fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fókus

Ísland fellur niður lista veðbankanna

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 27. mars 2023 12:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísland hefur fallið niður um fjögur sæti í veðbönkum og er nú spáð 25. sæti í Eurovision í maí.

Áður en Diljá Pétursdóttir var valin fulltrúi Íslands vorum við í 28. sæti en eftir úrslit Söngvakeppnarinnar klifruðum við hægt og rólega upp veðbankana. Við komumst hæst upp í 21. sæti um miðjan mars en síðan þá höfum við hægt og rólega farið niður.

Venjulega breytist listi veðbankanna eftir að keppendur byrja að æfa á stóra sviðinu í Liverpool.

Diljá keppir fyrir hönd Íslands í seinni undankeppninni, þann 11. maí næstkomandi í Liverpool í Bretlandi. Alls taka sextán þjóðir þátt og komast tíu áfram og keppa á úrslitakvöldinu, þann 13. maí næstkomandi.

Lag Diljár, Power, hefur hlotið mikið lof erlendra Eurovision-sérfræðinga og spekúlanta.

Sjá einnig: Diljá slær í gegn hjá Eurovision-spekúlöntum

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“
Fókus
Í gær

Khloé Kardashian greinir frá öllum fegrunaraðgerðum sem hún hefur gengist undir

Khloé Kardashian greinir frá öllum fegrunaraðgerðum sem hún hefur gengist undir
Fókus
Fyrir 2 dögum

Klámstjarna látin aðeins 28 ára gömul

Klámstjarna látin aðeins 28 ára gömul
Fókus
Fyrir 2 dögum

Steingerður leitaði til spákvenna sem reyndist versta tímasóun – „Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara“

Steingerður leitaði til spákvenna sem reyndist versta tímasóun – „Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Málið sem skók Pólland: Morðinginn afhjúpaði sig óvart í skáldsögu

Málið sem skók Pólland: Morðinginn afhjúpaði sig óvart í skáldsögu