fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fókus

„Að vera 55 ára og hafa nóg að gera, það er bara geggjað. Það er gjöf.“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 28. desember 2025 20:00

Ellý Ármanns var gestur í sérstökum áramótaþætti Fókuss.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spákonan og flugfreyjan Ellý Ármanns er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Um er að ræða sérstakan áramótaþátt þar sem Ellý spáir fyrir mörgum þekktum andlitum sem voru til umræðu á nýliðnu ári.

Horfðu klippu úr þættinum hér að neðan. Smelltu hér til að horfa á hann í heild sinni eða hlusta á Spotify .

video
play-sharp-fill

Við ræddum líka við Ellý um hennar ár og spurðum: Ef þú horfir yfir liðið ár, hvað stóð upp úr?

„Það er náttúrulega bara að fá að fljúga um öll heimsins höf með Icelandair. Þetta er bara besta starf í heimi,“ segir Ellý brosandi.

„En það sem stóð upp úr hjá mér var náttúrulega þetta hjartans þakkir, sem einhvern veginn yfirtók líf mitt þarna á tímabili. Og líka fjölskyldan og ömmustelpurnar mínar […] Ég elska að vera amma. Svo á ég yndislegan kærasta sem er að taka upp þessi myndbönd fyrir mig.“

Ellý er líka að þjálfa hjá Kötlu Fitness, bæði lyftingar og endurheimt (e. recovery). Hún segir að eitt af því sem veitir henni hvað mesta gleði er að þjálfa fólk yfir sextugt.

„Það er geggjað. Það er að lyfta lóðum og það er æðislegt, þau eru komin með six-pakk! Það er framtíðin, að hreyfa sig og hugsa hvað maður er að hugsa. Hugleiða, bara eina mínútu á dag.“

Hvetur fólk til að hlusta

Þetta eru ekki hefðbundin dagvinnustörf; spákona, flugfreyja og þjálfari, hvernig skipuleggur hún sig og nær að sinna þessu öllu?

„Þetta er bara tímastjórnun. Ég þarf að vera rosalega ákveðin í að setja mörk og segja nei þegar ég þarf að gera eitthvað annað. En þetta er bara… að vera 55 ára og hafa nóg að gera, það er bara geggjað. Það er gjöf.“

Eitthvað sem þú lærðir á árinu sem þú myndir vilja miðla áfram?

„Bara hlusta… Hlusta á undirmeðvitundina, af því að stundum fáum við hugsanir sem eru ekki okkar hugsanir. Kannski eitthvað sem mamma sagði, pabbi sagði, sem einhver kennari sagði. Eða einhver sagði við mann einhvern tímann, og maður fer að trúa því og hugsa það. Þannig að maður þarf að hugsa hvað maður er að hugsa,“ segir hún.

„Hlusta á undirmeðvitundina, hlusta á hjartað. Og það sem ég veit, er að unga fólkið er svo meðvitað. Það er að manifesta og það er svo andlegt og jákvætt gagnvart öllu svona. Í gamla daga var meira svona: „Uss, ekki vera með eitthvað spádóms eitthvað…“ En í dag eru allir svo opnir.“

Smelltu hér til að horfa á áramótaþáttinn í heild sinni. Þú getur einnig hlustað á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum. 

Fylgdu Ellý á Instagram og TikTok.

Lesa meira um áramótaspá Ellýjar Ármanns:

Íslenskt samfélag 2026

Verður söngvakeppni?

Slæm tíðindi fyrir Valkyrjustjórnina

Valdamikið ár í vændum fyrir Snorra

Auddi Blö er bara rétt að byrja

Alþingiskosningar næsta haust og Íslendingur vinnur EuroJackpot

Guðmundur Ingi 

Gugga í gúmmíbát

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum
Hide picture