fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fókus

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða

Fókus
Miðvikudaginn 6. maí 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikararnir Justin Baldoni og Blake Lively hafa náð sáttum eftir mikil átök í tengslum við kvikmyndina It Ends With Us. Málið verður því ekki tekið frekar fyrir af dómstólum en aðalmeðferð átti að hefjast þann 18. maí.

Lively sakaði Baldoni um kynferðislega áreitni og niðurlægjandi framkomu á tökustað myndarinnar og sakaði leikarann, sem jafnframt var leikstjóri myndarinnar, um ófrægingarherferð.

Baldoni sneri vörn í sókn og sakaði leikkonuna á móti um mannorðsmorð. Eins höfðaði hann mál gegn miðlinum The New York Times fyrir að hafa birt frétt um ásakanir Lively.

Þær vendingar urðu svo fyrir rúmum mánuði að dómari vísaði frá 10 af 13 kæruliðum leikkonunnar, þar með talið ásökunum um áreitni og meiðyrði. Eftir stóðu kæruliðir sem snerust um meint samningsbrot og ófrægingarherferð. Sami dómari vísaði alfarið frá máli Baldoni gegn leikkonunni.

Sáttin hefur komið mörgum á óvart en lögmaður Baldoni segir að leikarinn sé ljómandi sáttur með niðurstöðuna.

„Þetta var mikill sigur,“ sagði lögmaðurinn Bryan Freedman í samtali við TMZ Live. „Þetta er stórkostlegt tækifæri og ég held að maður láti slíkt ekki fram hjá sér fara.“

Leikararnir gáfu út sameiginlega yfirlýsingu á dögunum þar sem bæði sögðust stolt af kvikmyndinni, þrátt fyrir allt dramað. Áskoranir hafi komið upp við töku myndarinnar og Baldoni segir að Lively hafi haft fullan rétt á því að viðra áhyggjur sínar af framkomu í sinn garð.

Freedman heldur því þó fram að ekki sé um eiginlega dómsátt að ræða. Hér sé um fullnaðarsigur að ræða þar sem dómari hafi vísað frá ásökunum um kynferðislega áreitni, meiðyrði og annað.

„Hann gat loksins dregið andann aftur. Að vera sakaður um kynferðislega áreitni með svona opinberum hætti er hræðilegt. Ég verð bara klökkur þegar ég hugsa um það sem hann gekk í gegnum því hann er svo góð manneskja og berst fyrir öllu því sem er gott í fari kvenna og styður konur.“

Sjá einnig: Ævintýralega dramað heldur áfram – Dómari slær á fingur leikaranna og biður þau að hætta að reka málið fyrir fjölmiðlum

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Líf harmar að hafa lækað þessa færslu – „Mjög leiðinleg skrunmistök“

Líf harmar að hafa lækað þessa færslu – „Mjög leiðinleg skrunmistök“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar – „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“

Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar – „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Inga greinir frá andláti föður síns – „Hann var sæll að fá að fara“

Inga greinir frá andláti föður síns – „Hann var sæll að fá að fara“
Fókus
Fyrir 1 viku

Hvetur alla til að lesa lýsingar leikkonunnar á heimilisofbeldinu sem hann beitti hana – „Ég var fullur“

Hvetur alla til að lesa lýsingar leikkonunnar á heimilisofbeldinu sem hann beitti hana – „Ég var fullur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Rod Stewart ánægður með Karl eftir heimsóknina til Trump – „Sagðir þessum rottuhala til syndanna“

Rod Stewart ánægður með Karl eftir heimsóknina til Trump – „Sagðir þessum rottuhala til syndanna“