fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fókus

Mel Gibson styður Trump: Kamala Harris með greindarvísitölu á við girðingastaur

Fókus
Föstudaginn 25. október 2024 09:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn og leikstjórinn Mel Gibson er alveg handviss hvaða frambjóðanda hann ætlar að kjósa í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum.

Gibson, sem er orðinn 68 ára, var spurður að þessu af blaðamanni TMZ í vikunni þegar hann hitti hann á alþjóðaflugvellinum í Los Angeles.

„Það mun ekki koma neinum á óvart hvern ég kýs,“ sagði Gibson.

Þegar blaðamaður þrýsti meira á hann og spurði hvort hann ætlaði að kjósa Trump sagði leikarinn að það væri gott gisk. Hann lét svo Kamölu Harris fá það óþvegið.

„Ég veit hvernig þetta verður ef við hleypum henni að. Og það mun ekki boða gott,“ sagði hann og bætti við að Kamala hefði komið litlu í verk og væri með óskýra stefnu. „Og hún er með greindarvísitölu á við girðingastaur.“

Myndband af þessu má sjá hér að neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Svali fann ástina í örmum Birnu

Svali fann ástina í örmum Birnu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 1 viku

Gerðu plötu á einni helgi

Gerðu plötu á einni helgi
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“