

Hjónin Stefán Pálsson varaborgarfulltrúi og Steinunn Þóra Árnadóttir, fyrrverandi alþingismaður, sneru aftur til landsins úr helgarferð, til Dublin, í gær. Voru þau hins vegar skilin eftir þegar farþegar úr vélinni voru fluttir með rútu í flugstöðina á Keflavíkurflugvelli. Slíkar aðstæður eru hjónunum þeim mun erfiðari þar sem Steinunn þarf að notast við hjólastól en þá barst þeim hjálp frá áhöfn vélarinnar sem þurfti hins vegar að setja fram kröfur til að hrinda hjálpinni í framkvæmd.
Stefán segir svo frá þessari upplifun hjónanna í Facebook-færslu:
„Lentum síðdegis eftir bráðskemmtilega helgi í Dublin. Einhvern veginn tókst rútunni sem flutti farþegana úr vélinni að flugstöðinni að skilja okkur Steinunni eftir. Þá kom aðvífandi rútan sem átti að flytja flugáhöfnina, sem spurði óðara hvort hún gæti ekki kippt okkur með. Það reyndist ekki í samræmi við reglur. Farþegar mættu ekki sitja í áhafnarrútum svo við yrðum að bíða uns farþegarútan væri búin að skila hópnum af sér og koma aftur.“
Stefán segir að við þessi svör hafi flugáhöfnin ekki verið sátt og neitað að hlýða þessum reglum:
„Þá neitaði Icelandair-áhöfnin að fara um borð – tók ekki í mál að yfirgefa flugvélarsvæðið fyrr en búið væri að tryggja okkur far. Við tók svona kortérs störukeppni sem lauk með því að bílstjórinn fékk leyfi til að hleypa okkur um borð og keyra að flugstöðinni. Fáránleg uppákoma en við erum svo sem öllu vön eftir margra ára reynslu af því að fljúga með hjólastól. Flugleiðaáhöfnin fær stórt prik fyrir að standa á sínu þótt alla langaði bara heim.“