
Karl III kóngur er undir mikilli pressu að standa sig í starfi enda erfitt að feta í fótspor Elísabetar drottningar sem var elskuð og dáð af þjóð sinni. Á móti kemur að hann hefur meiri völd og auð sem flestir geta sig látið sig dreyma um. Hann er einnig undanþeginn lögum og hefur réttindi sem enginn annar Breti hefur.
Karl mun vera sérvitur á marga lund, sem hann kemst upp vegna stöðu sinnar.
Skoðum nokkur atriði um Kalla kóng sem kannski koma á óvart.
Þarf ekki bílpróf eða vegabréf
Þegar að Kalli fær þá flugu í kollinn að aka sjálfur bifreið í stað þess að vera ekið um af bílstjóra, sem mun ekki vera oft, þarf hann ekki að muna eftir að kippa með sér ökuskírteini.
Hann er nefnilega eini einstaklingurinn í Bretlandi sem má aka bifreið án þess að vera með bílpróf og án þess að þurfa að hafa tekið einn einasta ökutíma.
Sem vekur upp ýmsar spurningar, til dæmis hversu góður hann sé að bakka inn í stæði? Því má við bæta að kóngur má aka eins hratt og hann vill og er, einn Breta, undanskilinn öllum hraðatakmörkunum.
Kóngsi er einnig eini einstaklingur Bretlands sem ekki er skylt að hafa númeraplötu á bíl, eða réttara sagt bílum sínum. Svo sjáir þú veglegan Bentley eða Rolls Royce á akstri án númeraplötu í næstu Lundúnaferð, veistu hver þar á ferð.

Annað sem konungur þarf ekki að hafa áhyggjur af er að gleyma vegabréfinu við ferðalög. Hann er einnig eini einstaklingur Bretlands sem ekki er með vegabréf.
Vegabréf í Bretlandi eru tæknilega séð gefin út af kóngi sem eðli málsins vegna getur ekki gefið út vegabréf handa sjálfum sér.
Með vald yfir klæðaburði allra
Konungurinn hefur vald til að ákveða fatnað allra meðlima konungsfjölskyldunnar.
Almennu reglurnar eru að kóngafólkið gangi aldrei í svörtu nema meðan á sorgartíma stendur og konur þurfu alltaf að vera í sokkabuxum og ekki undir neinum kringumstæðum vera með bera leggi.

En vald konungs nær mun lengra. Hann getur bannað hvað sem honum dettur í hug. Hann hefur vald til að banna ákveðin lit, mynstur og jafnvel hárgreiðslur.
Hann er reyndar alráður um fataval fjölskyldumeðlima.
Undanskilin lögum og gæti tæknilega framið morð
Konungur Bretlands er undanskilinn lögum og reglu og það er ekki undir neinum kringumstæðum hægt að ákæra hann eða draga fyrir dóm. Ástæðan er sú að hann er æðsti aðili dómskerfisins og væri því tæknilega að ákæra sjálfan sig.
Fræðilega séð gæti því kóngur framið morð eða mannát án þess að eyða svo mikið sem mínútu innan veggja fangelsis.
Kóngur hefur einnig síðasta orðið um hver fær sæti í Hæstarétti.
Verður að samþykkja maka
Hafi meðlimur konungsfjölskyldunnar hug á að ganga í hjónaband þarf samþykki konungs. Hann lætur starfsfólk sitt kanna hvort viðkomandi hafi vafasama fortíð eða séu líklegir til að varpa skugga á hina konunglegu fjölskyldu.

Það hefur reynt á þessa reglu, til að mynda samþykkti Elísabet sáluga drottning ekki hjónaband sem Margrét systir hennar pressaði á að fá samþykkt. Ástæðan var að mannsefnið var nýlega fráskilinn sem ekki þótti góður pappír árið 1953.
Eins og flestir vita er þessi regla löngu fokin út í veður og vind enda bæði konungshjónin skilin við fyrri maka.
Karl III er æðsti yfirmaður hersins og sem slíkur hefur hann, einn manna, vald til að lýsa yfir stríði en við skulum vona að til þess komi ekki.
Fjármálin?
Þjóðhöfðingi er undanþeginn öllum skatti en árið 1992 lýsti Elísabet drottning yfir að framvegis myndi hún greiða tekjuskatt og fjármagnstekjuskatt svo og útsvar.
Líklegt er að Karl fylgi í fótspor móður sinnar en margir efast um að skattgreiðslur konungsfjölskyldunnar endurspegli í raun gríðarlegan auð hennar.
Upplýsingalöggjöf, sem samþykkt var árið 2005 í Bretlandi, gefur almenningi rétt á upplýsingum um svo að segja allt sem snýr að hinu opinbera.

