fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Fókus

Netflix-stjarna sturlaðist á sjúkrahúsi: Yfirbugaður og handjárnaður við rúm

Fókus
Föstudaginn 16. febrúar 2024 11:03

Austin fer með stórt hlutverk í þáttunum Outer Banks.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn Austin North missti stjórn á sér þegar hann leitaði lækninga á University Medical Center-sjúkrahúsið í Las Vegas á þriðjudag.

TMZ greinir frá því að leikarinn, sem sló í gegn í þáttunum Outer Banks sem sýndir eru á Netflix, hafi slegið konu í andlitið sem var þar við störf. Þá hafi hann ýtt í andlit annarrar konu sem var við vinnu á sjúkrahúsinu.

Sú brást við með því að slá leikarann í höfuðið með einhvers konar álbakka.

Öryggisverðir voru kallaðir á vettvang og yfirbuguðu þeir hinn 28 ára gamla leikara og handjárnuðu hann við sjúkrarúm uns lögregla kom á vettvang. Er leikarinn svo sagður hafa veist að þriðja starfsmanninum.

North birti yfirlýsingu á Instagram-síðu sinni í vikunni þar sem hann lýsti iðrun sinni. Sagðist hann hafa fengið slæmt kvíðakast og muni ekki mikið eftir atvikinu.

„Mér líður illa yfir þessu sem gerðist í Las Vegas. Vinur minn ók mér á sjúkrahús þar sem ég hélt að ég væri að fá hjartaáfall. Það voru gerðar allskonar prufur, meðal annars blóðprufur, og sýndu þær að ég var ekki undir áhrifum áfengis eða lyfja. Þetta var kvíðakast sem ég var að upplifa.“

„Ég man ekki mikið eftir þessum atburðum. Ég tek það samt fram að ég ber mikla virðingu fyrir störfum heilbrigðisstarfsfólks og starfsfólks sjúkrahúsa. Ég hef barist við kvíða af og til í mörg ár og þetta var versta kastið til þessa,“ sagði hann.

Ekki liggur fyrir hvort atvikið hafi áhrif á tökur á fjórðu þáttaröð Outer Banks sem nú standa yfir. North fer með nokkuð veigamikið hlutverk í þáttunum sem notið hafa talsverðra vinsælda meðal yngra fólks.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Guðrún og Árni ræða um nekt og svara vinsælli spurningu: „Hvað ef ég fæ bóner?“

Guðrún og Árni ræða um nekt og svara vinsælli spurningu: „Hvað ef ég fæ bóner?“
Fókus
Í gær

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifavaldur tilkynnir eigið andlát rúmum mánuði eftir að frumburðurinn kom í heiminn – „Dauðinn er ógnvekjandi“

Áhrifavaldur tilkynnir eigið andlát rúmum mánuði eftir að frumburðurinn kom í heiminn – „Dauðinn er ógnvekjandi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katy Perry og Orlando Bloom eru hætt saman

Katy Perry og Orlando Bloom eru hætt saman
Fókus
Fyrir 6 dögum

Sunneva var fórnarlamb ástarsvika og tapaði milljónum – „Hann varð partur af mínu lífi mjög hratt“

Sunneva var fórnarlamb ástarsvika og tapaði milljónum – „Hann varð partur af mínu lífi mjög hratt“