fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Fókus
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 12:30

Evoto

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, lenti á milli steins og sleggju á dögunum þegar hann mætti á stórleik FH og Hauka í Olís-deildinni í handbolta.

Valdimar segir frá þessu í grein á vef Vísis.

„Það fyrsta sem ég heyrði þegar ég mætti á leik FH og Hauka á dögunum var hvoru megin ég ætlaði að sitja. Spurningin kom aftur og aftur, sögð með brosi, stundum með smá kímni en alltaf með sömu undirliggjandi merkingu, nú þarf að velja. Ég skil þessa tilfinningu. Íþróttir snúast um ástríðu. Þær kveikja með okkur samkennd, stolt, spennu, stundum pirring en umfram allt gleði og ánægju,” segir Valdimar en eins og íþróttaunnendur vita – og kannski sérstaklega Hafnfirðingar – er talsverður rígur á milli félaganna.

Valdimar segir í grein sinni að þrátt fyrir spennuna og pirringinn séu íþróttir líka eitthvað svo miklu stærra en leikurinn sjálfur.

„Þær eru eitt sterkasta aflið í uppeldi og félagsmótun. Í íþróttum lærir fólk að mæta á réttum tíma, standa með liðinu sínu, taka ábyrgð, vinna með öðrum, takast á við mótlæti og halda áfram. Fyrir börn og ungmenni getur þetta verið lykillinn að sjálfstrausti. Fyrir fullorðna snúast íþróttir fyrst og fremst um heilsu og samfélag, það að tilheyra. Fyrir Hafnarfjörð í heild eru íþróttir og tómstundir eitt af því sem bindur okkur saman, hafnfirska hjartað slær hraðar og við erum að rifna úr stolti yfir okkar frábæra íþróttafólki.“

Þá bendir hann á að í Hafnarfirði séu fjölmörg íþróttafélög – ekki bara Haukar og FH – og þau séu jafn fjölbreytt og þau eru mörg.

Valdimar bætir svo við að það sem hefur verið leiðarljósið í hans starfi sé að mæta fólki og hópum af sanngirni, vera lausnamiðaður og halda alltaf fókus á því sem skiptir mestu; börnin okkar, ungmennin, fjölskyldurnar og samfélagið.

„Þegar við styrkjum íþrótta- og tómstundastarf þá fjárfestum við í fólki, forvörnum, heilsu, lífsgæðum og samheldni. Þess vegna er svarið við spurningunni, hvoru megin ég ætli að sitja, í raun einfalt. Ég styð hafnfirsk félög alla leið,“ segir hann og bætir við að hann vilji að öll félögin standi sig vel, hvort sem þau eru á stóra sviðinu eða þau sem vinna sín afrek fyrir framan færri áhorfendur og á minna sviði.

„Hafnarfjörður er íþróttabær, við höfum eflt það síðustu ár og ætlum að halda því áfram næstu árin. Það er metnaður sem ég stend með vegna þess að þegar íþrótta- og tómstundalífið dafnar þá dafnar Hafnarfjörður.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé