Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, fjallar í sínum nýjasta pistli á Facebook um hvernig við getum öll stutt þá sem kjósa áfengislausan lífsstíl. Sjálf hefur Ragga verið án áfengis í 13 ár.
„Leggjum ekki stein í götu þeirra sem vilja efla heilsu sína með að sleppa áfengi.
Styðjum með því að bjóða upp óáfengar veigar.
Sýnum skilning með að bjóða viðkomandi alltaf með á tjúttið.
Hrósum og hvetjum.
Naglinn hefur verið á snúrunni í 13 ár og má telja á fingrum annarrar samferðafólk sem hafa krumpast yfir að ekki rynni mjöður um æðar.
Líf án áfengis er gróði í öllum skilningi.“
Ragga telur upp ótal dæmi um það:
- Fílterinn í framheilanum er í fullum gangi og passar hvað þú segir og við hvern.
- Vaknar ferskur…. smá þreyttur, en ekki timbraður og skraufþurr að innan.
- Meiri peningur í buddunni sem annars myndi renna í vasa bareigenda í borg óttans.
- Líkamleg heilsa er betri.
- Andleg heilsa er í blússandi botni.
- Mætir á æfingar í vikunni á eftir án þess að líða eins og klósettbursta.
- Skýrari hugur.
- Betri blóðsykursstjórn. Dettum ekki á bólakaf í Þykkvabæjarsnakkið og flatbökuna í pervertískum löngunum.
- Betri svefn en áfengi truflar REM svefn sem hefur áhrif á svefngæðin.
- Öflugra fitutap ef það er markmiðið. Áfengi inniheldur 7 kcal/g sem veldur oft enn meiri fitusöfnun. Að sama skapi brýtur líkaminn fyrst niður etanól áður en hann fer í fitutapið.
- Meiri vöðvabygging því áfengi hægir á glýkógenmyndun og prótínmyndun í vöðvum.
- Meiri tími og orka í að gera eitthvað uppbyggilegt sem áður fór í sjónvarpsgláp með mönnum timburs.
- Minni kvíði því áfengi minnkar framleiðslu GABA taugaboðefnið sem róar taugakerfið og dregur úr kvíða.
- Meira frelsi og rými til að gera aðra hluti.
- Sjálfstraustið eykst því þú þarft enga utanaðkomandi hækju til að þora að tala við fólk eða vera þú sjálfur.
- Kemur til dyranna eins og þú ert klædd(ur).
- Manst allt sem sagt var. Hafðir fullkomna dómgreind og sjálfsstjórn.
„Virðum ákvörðun þeirra sem kjósa líf án áfengis og reynum ekki að þröngva spíra með hópþrýstingi, smánun og samviskubitsvæðingu.“