fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Fókus

Þessar dyr geyma eitt besta og virtasta leyndarmál Laugavegar

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 13. júní 2023 18:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölfarnasta gata miðbæjarins, sjálfur Laugavegur, hefur átt sína góðu og slæma daga. Mikil umræða hefur verið um miðbæinn, hvort hann ætti að vera göngugata eða ekki, hvort verslun og menning fari hnignandi með ári hverju og Laugavegurinn aðallega áfangastaður fyrir djammara um helgar og ferðamenn dúðaða í lopapeysu og 66Norður úlpur, sem þeir geta fjárfest í í nokkrum verslunum á Laugavegi.

Þeir sem búa í miðbænum og sækja vinnu og verslun vita þó að Laugavegur er alltaf að endurnýja sig, eins og þeir bestu gera. Hurð á miðjum Laugavegi vekur athygli margra, enda Bónus í næsta nágrenni sem er iðulega troðin af ferðamönnum frá opnun til lokunar. Margir gætu haldið að hér á bak við hvíli eitthvað skuggalegt, húsið var tekið í gegn fyrir nokkru síðan og er vel viðhaldið að öllu leyti fyrir utan þessa ágætu hurð, sem er eins og sjá má útkrotuð. 

Þeir sem vita þó hvert þeir ætla láta sér engu bregða, hringja bjöllunni og er boðið í hús. Því á bak við dyrnar má finna eitt best geymda leyndarmál miðbæjarins, sem er þó ekkert leyndarmál lengur, veitingastaðinn Óx. Staðurinn hélt um helgina Michelinstjörnu sinni, sem veitingastaðnum var úthlutað á síðasta ári. Óx er hugarsmíð Þráins Freys Vigfússonar og í eigu hans, en Þráinn er velkunnur í veitingageiranum, fyrrum þjálfari Íslenska kokkalandsliðsins og matreiðslumaður ársins 2007 svo aðeins fátt sé talið.

Þráinn Freyr Vigfússon er eigandi Óx
Mynd: Valli

Óx opnaði árið 2018, tók þá aðeins 11 manns í sæti og var í litlu herbergi inn af veitingastaðnum Sumac á Laugavegi 28, sem er einnig í eigu Þráins. Nafnið ÓX er dregið af orðinu vaxa og hugmyndina að Óx fékk Þráinn eftir að hafa unnið í veiðihúsinu Kjarrá á sumrin. „Nálægðin við gestinn sem ég upplifði í Kjarrá var svo mikil og opnaði alveg þann heim fyrir mér þá,“ sagði Þráinn um staðinn við opnun. 

Lokað í nokkra daga vegna flutninga 

Í nóvember á síðasta ári flutti Óx frá Laugavegi 28 að Laugavegi 55 og var staðurinn aðeins lokaður í nokkra daga. Óx fékk eins og áður sagði Michelinstjörnu í fyrra og hætta er á að þegar slíkir loki missi þeir stjörnuna. Svo var þó ekki og var Þráni og matreiðslumönnum Óx boðið á athöfnina sem fram fór um helgina í Turku í Finnlandi. Matreiðslumenn Óx voru á meðal þeirra sem sáu um að elda ofan í gestina og elduðu þeir íslenskan rófurétt sem finna má á matseðli staðarins. 

„Þetta er náttúrulega í fyrsta skipti sem við erum að fara á hátíðina með stjörnuna þannig að það er gott að fá skilaboðin. Okkur var boðið út og þá þýddi það náttúrulega að við værum að halda henni [Michelinstjörnunni]. Auðvitað var það mjög sætt og líka mikill sigur að Sumac hélt líka sínum status sem einn af þeim stöðum sem Michelin mælir með. Það er mjög sætt að báðir staðirnir séu áfram í bókinni, eins og maður segir. Þeir treystu því að við værum að gera þetta til að gera staðinn betri og til að gera meira upp úr upplifuninni að koma á Óx. Út frá því held ég að við höfum fengið hana í fyrra og það er gaman að nýja staðsetningin hafi haldið. Við bara stefnum á að gera betur, eins og alltaf og á hverjum degi,“ segir Þráinn í samtali við Vísi. 

Óx var eins og áður sagði í litlu herbergi inn af Sumac og gengu gestir í gegnum veitingasal Sumac. Á nýja staðnum er gengið inn dimman gang, niður í garð og þaðan inn í stofu sem býður upp á andrúmsloft ársins 1976. Þaðan er farið inn í annað rými sem inniheldur veitingastaðinn sjálfan. 

Þrír staðir með stjörnu – Fjórir með sérstök meðmæli

Veit­ingastaður­inn Moss í Bláa lón­inu hlaut Michel­in-stjörnu um helgina, en það er Agnar Sverrisson sem er yfirkokkur þar. Hann hefur áður verið handhafi Michel­in-stjörnu fyr­ir veit­ingastaðinn Texture í London, staðurinn hélt stjörnunni í áratug allt þar til honum var lokað vegna kóróruveirufaraldursins.

Dill á Laugavegi 59 var fyrsti íslenski veit­ingastaður­inn til að hljóta Michel­in-stjörnuna eftirsóttu árið 2017. Staðurinn opnaði árið 2009 og Gunnar Karl Gíslason ræður ríkjum á Dill.

Fjórir veitingastaðir fengu síðan sérstök meðmæli Michel­in um helgina, Brút við Póst­hús­stræti, Tides á hót­el Ed­iti­on, Sümac á Lauga­vegi og Mat­ur og drykk­ur við Grandag­arð. 

Lesa má umfjöllun Michelin um staðina hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þráir að komast í kuldann á Íslandi – „Ég hata hita“

Þráir að komast í kuldann á Íslandi – „Ég hata hita“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lögreglan í Miami kærir stórleikarana fyrir meiðyrði vegna Netflix-myndar

Lögreglan í Miami kærir stórleikarana fyrir meiðyrði vegna Netflix-myndar