fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fókus

Íslensk snorklferð valin besta upplifun í heimi

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 09:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snorklferð DIVE.IS í Silfru hefur verið valin sú besta af öllu því besta sem hægt er að gera í heiminum (e. #1 „Best of the Best Things to Do in the World“) í verðlaunaafhendingu Tripadvisor, Travelers’ Choice Awards, fyrir árið 2026. Ferðin er því í efsta sæti yfir einstakar ferðaupplifanir á heimsvísu.

Hin árlegu Travelers’ Choice Best of the Best verðlaun eru æðsti heiður sem Tripadvisor veitir og er viðurkenning fyrir upplifanir sem fá gríðarlegan fjölda framúrskarandi umsagna yfir 12 mánaða tímabil. Af meira en 8 milljón skráningum um allan heim ná innan við 1% þessum árangri.

Snorklferð DIVE í Silfru hafnaði í 1. sæti á listanum í ár

Tripadvisor lýsti upplifuninni sem „einstakri“ (e. „once-in-a-lifetime“) og hrósaði bæði náttúrufegurð staðarins og fagmennsku leiðsögumannanna. Í umsögnum er oft minnst á tærleika vatnsins, þá einstöku tilfinningu að fljóta á milli heimsálfa og persónulega þjónustu sem fólk upplifði alla ferðina. Snorklferðin í Silfru lenti ofar en heimsþekktar upplifanir á borð við gönguferðir að Machu Picchu í Perú, loftbelgsferðir yfir Serengeti í Tansaníu og jöklaævintýri í Alaska.

Snorklferðin í Silfru er einstök upplifun sem gefur gestum tækifæri til að snorkla í flekaskilum Norður-Ameríku og Evrasíu í kristaltæru vatni Silfrugjár á Þingvöllum.

„Þessi viðurkenning er okkur ótrúlega mikilvæg því hún kemur beint frá gestum okkar,“ segiri Björn Ragnarsson, forstjóri Icelandia, móðurfyrirtækis DIVE í fréttatilkynningu. „Teymið okkar leggur metnað sinn í að veita örugga, persónulega og ógleymanlega upplifun í einu magnaðasta náttúruundri jarðar. Að ferðin skuli vera valin sú besta í heimi er heiður sem við deilum með hverjum einasta leiðsögumanni og þeim fjölmörgu gestum sem hafa treyst okkur fyrir því að gera Íslandsferðina sína ógleymanlega.“

Silfra er þekkt fyrir einstakt skyggni sem er oft yfir 100 metrar. Vatnið er jökulvatn sem hefur síast í gegnum hraun í áratugi og gerist því ekki tærara. Ferðin er farin með sérmenntuðum leiðsögumönnum í þurrbúningum og í litlum hópum sem tryggir bæði þægindi í köldu vatninu og öryggi. Mörg þúsund gestir hafa gefið ferðinni 5,0 í einkunn sem er hæsta mögulega einkunn sem völ er á.

Um DIVE

DIVE hefur boðið upp á ferðir í Silfru frá 1997 og er þekkt fyrir áherslu sína á öryggi, sjálfbærni og fagmennsku. Félagið er leiðandi í köfunar- og snorklferðum á Íslandi ásamt því að vera 5-stjörnu PADI köfunarskóli, og sá skóli sem útskrifar flesta PADI-þurrbúningakafara í heiminum. Fyrirtækið leggur áherslu á að bjóða upp á örugg og vönduð ævintýri sem sýna einstakt vatnaumhverfi Íslands. Hér má finna frekari upplýsingar um snorklferðina í Silfru og nánari upplýsingar um verðlaun TripAdvisor.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig
Fókus
Fyrir 4 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ragnhildur útskýrir gaslýsingu á mannamáli

Ragnhildur útskýrir gaslýsingu á mannamáli
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Fór til Íslands og fékk áfall yfir verðinu – Sjáðu myndbandið

Fór til Íslands og fékk áfall yfir verðinu – Sjáðu myndbandið
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum
Fókus
Fyrir 1 viku

Komst að leyndarmáli kærustunnar með falinni myndavél

Komst að leyndarmáli kærustunnar með falinni myndavél