
Samkvæmt málssókninni, sem lögð var fram í vikunni, notaði Cameron ljósmynd af Kilcher þegar hún var 14 ára gömul í hlutverki Pocahontas í myndinni The New World sem grunn að útliti Neytiri.
Er því haldið fram að andlit hennar hafi verið skannað og nýtt í hönnunarferli persónunnar án hennar vitundar eða samþykkis.
Í stefnunni kemur fram að Cameron hafi sjálfur viðurkennt í viðtölum að mynd af Kilcher hafi verið innblástur fyrir persónuna. Þá er vísað til þess að ákveðin einkenni hennar, meðal annars varir, haka og kjálkalína, sjáist greinilega í lokaútliti Neytiri, sem Zoe Saldaña lék í myndunum.
Kilcher segir að hún hafi fyrst áttað sig á umfangi málsins seint á síðasta ári þegar gamalt viðtal við Cameron fór að dreifast á samfélagsmiðlum. Þar hafi hann sagt að „raunverulegi uppruninn“ að Neytiri væri ljósmynd úr Los Angeles Times.
Lögmaður Kilcher, Arnold P. Peter, segir málið snúast um að andlitseinkenni ungrar frumbyggjastúlku hafi verið nýtt í gróðaskyni án hennar samþykkis. „Þetta var ekki innblástur heldur útdráttur,“ sagði hann í yfirlýsingu.
Í málssókninni er einnig vísað til nýrra laga í Kaliforníu um notkun djúpfalsaðs efnis (e. deepfake), þar sem persóna byggð á útliti ólögráða einstaklings birtist síðar í rómantískum og kynferðislega nánum atriðum í seríunni.
Kilcher fer fram á skaðabætur, hlutdeild í hagnaði sem rekja má til notkunar á útliti hennar og opinbera leiðréttingu frá framleiðendum myndanna.
Hvorki Cameron né fulltrúar Disney hafa tjáð sig um málið.