkið okkar, hugmyndasmiðirnir og svo má lengi telja.

Því miður eru þetta börnin sem eru oft á tíðum skólakerfinu okkar „erfið“ ef svo má að orði komast. Þessi börn storka vissulega kerfinu, en einhverjir verða að taka það að sér, er það ekki?

En sem betur fer, eins og ég sagði, þá er skólakerfið okkar hér á Íslandi frábært og við eigum ótrúlega flotta, færa og vel menntaða kennara og sem betur fer er yfirleitt, ef ekki alltaf, hægt að aðstoða þessi börn við námið. Það eru sem betur fer til allskonar lausnir og úrræði fyrir þau. Að vísu finnst mér oft á tíðum seint gripið inn í (eða það er allavega mín reynsla, og margra annarra sem ég hef rætt þessi mál við) og oft mætti grípa mun fyrr í taumana.

En svo skal líka hafa það í huga að þau börn sem ekki ná tökum á lestrinum fyrst af öllum, eða þau börn sem ekki ná að læra margföldunartöfluna eða deilingu á fyrstu árum skólagöngunnar, verða oft á tíðum mjög sterkir nemendur þegar fram líða stundir.

 

Ekki setja alla undir sama hattinn og ekki dæma aðra

En það sem mér finnst mikilvægast er að setja ekki öll börn undir sama hattinn, og að veita því skilning að það er bara alls ekki sjálfsagt að öll börn séu orðin læs í 2. bekk eða kunni margföldunartöflurnar.

En það sem við megum hafa í huga, ávalt, er að DÆMA EKKI.
Það á enginn rétt á því að setja út á það að barnið þitt kunni ekki á klukku eða að barnið þitt lesi ekki nógu hratt, o.s.frv. en margir foreldrar sem eiga börn sem eru í þessari stöðu hafa einmitt oft mætt fordómum og skilningsleysi hjá fólki og öðrum foreldrum. Við eigum engan rétt á því að dæma aðra og sérstaklega ekki ef við þekkjum ekki aðstæður og/eða sögu þessara barna. Berum virðingu fyrir hvort öðru og umfram allt, berum virðingu fyrir börnunum okkar (og annarra). Því að það eru einmitt þau sem móta framtíðina okkar. Og sem betur fer eru þau ekki öll eins.

Það reyna allir sitt besta, bæði foreldrar og börn, og það ber að virða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
Eyjan
Fyrir 11 klukkutímum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum
Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf
Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Verk og vit sett með pomp og prakt

Verk og vit sett með pomp og prakt
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“