fbpx
Fimmtudagur 05.mars 2026
433Sport

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

433
Sunnudaginn 1. mars 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurbjörn Hreiðarsson og Jóhann Már Helgason voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni. Þar var rýnt í Bestu deild karla, sem hefst eftir um sex vikur.

Val hefur ekki gengið nógu vel að sækja stóra bita í lið sitt í vetur. Talið er að það sé ekki verði að verja eins miklum fjármunum og áður á Hlíðarenda.

„Þetta með Gumma Tóta og Böðvar eru vonbrigði. En þeim er bara að bjóðast betri samningar annars staðar. Það er búið að herða sultarólína á Hlíðarenda,“ sagði Jóhann, en báðir leikmenn enduðu hjá ÍA.

video
play-sharp-fill

„Sem stuðningsmaður viltu fá þessa leikmenn, en ég veit að menn eru að vanda til verka og það er einhver sjálfbærni í rekstrinum.

Ég þykist þó vita að liðið muni styrkja sig fyrir mót, maður hefur heyrt það. Það vantar fyrir mér vinstri bakvörð, djúpan miðjumann og jafnvel back-up í framlínuna.“

Sigurbjörn bendir á að byrjunarlið Vals sé sterkt en að lítið megi út af bregða.

„Ef allir eru heilir er Valur með frábært byrjunarlið, það er bara þannig. En, það er bara svo ofboðslega mikið um meiðsli á þessu undirbúningstímabili. Nú viltu fara að stilla upp þínu besta liði. Það er nýr þjálfari og teymið er nýtt. Utanlandsferðin gekk víst vel. En það er gríðarlega mikilvægt að þessir meiddu leikmenn fari að týnast inn.

Það er rosalega mikilvægt að ná í back-up fyrir Patrick. Hann á að koma aftur í maí en hásinarslit, hann er bara að fara að byrja þá.“

Umræðan er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Upplýsa um furðulegt ákvæði sem er í samningum

Upplýsa um furðulegt ákvæði sem er í samningum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fela færslur þar sem kallað er eftir því að Parker missi vinnuna

Fela færslur þar sem kallað er eftir því að Parker missi vinnuna
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fullyrðir að Liverpool hafi haft samband vegna sonar síns

Fullyrðir að Liverpool hafi haft samband vegna sonar síns
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga enskra stórliða

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga enskra stórliða
Hide picture