„Þetta fann sonur minn á netinu og fannst frekar skrýtið. Netið gleymir engu.“ Þetta skrifar Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna og fyrrverandi menntamálaráðherra á Facebook. Þar deilir Katrín umfjöllun Lemúrsins þar sem hún fór með hlutverk tálkvendis í myndbandbandi hljómsveitarinnar Bang Gang, hljómsveit Barða Jóhannssonar. Hljómsveitin var upphaflega verkefni skólafélaga úr MR.
Í myndbandinu má sjá Barða og annan meðlim úr sveitinni, Henrik, elta seiðandi tálkvendi sem líkist Audrey Hepburn í hlutverki Holly GoLightly.
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið en Katrín deilir því á Facebook-síðu sinni og minnir á að Netið gleymir engu:
„Þetta fann sonur minn á netinu og fannst frekar skrýtið“
[youtube https://www.youtube.com/watch?v=73dAHpU_t0E&w=640&h=360]