Fjármál konungsfjölskyldunnar eru þó undanþegin lögunum og veit í raun enginn um umfang eigna þeirra.
Reyndar segja margir að ríkidæmi fjölskyldunnar sé best varðveitta leyndarmál Bretlands.
Getur náðað hvern sem er
Karl getur náðað hvaða fanga í Bretlandi ef hann svo kysi, sama hvað viðkomandi setur inni fyrir.
Þjóðhöfðingjar á seinni tímum hafa sjaldan sem aldrei nýtt sér þennan rétt en árið 2013 veiti þót þó Elísabet drottning Alan Turing uppgjöf saka að honum látnum. Turning var stærðfræðingur og lykilmaður við að ráða dulmál Þjóðverja í seinni heimsstyrjöldinni.

Turning var sóttur til saka fyrir samkynhneigð árið 1952 og samþykkti að vera geldur með lyfjum gegn því að losna við fangelsisvist. Hann tók eigið líf aðeins 41 árs að aldri, tveimur árum eftir dóminn.
Um var að ræða svartan blett í breskri réttarsögu.
Árið 2014 var gerð kvikmynd um ævi Turning, The Imitation Game, þar sem leikarinn Benedict Cumberbatch fór með hlutverk stærðfræðingsins. Vann kvikmyndin til fjölda verðlauna og fékk meðal annars Óskarsverðlaun.
Konungsfjölskyldan þarf aldrei að sitja í kviðdómi. Neiti Breti utan fjölskyldunnar að sitja í kviðdómi er viðkomandi aftur á móti sektaður um eitt þúsund pund.
Ræður eigin afmælisdegi
Afmælisdagur þjóðhöfðingja er opinber frídagur í Bretlandi. Flestir þjóðhöfðingjar kjósa hins vega að halda upp á tvo afmælisdaga, sérstaklega ef raunverulegan afmælisdag ber upp á vetrarmánuð. Þá velur þjóðhöfðingi sér annan afmælisdag að sumri til til að fagna.
Elísabet sáluga var til dæmis fædd í apríl en afmæli hennar var ávallt fagnað í júní. Karl er fæddur í nóvember og mun að öllum líkindum velja sér annan afmælisdag og þá að sumri til.
Kóngur eða drottning Breta á alla svani landsins og hefur svo verið frá tólftu öld. Lögin voru sett til að vernda svani gegn veiðiþjófum og enn þann dag í dag fær nýr þjóðhöfðingi ávallt titilinn ,,verndari svana” þegar hann eða hún tekur við krúnunni.
Hatar farsíma og ferðast með eigin mat
Hinn nýi konungur Bretlands er þekktur fyrir að vera sérlundaður og hatar til að mynda farsíma meira en flest annað.
Sagt er að hann hafi aldrei átt slíkan sem mun hafa farið á taugarnar á sonum hans í gegnum tíðina enda eina leiðin að ná í föður sinn í gegnum aðstoðarmenn hans.
Hann mun einnig vera afskaplega matvandur og kemur oft með eigin mat með þegar hann heimsækir vini. Hann setur einnig matreiðslumönnum sínum strangar reglur og verða egg til dæmis að vera soðin í sjö mínútur upp á sekúndu því annars lítur hans hátign ekki við þeim.
Hann er einnig mjög á móti sóun matar og krefst þess að séu leyfar frá kvöldinu áður séu þær hitaðar upp daginn eftir.
Prívat klósettseta og straujaðar skóreimar
Karl hefur fleiri siði sem kalla mætti sérvisku.
Til að mynda ferðast hann aldrei nema að hans eigin klósettseta sé í för og hann krefst þess að skóreimar hans sé strauaðar daglega. Hann mun aldrei hafa sett tannkrem á tannbursta, það er hlutverka þjóna, en hann má þó eiga að hann burstar sjálfur.
Karl ku vera hæfileikaríkur töframaður og stóðst strangt próf samtaka slíkra árið 1975. Hann er einnig góður með pensilinn og hefur haldið sýningar á verkum sínum. Árið 1984 var gefin út barnabók eftir konunginn, byggð á sögu sem hann sagði yngri bræðrum sínum þegar þeir voru börn.

Þótt að stóra ástin í lífi Karls sé Kamilla var hann alltaf óskaplega hrifin af söng- og leikkonunni Barbra Streisand. Þau hittust nokkrum sinnum en kjaftasögur um að eitthvað meira hafi farið þeim á milli munu vera vitleysa.
Talar við plöntur
Og að lokum ná nefna það sem hvað helst hefur verið notað til að gera grín að kóngsa.
Hann hefur nefnilega sagt opinberlega að hann tali reglulega við plöntur til að láta þeim líða vel. Ef plönturnar vilja ekki hlusta og dafna ekki nægilega vel að mati Kalla mun hann hafa hótað nokkrum þeirra að bæti þær ekki ráð sitt endi þær í safnhaugnum.

Aftur á móti er Karli meinilla við ketti og vill ekki sjá þá í höllum sínum. Jafnvel starfsfólk sem býr í höllunum er ekki leyft að eiga kisu ellegar missa vinnunna.
Svo mörg voru þau orð.