„Það tók enginn eftir þessu“
„Þetta tókst, það tók enginn eftir þessu þegar ég fór í ræðustól. Svo bara fylltist þingsalurinn og ég náttúrulega hugsaði: „Loksins er þetta fólk að hlusta á það sem ég er að segja um Íbúðalánasjóð,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins en röð atvika olli því að hann hélt ræðu á Alþingi buxnalaus. Guðlaugur Þór býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en í myndskeiði sem birtist á fésbókarsíðu hans rifjar hann upp þetta spauglega atvik.
„Síðasta vetur afrekaði ég það nú sem ég veit ekki til þess að að neinum öðrum þingmönnum hafi tekist eða gert en ég hélt þingræðu buxnalaus. Það var tilkomið af því að ég var að fara í ræðu um Íbúðalánasjóð og fer fram hjá ofni og það stendur alltaf eitthvað svona út til að hækka og lækka í ofninum. Það festist í vasanum og það bara rifnuðu af mér buxurnar,“ segir Guðlaugur og bætir við að buxurnar hafi hreinlega verið í tætlum. Enginn tími var til þess að redda málunum og ákvað hann því að láta slag standa.
„Það voru fáir í þingsalnum og ég hugsaði: „Ef ég gæti bara læðst í ræðustólinn“ -því það stendur svona út með hliðunum og ég væri bara í honum, þá myndi enginn taka eftir þessu. Svomyndi ég finna einhverja leið til að fara niður eða út úr stólnum,“ segir Guðlaugur jafnframt en hann hafði gert ráð fyrir að fáir myndu hlusta á ræðuna og væri hann þvi öruggur. Annað kom þó á daginn: þingsalurinn fylltist af fólki og taldi Guðlaugur að loksins myndi hann ná til eyrna fólks með ræðu sinni um Íbúðalánasjóð.
Hann bætir því við að vinkona hans Ragnheiður Ríkharðsdóttir hafi því næst komið upp að honum og skildi hann ekkert hvers vegna á því stóð. „Þá var það þannig að planið gekk alveg upp en ég hreyfi mig helst til mikið þannig að ég gekk til og frá sem gerði það að verkum að þingheimur vissi nákvæmlega í hvaða nærbuxum ég var,og var bara að skemmta sér með þetta! Ragnheiður skýldi mér svo enginn ljósmyndari myndi ná mynd af þessu þegar ég gekk út úr þingsalnum.“
Guðlaugur kveðst telja að þessi uppákoma flokkist undir mistök af hans hálfu, þó þau séu ef til vill ekki stórpólitísk.
„En eftir stendur, það hefur enginn haldið buxnalaus ræðu á Alþingi Íslendinga!“