fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fókus

Þau hlutu íslensku hljóðbókaverðlaunin

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 29. mars 2023 22:45

Þuríður Blær, Salka Sól, Lísa Björk, Eliza Reid, Guðni Th, Óskar Guðmunds Mynd: Árni Rúnarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ís­lensku hljóð­bóka­verð­launin, Stor­ytel Awards, voru veitt við há­tíð­lega at­höfn í Norður­ljósum í Hörpu í kvöld. Um er að ræða ár­legan við­burð þar sem hljóð­bóka­unn­endur; út­gef­endur, höfundar og lesarar fagna saman út­gáfu vönduðustu hljóð­bóka síðasta árs.

Hugleikur Dagsson var kynnir kvöldsins og vakti mikla kátínu meðal gesta þegar hann gerði tilraun til að breyta sínum eigin myndasögum í hljóðbók. Örn Árnason steig á stokk í hlutverki Afa og setti hátíðina með léttum og skemmtilegum hætti eins og honum einum er lagið auk þess sem leikarinn Mikael Emil Kaaber tók kraftmikla lagið Einn úr rokksöngleiknum Trölladans sem var sérstaklega skrifaður fyrir Storytel.

Hugleikur Dagsson kynnir kvöldsins
Mynd: Árni Rúnarsson

Sjá einnig: Þessi eru tilnefnd til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna

Verð­laun voru veitt í sex flokkum auk sérstakra heiðursverðlauna. Verðlaunahafar voru eftirtaldir:

Besta barna- og ungmennabókin:

Litla hafmeyjan 

Höfundur: Anna Bergljót Thorarensen 

Lestur: Leikhópurinn Lotta

„Litla hafmeyjan er einstaklega skemmtileg og vel gerð hljóðbók. Upphaflega var Litla hafmeyjan söngleikur sem Leikhópurinn Lotta sýndi um land allt en aðlagaði svo einstaklega vel að hljóðbókaforminu. Dómnefndin var sammála að leikgleðin hafi ráðið ríkjum þar sem heildarmyndin var virkilega sterk og allir leikarar fóru á kostum í hlutverkum sínum og ekki skemmdi fyrir frábær boðskapur varðandi náttúruvernd. Einnig var skemmtilega snúið upp á söguna um Litlu hafmeyjuna og sjá má frábæra birtingarmynd ástarinnar sem blómstar að lokum á milli konungssonarins Hlina og hafmeyjunnar Sævars.,“ segir í um­sögn dóm­nefndar.

Besta glæpasagan

Þú sérð mig ekki 

Höfundur: Eva Rún Ægisdóttir

Lestur:Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Haraldur Ari Stefánsson, María Dögg Nelsson, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Sigríður Láretta Jónsdóttir og Þórey Birgisdóttir.

„Þú sérð mig ekki eftir Evu Björgu Ægisdóttur fléttar saman mikla fjölskyldusögu við spennandi glæpasögu sem á sér stað á lúxushóteli á Snæfellsnesi. En þegar hin áhrifamikla Snæbergsfjölskylda kemur öll saman undir sama þaki er voðinn vís og gömul fjölskylduleyndarmál leita upp á yfirborðið. Bókin er metnaðarfullt verkefni og vel uppbyggð. Enn sýnir Eva Björg hvers vegna hún er einn fremsti glæpasagnahöfundur vorrar þjóðar. Góð bók verður enn betri í hljóðbókarlestri færs lesendahóps, en hann skipa : Sigríður Láretta Jónsdóttir, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Þórey Birgisdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Guðmundur Ingi Þorvaldsson og María Dögg Nelson. Hver og einn lesari gæðir persónur bókarinnar lífi, eykur áhrif söguþráðarins til muna og hjálpar hlustandanum að greina á milli persónanna. Þú sérð mig ekki er kraftmikil glæpasaga sem lifnar við á nýjan hátt í eyrum hlustanda sem vill ekki slökkva á tækinu fyrr en síðasti taktur hljóðbókarinnar slær,“ segir í um­sögn dóm­nefndar.

Besta skáldagan

Konan hans Sverris 

Höfundur: Valgerður Ólafsdóttir

Lestur: Margrét Örnólfsdóttir

„Í Konunni hans Sverris fáum við að heyra hispurslausa frásögn konu sem hefur loks fundið frelsið til að segja sögu sína á eigin forsendum. Hildur, sögukona bókarinnar, lýsir á blákaldan máta veruleika kvenna sem eru fastar árum eða áratugum saman í samböndum sem ógna lífi þeirra og heilsu. Hún hlífir hvorki sjálfri sér né geranda sínum þegar hún tekst á við sjálfsblekkinguna og réttlætingarnar sem fólk leitar í til að lifa af í slíkum aðstæðum. Saga Hildar er um margt svo kunnugleg. Lesandinn fær á tilfinninguna að andlega og líkamlega ofbeldið sem hún lýsir gæti allt eins átt sér stað í næsta húsi eða innan eigin fjölskyldu. Lestur Margrétar Örnólfsdóttur gæðir rödd Hildar bæði þroska og visku konu sem horfir til baka og syrgir glataðan tíma en finnur jafnframt fyrir styrk sínum í því að hafa lagt ofbeldið að baki og skapað öruggt skjól fyrir sjálfa sig og börnin sín.,“ segir í um­sögn dóm­nefndar.

