fbpx
Fimmtudagur 05.mars 2026
433Sport

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“

433
Sunnudaginn 1. mars 2026 15:30

Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurbjörn Hreiðarsson og Jóhann Már Helgason voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni. Þar var rýnt í Bestu deild karla, sem hefst eftir um sex vikur.

Stjarnan hefur látið að sér kveða á markaðnum í vetur og gengið frábærlega á undirbúningstímabilinu.

Stjarnan var í toppbaráttu við Víking við tvískiptingu deildarinnar í fyrra en fylgdi því svo ekki eftir. Liðið landaði þó Evrópusæti að lokum.

video
play-sharp-fill

„Ég horfi klárlega á þá í topp þremur. Þeir enduðu mótið ekki of vel eftir að hafa verið komnir í baráttuna. Ég á samt eftir að sjá þá ná þeim stöðugleika að ná toppnum,“ sagði Sigurbjörn.

„Ég er sammála því. Það var mjög furðulegt hvernig þeir tóku þetta skrið í fyrra. Þeir fengu auðvitað Caulker inn og hafa misst hann aftur. Hann var mjög góður, svo ekki sé fastar að orði kveðið.

Benedikt Waren, Birnir Snær, Örvar Eggerts, fyrir aftan kannski heilan Emil Atla, svo er Andri Rúnar líka þarna, Guðmundur Baldvin á miðjunni. Þetta er ótrúlega hæfileikríkur hópur. Og ef Birnir fer á sinn kaliber getur hann hæglega verið með 10 mörk og 10 stoðsendingar. Það er mikil spenna fyrir Stjörnunni,“ sagði Jóhann.

Umræðan er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Rosaleg skuldastaða í Eyjum vekur enn á ný athygli – Tekjur jukust hressilega á milli ára

Rosaleg skuldastaða í Eyjum vekur enn á ný athygli – Tekjur jukust hressilega á milli ára
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ósáttur eftir að ummæli hans voru fölsuð – Ætlar á HM þrátt fyrir innrás í Íran

Ósáttur eftir að ummæli hans voru fölsuð – Ætlar á HM þrátt fyrir innrás í Íran
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

London og Manchester koma til greina fyrir ungan leikmann Brighton

London og Manchester koma til greina fyrir ungan leikmann Brighton
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Leikmaður United fær sekt, bann og þarf að sækja námskeið – Kallaði leikmann hommastrák

Leikmaður United fær sekt, bann og þarf að sækja námskeið – Kallaði leikmann hommastrák
433Sport
Í gær

Íranskar landsliðskonur mótmæltu – Myndband

Íranskar landsliðskonur mótmæltu – Myndband
433Sport
Í gær

Sigurður segir ljóst að Þóra hafi staðið að baki bréfinu í aðdraganda brotthvarfs hans – „Ég hefði aldrei valið Þóru aftur“

Sigurður segir ljóst að Þóra hafi staðið að baki bréfinu í aðdraganda brotthvarfs hans – „Ég hefði aldrei valið Þóru aftur“
Hide picture