fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Fókus

Dó í 24 mínútur og lýsir upplifuninni

Fókus
Mánudaginn 1. janúar 2024 12:30

Lauren líður eins og hún hafi fengið annað tækifæri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin bandaríska Lauren Canaday, 39 ára, lýsir öllu því sem hún upplifði þegar hún dó í 24 mínútur. Það var snöggum viðbrögðum eiginmanns hennar að þakka að hún hafi lifað af.

Lauren fékk hjartaáfall á heimili sínu og hætti að anda, eiginmaðurinn hljóp til hennar og blés í hana lofti þar til sjúkraflutningamenn mættu á svæðið og tóku við. Það liðu heilar 24 mínútur þar til hjarta hennar hóf að slá á ný.

Lauren segir að hún man ekki mikið þegar hjarta hennar stöðvaðist og hún talin látin, en hún segir að tilfinningin hafi verið jákvæð.

„Ég er með þessa tilfinningu að þetta hafi verið vingjarnlegt og friðsamlegt. Ég sá engin form eða persónur eða eitthvað, mér fannst eins og það væri búið að leysa mig upp og það var bara mjög notalegt,“ segir hún.

Bataferlið gekk ágætlega en Lauren átti erfitt með skammtímaminnið til að byrja með og skildi ekki alveg það sem var í gangi í kringum hana.

Átta mánuðir eru liðnir og líður Lauren vel. Hún hugsar vel um heilsuna. Hún segir að sér líði eins og hún hafi fengið annað tækifæri í lífinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Blaðamaður situr í súpunni eftir meint einkaviðtal við Clint Eastwood – Hvað gerðist?

Blaðamaður situr í súpunni eftir meint einkaviðtal við Clint Eastwood – Hvað gerðist?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Mörgæsin viðurkennir að hafa girnst kattarkonuna á tökustað

Mörgæsin viðurkennir að hafa girnst kattarkonuna á tökustað
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sara upplifði verstu martröð foreldra – „Hann virðist hafa upplifað þetta sem ástarsamband milli sín og litlu dóttur minnar“

Sara upplifði verstu martröð foreldra – „Hann virðist hafa upplifað þetta sem ástarsamband milli sín og litlu dóttur minnar“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dísa um fyrstu kynni hennar og Júlís Heiðars – Heimurinn virtist staðráðinn að koma þeim saman

Dísa um fyrstu kynni hennar og Júlís Heiðars – Heimurinn virtist staðráðinn að koma þeim saman