fbpx
Fimmtudagur 04.september 2025
Fókus

Nanna hlaut barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur fyrir sína fyrstu barnabók

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 4. september 2025 15:45

Nanna Rögnvaldardóttir og Heiða Björg Hilmisdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nanna Rögnvaldardóttir, rithöfundur og þýðandi, hlaut Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í dag. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, afhenti henni verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða. 

Alls bárust 71 handrit undir dulnefni í ár, og bar handrit Nönnu sigur úr býtum en það nefnist „Flóttinn á norðurhjarann“. 

Verðlaunin eru veitt árlega fyrir óprentað handrit að barna- eða ungmennabók og er ætlað að hvetja til metnaðarfullra skrifa fyrir börn og ungmenni og halda á lofti merkjum eins okkar ástsælasta barnabókahöfundar. Verðlaunahandritið  kemur út hjá Forlaginu í næsta mánuði, eins og segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Í athöfninni minntist borgarstjóri Guðrúnar Helgadóttur, sem lést árið 2022, og hennar mikilvæga framlags til barnabókmennta.

„Þessi viðurkenning er mér mjög dýrmæt, ekki aðeins vegna þess að ég þekkti Guðrúnu, kom að sumum bóka hennar á vinnslustigi og mat hana ætíð mikils, heldur einnig vegna þess að sagan gaf mér tækifæri til að fjalla um tímabil sem er mér afar hugleikið frá nýju sjónarhorni – séð með augum barns sem þarf að takast á við ótrúlega erfiðar aðstæður en upplifir líka gleði, spennu og ást. Aðalpersónan, Solla, var formóðir mín og það gerði söguna enn mikilvægari fyrir mér“, segir Nanna var afar ánægð með að hljóta þessa viðurkenningu fyrir sína fyrstu barnabók. 

Nanna Rögnvaldardóttir hefur skrifað fjölda bóka um matargerð og matarsögu, þar á meðal stórvirkið Matarást sem var tilnefnt til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Einnig hefur hún skrifað bækur um íslenska matargerð á ensku. Árið 2023 kom út fyrsta skáldsaga Nönnu, Valskan, en frásögnina byggir hún á lífi formóður sinnar og fléttar saman heimildum og skáldskap svo úr verður grípandi saga um harða lífsbaráttu, þrautseigju og ástir. Árið 2024 sendi Nanna svo frá sér sögulegu glæpasöguna Þegar sannleikurinn sefur. Atburðarásina byggir hún lauslega á þekktu morðmáli frá árinu 1704 en spinnur þó glænýja sögu. Sjálfstætt framhald sögunnar er væntanlegt í haust. Nanna er jafnframt ötull þýðandi og starfaði lengi við bókaútgáfu hjá Iðunni og Forlaginu.

Flóttinn á norðurhjarann

Flóttinn á norðurhjarann fjallar um mæðgur sem þurfa að flýja erfiðar aðstæður og takast á við margar hindranir í leit sinni að betra lífi. Söguhetjan er stelpa sem í upphafi sögu er tólf ára gömul og sagan er alfarið sögð frá hennar sjónarhorni sem gerir lesendum auðveldara að setja sig í hennar spor. En það sem gerir söguna sérstaka er að hún gerist undir lok 18. aldar í kjölfar Móðuharðindanna og margvíslegra erfiðleika af þeirra sökum.

Í dómnefnd sátu: Þorgeir Ólafsson, Ragnheiður Gestsdóttir og Jónella Sigurjónsdóttir

 Úr umsögn dómnefndar:

Á sjöunda tug handrita bárust í samkeppni Reykjavíkurborgar um Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur að þessu sinni. Mörg þeirra voru mjög góð og dómnefnd átti úr vöndu að ráða, ekki síst vegna mikils fjölda handrita. Eftir endurtekinn lestur þeirra handrita sem þóttu skara fram úr varð það einróma álit dómnefndar að “Flóttinn á norðurhjarann” væri best og leggur því til að verkið og höfundur þess hljóti Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur að þessu sinni.

Sagan er vel skrifað á góðu máli sem ekki er fornlegt eða stirt þrátt fyrir að sagan gerist fyrir meira en tvö hundruð árum. Sögupersónur eru vel skapaðar og trúverðugar og við kynnumst þeim þegar sögunni vindur fram og þær þurfa að bregðast við margvíslegum raunum. Sagan er einnig spennandi því söguhetjurnar lenda stöðugt í nýjum aðstæðum sem reyna á þær. 

Þrátt fyrir að Flóttinn á norðurhjarann gerist fyrir löngu síðan hefur sagan sterka samfélagslega tengingu við nútímann. Stúlkan og móðir hennar eru á flótta, það hafa orðið skelfilegar náttúruhamfarir og hungursneyð í kjölfar þeirra og það reynir á hvernig tekið er á móti flóttafólki. Sagan er engu að síður falleg og hugljúf á köflum og lýsir góðum og slæmum eiginleikum í fari fólks.

Dómnefndin telur að Flóttinn á norðurhjarann falli börnum frá 10 ára aldri vel í geð og veiti þeim lestraránægju auk þess að veita þeim innsýn í líf okkar hér á landi fyrr á tímum. Engin leið er jafn áhrifarík til að setja sig í spor annarra og sú að lifa sig inn í góða sögu og fátt hefur verið um sögulegar skáldsögur ætlaðar börnum og unglingum, sögur sem fá fortíðina til að lifna við.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Martröð unglingsstúlku og kærasta hennar reyndist vera verk móður hennar

Martröð unglingsstúlku og kærasta hennar reyndist vera verk móður hennar
Fókus
Í gær

Það sem hún sér mest eftir varðandi uppeldi barnanna

Það sem hún sér mest eftir varðandi uppeldi barnanna
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Það er hópur af fólki sem að situr enn um mig á netinu út af þessum ummælum“

„Það er hópur af fólki sem að situr enn um mig á netinu út af þessum ummælum“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ljósabekkir valda nú fleiri húðkrabbameinum en sígarettur valda lungnakrabbameinum“

„Ljósabekkir valda nú fleiri húðkrabbameinum en sígarettur valda lungnakrabbameinum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hugrún hætt á Bylgjunni eftir tveggja ára starf – „Nýr kafli er að hefjast“

Hugrún hætt á Bylgjunni eftir tveggja ára starf – „Nýr kafli er að hefjast“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Umsögn bandarískra ungmenna um íslenskt nammi vekur reiði – „Vanvirðingin gagnvart drykkjunum okkar er klikkuð!“

Umsögn bandarískra ungmenna um íslenskt nammi vekur reiði – „Vanvirðingin gagnvart drykkjunum okkar er klikkuð!“