Besta ósk­áldaða efnið

Veran í moldinni

Höfundur: Lára Kristín Pedersen

Lestur: Þuríður Blær Jóhanns­dóttir 

„Virkilega voguð og skörp frásögn höfundar á mjög áhugaverðu efni sem fáir þekkja en margir geta tengt við. Fíknin birtist okkur í mörgum myndum. Lára Kristín segir frá, opnar sig og ritar sína sögu um baráttu við matarfíkn af einlægni og heiðarleika. Hún berskjaldar sig fyrir hlustandanum og hikar hvergi við að galopna hjarta sitt og horfast í augu við þá erfiðleika og það mótlæti sem þessi erfiði sjúkdòmur hefur að geyma. Hún er sjálfsgagnrýnin og dregur ekkert undan í frásögn sinni.

Skýr lestur og áheyrileg rödd Þuríðar Blævar bætir við söguna með sinni næmu nálgun og góðri tilfinningu fyrir efninu. Frásögnin er fræðandi og aðgengileg og hentar hljóðbókarforminu vel.,“ segir í um­sögn dóm­nefndar.

Besti ljúflesturinn

Litla bakaríið við Strandgötu 

Höfundur: Jenny Colgan

Lestur: Esther Talía Casey

„Það sem fær Litla bakaríið við Strandgötu til að bera af í sínum flokki er natnin sem Jenny Colgan sýnir við að draga fram vettvang sögunnar – smáþorpið Mount Polbearne við strendur Cornwall-sýslu. Þangað flýr aðalsöguhetjan Polly í leit að andrými eftir ófarir í bæði atvinnu- og ástamálum. Á þessum heillandi útnára, sem er einungis aðgengilegur frá meginlandinu þegar sjávarföll leyfa, kynnist hún ýmsum kynlegum kvistum. Lesandinn fylgist með því hvernig Polly aðlagar sig smátt og smátt að lífinu í þessu rólega þorpi og skapar sér sinn sess á meðal þorpsbúa. Í meðhöndlun Colgan breytist þorpið og nærumhverfi þess í töfrandi veröld sem er freistandi að gleyma sér í um stund og hikar hún ekki við að nostra við jafnvel sínar smæstu persónur og gæða þær lífi. Það er því einkar aðdáunarvert hvernig þægilegur og áreynslulaus lestur Estherar Talíu Casey nær að halda utan um þetta stóra persónugallerí,“ segir í um­sögn dóm­nefndar.

Besta hljóðserían

Hundrað óhöpp Hemingways 

Höfundur: Lilja Sigurðardóttur

Lestur: Lilja Sigurðardóttir, Örn Árnason og fleiri leikraddir.

„Lilju Sigurðardóttur tekst einstaklega vel að draga upp mynd af lífshlaupi nóbelskáldsins Ernest Hemingway og nýtir til þess alla bestu möguleika hlaðvarpsmiðilsins. Persónulegur áhugi og ástríða Lilju fyrir efninu skín vel í gegn, þá helst í skálduðum samtölum sem binda listilega saman framvinduna. Hljóðupptökur eru vandaðar, hljóðvinnslan og hljóðblöndunin er til fyrirmyndar þannig að þættirnir mynda mjög sterka og áheyrilega heild,“ segir í umsögn dómnefndar. 

Að lokum hlaut heiðurs­verð­laun leikkonan Helga Elínborg Jónsdóttir fyrir ómetanlegt framlag til íslenskrar talsetningar og hljóðbóka. Helga er ein ástsælasta leikkona þjóðarinnar og hefur undanfarin ár lesið fjölda íslenskra hljóðbóka. Nú síðast las hún bókina Sálarhlekkir sem er ein vinsælasta bók ársins hjá Storytel.

Helga E Jonsdottir heiðursverðlaun
Mynd: Árni Rúnarsson
Mynd: Árni Rúnarsson
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Seldist hratt upp á Nick Cave – Aukatónleikar boðaðir

Seldist hratt upp á Nick Cave – Aukatónleikar boðaðir
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan stórglæsileg í nýju myndbandi og kom aðdáendum skemmtilega á óvart

Leikkonan stórglæsileg í nýju myndbandi og kom aðdáendum skemmtilega á óvart