fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Fókus

Vinsælast á Fókus 2020 – Samanburður á verði, viðbrögð Öldu Karen og Íslendingurinn sem gleymdist

Fókus
Föstudaginn 1. janúar 2021 14:00

Mest lesið á árinu. Samsett mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið er á enda og horfum við til baka og rifjum upp það sem lesendum Fókuss þótti áhugaverðast.

Hér má sjá það sem vakti mesta athygli hér á landi og utan úr heimi.

Innlent

Svala og Kristján. Aðsend mynd.

1. Svala komin með nýjan kærasta – 21 árs aldursmunur

Söngkonan Svala Björgvins byrjaði í sambandi með 22 ára sjómanni og föður frá Grindavík, Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni. Fregnir af sambandi þeirra vöktu mikla athygli sökum aldursmunar á parinu, en Svala er 21 ári eldri en Kristján.

Katrín Björk.

2. Katrín Björk gerði samanburð á verði matvöruverslana – Niðurstaðan kom henni á óvart

Katrín Björk Birgisdóttir gerði samanburð á verði í matvöruverslunum Krónunnar, Nettó og Bónus. Niðurstaðan kom henni á óvart og þá sérstaklega hvað var lítill verðmunur á verslunum.

Sigríður og Hildur Guðna.

3. Íslendingurinn sem gleymdist á Óskarnum – Hildur var ekki eini Íslendingurinn sem var tilnefndur

Íslendingar fylltust af stolti þegar Hildur Guðnadóttir vann Óskarsverðlaun í febrúar 2020, en hún var hins vegar ekki eini Íslendingurinn sem var tilnefndur til verðlauna. Sigríður Dyekjer var tilnefnd fyrir heimildarmyndina The Cave. Hún er íslensk-dönsk og býr og starfar í Kaupmannahöfn.

Mynd Tönju Ýrar vakti mikla kátínu. Mynd/Instagram

4. Mynd Tönju Ýrar vekur kátínu – Sérð þú hvað er athugunarvert við myndina?

Athafnakonan og áhrifavaldurinn Tanja Ýr Ástþórsdóttir deildi mynd á Instagram og þegar betur var athugað sást að Tanja Ýr hafði klætt sig vitlaust í skyrtuna og vakti það mikla kátínu meðal hennar og netverja.

Alda Karen Hjaltalín. Mynd/Ernir

5. Alda Karen bregst við Skaupinu

Það var mikið gert grín að Öldu Karen Hjaltalín, fyrirlesara og ráðgjafa, í Áramótaskaupinu 2019. Alda Karen svaraði gríninu á skemmtilegan hátt á Instagram stuttu síðar og þakkaði fyrir sig.

Slúðurmiðill í Búlgaríu birti myndina til vinstri af Ásdísi.

6. Myndir af Ásdísi Rán vekja undrun – „IceQueen þyngist um 100 kíló“

Fyrirsætan og athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir birti myndir á Facebook-síðu sinni og sagði þar frá photoshop-svikum sem hún varð fyrir í Búlgaríu þar sem hún býr. Ásdís sagði óvandaðan fjölmiðil hafa birt myndir af sér sem búið var að breyta í myndvinnsluforriti til þess að láta hana líta út fyrir að vera mun þyngri en hún er.

Kristín Avon. Aðsend mynd.

7. Kristín Avon blæs á sögusagnir um faðerni dóttur sinnar – „Rétt skal vera rétt“

Áhrifavaldurinn Kristín Avon Gunnarsdóttir fékk nóg af kjaftasögunum sem gengu um faðerni dóttur sinnar. Hún taldi það vera kominn tími til að blása á sögusagnirnar.

Mynd/Getty/Torg

8. Konan sem uppljóstraði um framhjáhald í Reykjavík Síðdegis fræg á ný – „Klárlega í topp 5“

Upptaka af símtali konu til Reykjavík Síðdegis frá árinu 2007 byrjaði að fara aftur um netheima og vekja mikla lukku meðal landsmanna á ný. Kona hringdi í Reykjavík síðdegis til að tjá sig um málefni öryrkja og endaði með að upplýsa hlustendur um bólfarir mannsins síns með geðhjúkrunarfræðingi á Landspítalanum.

