fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Fókus

Björgvin Franz bætist í leikarahóp Chicago

Fókus
Mánudaginn 5. september 2022 15:15

Björgvin Franz Gíslason og Richard Gere

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn Björgvin Franz Gíslason leikur lögfræðinginn Billy Flynn í söngleiknum Chicago sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í Samkomuhúsinu í janúar 2023. Björgvin Franz fetar þar með í fótspor Hollywood stjörnunnar Richard Gere sem lék hlutverkið eftirminnilega í kvikmyndinni sem kom út árið 2002.

Björgvin Franz hefur brugðið sér í ýmis hlutverk hja leikfélaginu síðustu misseri. Hann lék Aðalstein álfakóng í söngleikinum Benedikt búálfur og Lárensíus sýslumann í verkinu um Skugga Svein. Það verður því spennandi að sjá hann takast á við hlutverk Billys.

Þess má geta að faðir Björgvins, Gísli Rúnar Jónsson heitinn, þýddi söngleikinn Chicago.

Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, leikstýrir Chicago. Ásamt Björgvini Franz leikur Jóhanna Guðrún Velmu, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir leikur Roxý, Margrét Eir leikur fangelsisvörðinn og Arnþór Þórsteinsson leikur Amos.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Blaðamaður situr í súpunni eftir meint einkaviðtal við Clint Eastwood – Hvað gerðist?

Blaðamaður situr í súpunni eftir meint einkaviðtal við Clint Eastwood – Hvað gerðist?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Mörgæsin viðurkennir að hafa girnst kattarkonuna á tökustað

Mörgæsin viðurkennir að hafa girnst kattarkonuna á tökustað
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sara upplifði verstu martröð foreldra – „Hann virðist hafa upplifað þetta sem ástarsamband milli sín og litlu dóttur minnar“

Sara upplifði verstu martröð foreldra – „Hann virðist hafa upplifað þetta sem ástarsamband milli sín og litlu dóttur minnar“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dísa um fyrstu kynni hennar og Júlís Heiðars – Heimurinn virtist staðráðinn að koma þeim saman

Dísa um fyrstu kynni hennar og Júlís Heiðars – Heimurinn virtist staðráðinn að koma þeim saman