fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fókus

Varar við leðurbuxum úr Zöru – Ástæðan sprenghlægileg

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 19. október 2020 13:30

Julia Leonard varar við buxunum úr Zöru.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ung kona varar við leðurbuxum úr Zöru. Hún segir ástæðuna fyrir því vera hljóð sem buxurnar gefa frá sér þegar hún beygir sig.

Julia Leonard deildi myndbandi á TikTok á dögunum þar sem hún varaði fólk við leðurbuxum úr Zöru. Hún sagði ástæðuna fyrir því vera hljóð sem buxurnar gefa frá sér. Hún sagði einnig frá því hvernig það komst í ljós.

@julialennaaaSave yourself because I couldn’t 😭 ##zara ##leatherpants ##Boo ##funny ##embarrased ##storytime♬ original sound – Julia

„Haltu áfram að horfa ef þú verslar í Zöru. Ég keypti þessar sætu leðurbuxur í Zöru, ég var í þeim þegar ég fór út að borða með fjölskyldu minni, sem betur fer var ég bara með fjölskyldunni. Á leiðinni út missti systir mín símann sinn og ég beygði mig niður til að sækja hann, og þetta gerðist,“ segir hún og beygir sig niður. Í kjölfarið heyrist hátt hljóð sem minnir óneitanlega á prump.

Hún endurtekur hreyfinguna aftur. „Þannig ef þú ætlar að kaupa þessar buxur, ekki beygja þig,“ segir hún.

Myndbandið hefur slegið rækilega í gegn og fengið yfir 3,7 milljón áhorf. Fjölmiðlar á borð við BuzzFeed og DailyMail hafa einnig fjallað um myndbandið. Horfðu á það hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“
Fókus
Í gær

Khloé Kardashian greinir frá öllum fegrunaraðgerðum sem hún hefur gengist undir

Khloé Kardashian greinir frá öllum fegrunaraðgerðum sem hún hefur gengist undir
Fókus
Fyrir 2 dögum

Klámstjarna látin aðeins 28 ára gömul

Klámstjarna látin aðeins 28 ára gömul
Fókus
Fyrir 2 dögum

Steingerður leitaði til spákvenna sem reyndist versta tímasóun – „Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara“

Steingerður leitaði til spákvenna sem reyndist versta tímasóun – „Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Málið sem skók Pólland: Morðinginn afhjúpaði sig óvart í skáldsögu

Málið sem skók Pólland: Morðinginn afhjúpaði sig óvart í skáldsögu