Vikan á Instagram er vinsæll liður.

9. Vikan á Instagram: „Hvað er skemmtilegra en að djamma með öllum sem þú dýrkar?“

Vikan á Instagram er vinsæll liður hjá DV.is sem kemur inn alla mánudagsmorgna. Við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram í vikunni sem leið.

Myndin af Garðari barnungum.

10. Myndin af Garðari barnungum – Drengur þjakaður af heimilisofbeldi

Garðar Baldvinsson rithöfundur birti ljósmynd af sér frá árinu 1969, þegar hann var 8-9 ára gamall drengur, þjakaður af ofbeldi og streitunni sem fylgdi því. Hann tjáði sig um skelfilegt ofbeldi sem hann varð fyrir af hálfu móður sinnar í æsku.

Erlent

Manstu eftir fallegustu stúlku veraldar?

1. Manstu eftir „fallegustu stúlku veraldar“? – Svona lítur hún út 9 árum seinna

Thylane Lena-Rose Blondeau var aðeins tíu ára gömul þegar hún prýddi síður Vogue og var kölluð „fallegasta stúlka veraldar“. Í dag er hún nítján ára gömul og gengur vel í fyrirsætubransanum.

C strengurinn er vinsæll hjá stjörnunum á rauða dreglinum. Mynd/Getty

2. C-strengurinn er að gera allt vitlaust

Nýstárlegar nærbuxur, sem minna frekar á hárband en undirfatnað, slógu í gegn á árinu. Nærbuxurnar voru vinsælar hjá Bretum í sumar en hafa lengi verið vinsælar hjá stjörnunum á rauða dreglinum.

Þetta auugnablik vakti mikla athygli. Mynd/Getty

3. „Vandræðalega“ augnablikið milli Donald Trump og Melaniu Trump eftir kappræðurnar

Augnablik á milli Donald Trump Bandaríkjaforseta og Melaniu Trump, eiginkonu hans, eftir fyrstu kappræður í forsetakosningunum vakti mikla athygli, þá kuldaleg heilsa þeirra hjóna. Mörgum þótti augnablikið afar vandræðalegt.

Mynd/YouTube/Dr Phil

4. Ástæðan fyrir því að foreldrar telja 15 ára son sinn vera barnaníðing

Foreldrar komu fram í sjónvarpsþætti Dr. Phil og sögðu að fimmtán ára sonur þeirra væri barnaníðingur. Þau þurftu að fjarlægja drenginn af heimilinu eftir að hann sagðist ætla að misnota yngri systkini sín.

Varaði við leðurbuxum úr Zöru.

5. Varar við leðurbuxum úr Zöru – Ástæðan sprenghlægileg

Ung kona varaði við leðurbuxum úr Zöru vegna þess að í hvert skipti sem hún beygði sig gáfu buxurnar frá sér hljóð sem hljómaði eins og prump.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Útgáfuteiti á föstudag: Hugmyndir um Ísland og Grænland í gegnum tíðina

Útgáfuteiti á föstudag: Hugmyndir um Ísland og Grænland í gegnum tíðina
Fókus
Fyrir 2 dögum

Síðasti Sjens 2025 – Stórtónleikar Retro Stefson

Síðasti Sjens 2025 – Stórtónleikar Retro Stefson
Fókus
Fyrir 3 dögum

Orlando Bloom birtir óræð skilaboð eftir sambandsslitin

Orlando Bloom birtir óræð skilaboð eftir sambandsslitin
Fókus
Fyrir 3 dögum

Afhjúpar það sem sonur hans sagði við hann rétt áður en hann gekk fram af klettabrúninni

Afhjúpar það sem sonur hans sagði við hann rétt áður en hann gekk fram af klettabrúninni