fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fókus

Segja frá djúpri tengingu tveggja einstaklinga sem er sönn og óumflýjanleg

Fókus
Þriðjudaginn 24. júní 2025 09:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lagið „Stundir“ er nýjasta útgáfa tónlistarmannsins Svavars H. Viðarssonar, sem samdi bæði lag og texta. Söngurinn er í höndum Ernu Hrannar, sem túlkar lagið með hlýju og næmni sem fer beint að hjartanu.

„Stundir“ segir frá djúpri tengingu tveggja einstaklinga sem er sönn og óumflýjanleg. En lífið spilar ekki alltaf með; tímasetningar, aðstæður eða óvissa innan í okkur sjálfum geta komið í veg fyrir að samband nái að blómstra. Í það minnsta í fyrstu. Samt skín vonin skært í gegnum lagið: „Allt fer eins og það á að fara.“ Þegar rétta stundin rennur upp. Augnablikið sem lætur hjörtun slá í takt. Þá verður allt skyndilega skýrt, líkt og örlögin taki við og færi okkur nær hvort öðru.

Með sumarlegum popptónum og tilfinningaþrunginni sögu er Stundir lag sem hentar bæði löngum kvöldgöngum og dýpri íhugun. Það minnir okkur á að lífið hefur sína eigin tímasetningu og stundum verður allt rétt þegar við síst búumst við því.

Svavari tekst enn og aftur að fanga tilfinningar með laginu, sem stenst fyllilega samanburð við fyrri verk hans.

Vignir Snær Vigfússon annaðist upptökustjórn, útsetningu og hljóðblöndun og tryggði að lagið flæði mjúklega inn í eyru og hjörtu hlustenda. Biggi Tryggva sá um hljómjöfnun, og dreifingu annast Alda Music.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Fór í trekant með kærustunni og vinkonu hennar – Það hafði ófyrirséðar afleiðingar

Fór í trekant með kærustunni og vinkonu hennar – Það hafði ófyrirséðar afleiðingar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leit af syninum í örfáar mínútur en það var nóg

Leit af syninum í örfáar mínútur en það var nóg
Fókus
Fyrir 6 dögum

Brynhildur og Matthías kveðja Kópavog – „Vonandi taka frábærir nýir eigendur við, við ætlum að flytja út í sveit“

Brynhildur og Matthías kveðja Kópavog – „Vonandi taka frábærir nýir eigendur við, við ætlum að flytja út í sveit“