fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Þessir lögmenn vita hvað klukkan slær

Erla Dóra Magnúsdóttir
Laugardaginn 25. júlí 2020 17:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á Íslandi má finna fjölda lögfræðinga og lögmanna. Sumir eru meira áberandi en aðrir. Hér eru nokkrir gífurlega vinsælir lögmenn sem vert er að fylgjast með.

Vinnuverndarinn

Varstu snuðaður um laun eða réttindi á vinnumarkaði? LÁRA V. JÚLÍUSDÓTTIR er sérhæfð í vinnurétti og höfundur margra rita sem notuð eru í lögfræðikennslu á Íslandi. Hún vakti nýlega athygli er hún tók að sér mál Kristjönu Valgeirsdóttur, fjármálastjóra stéttarfélagsins Eflingar, sem ber fyrrum  vinnuveitanda sínum ekki vel söguna. Lára hefur einnig tekið að sér mál á sviði sifjaréttar svo sem skilnaði og forsjármál.

Konungur þrotabúanna

SVEINN ANDRI SVEINSSON er konungur þrotabúanna, þó svo að margir deili oft um ágæti hans við þau störf. Hann hefur verið skipaður skiptastjóri hvers risaþrotabúsins á fætur öðru. Það kostar þó  skilding að fá Svein Andra í þrotabúið sitt en hann rukkar ríflega 40 þúsund krónur fyrir hverja klukkustund. Hann var skipaður einn skiptastjóra flugfélagsins WOW, kröfuhöfum til lítillar gleði, en margir hefðu þeir gjarnan viljað ódýrari aðila sem ekki er jafn umdeildur í starfið.

Meiðyrðameistarinn

Viltu stefna einhverjum vegna meiðyrða? Leitaðu ekki lengra. Varla fer meiðyrðamál fyrir dóm án þess að VILHJÁLMUR H. VILHJÁLMSSON komi við sögu. Tók hann meðal annars að sér meiðyrðamál Egils Einarssonar, eftir að nokkrir aðilar bendluðu hann við meint kynferðisbrot, mál manna sem sakaðir voru um kynferðisbrot í svonefndu Hlíðamáli og mál Guðmundar Spartakusar Ómarssonar gegn fjölmiðlamönnunum Sigmundi Erni Rúnarssyni og Atla Má Gylfasyni vegna umfjöllunar þeirra um meinta aðkomu Guðmundar að fíkniefnum og hvarfi Friðriks Kristjánssonar.

Réttargæslukonan

SIGRÚN JÓHANNSDÓTTIR hefur getið sér gott orð sem réttargæslumaður brotaþola í refsimálum, þá
oft í kynferðisbrotamálum. Hún er réttargæslumaður kvenna sem hafa sakað stjörnumeðhöndlarann Jóhannes Tryggva Sigurbjörnsson um kynferðisbrot, þó svo að verjandi Jóhannesar hafi farið fram á að hún hefði stöðu vitnis í málinu. Árið 2015 hóf lögmannsstofa Sigrúnar að bjóða þolendum kynferðisofbeldis upp á ráðgjöf og þjónustu, þeim að kostnaðarlausu.

Sakamálatríóið

SIGURÐUR G. GUÐJÓNSSON er hæstaréttarlögmaður sem hefur einnig haft annan fótinn í fjölmiðlun í gegnum árin. Hann hefur gegnt lögmannsstörfum fyrir marga stóra aðila í íslensku viðskiptalífi, meðal annars fyrrum bankastjóra Landsbanka Íslands, eigendur World Class og Jón Ásgeir Jóhannesson. Sem stendur er hann verjandi konu sem er grunuð um að hafa svikið fleiri milljónir út úr systrum sem glíma við Alzheimer.

ÓMAR R. VALDIMARSSON var blaðamaður og almannatengill áður en hann snéri sér að lögmennsku. Þrátt fyrir að aðeins séu fimm ár síðan að Ómar hlaut málflutningsréttindi hefur hann getið sér gott orð sem verjandi í sakamálum og er meðal þeirra lögmanna sem Afstaða, félag fanga, hefur lýst yfir trausti á.
Ómar hefur vakið athygli fyrir nýja aðferð við öflun skjólstæðinga en hann fylgdist með dagskrá dómstóla og hafði samband við sakborninga og bauð þeim þjónustu sína. Töldu sumir þessa háttsemi hans hafa valdið því að nöfn sakborninga koma ekki lengur fram í dagskrá dómstóla. Ómar lét þá gagnrýni lítið á sig fá og sagðist aðeins hafa það að markmiði að tryggja sakborningum réttláta málsmeðferð.

STEINBERGUR FINNBOGASON er á lista Afstöðu, félags fanga, yfir þá lögmenn sem félagið ber traust til. Fyrir fjórum árum var Steinbergur úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um að hann ætti aðild að farsakenndu fjársvikamáli skjólstæðings síns, en málið var látið niður falla og stefndi Steinbergur í kjölfarið ríkinu vegna þeirrar frelsissviptingar sem honum var gert að sæta. Krafðist hann um 10 milljóna króna í skaðabætur vegna málsins. Steinbergur er verjandi Jóhannesar Tryggva  Sveinbjörnssonar, stjörnumeðhöndlara, sem kærður hefur verið um kynferðisbrot gegn fjölda kvenna.

Forsjárfélaginn

Þegar kemur að forsjármálum þá heyrist oft eitt nafn nefnt. VALBORG Þ. SNÆVARR. Valborg hefur
rekið gífurlegan fjölda forsjármála í gegnum árin, við góðan orðstír og ekki á hún langt að sækja hæfnina en faðir hennar Ármann Snævarr var mikils metinn lagaprófessor sem skrifaði meðal annars umfangsmikið rit um hjúskapar- og sambúðarrétt. Eins var hann um tíð rektor Háskóla Íslands og hæstaréttardómari.

Mannréttindamógúllinn

RAGNAR AÐALSTEINSSON hefur yfir hálfrar aldar reynslu af lögmannsstörfum og hefur mikla sérhæfingu hvað varðar stjórnskipun landsins og mannréttindi. Hann er því góður haukur í horni hvers er telur sig hafa verið beittan misrétti af yfirvöldum, sem og öðrum. Hann tók meðal annars að sér mál Eflingar á hendur starfsmannaleigunni Menn í vinnu.

Á uppleið

HILDUR HJÖRVAR starfar sem lögfræðingur við Mannréttindadómstól Evrópu. Hún hlaut árið
2017 hæstu einkunn sem þá hafði verið gefin fyrir fullnaðarpróf í lögfræði og sópaði til sín öllum
verðlaunum sem voru veitt fyrir námsárangur á námstíma hennar í Háskóla Íslands. Það verður
fróðlegt að fylgjast með þessari öflugu konu í framtíðinni sem er án efa ekkert nema björt.

IVANA ANNA NIKOLIC hlaut í vor hæstu einkunn sem hefur verið veitt fyrir meistarapróf í Háskóla Íslands með 9,5 í meðaleinkunn. Hún dúxaði einnig í bakkalárnáminu og hlaut hæstu meðaleinkunn á fyrsta ári lögfræðinnar. Hún er sem stendur lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis en kveðst hlakka til að prófa sig áfram í framtíðinni.

 

Þetta efni birtist í helgarblaði DV síðustu helgi. Til að nálgast upplýsingar um áskrift er hægt að senda póst á askrift@dv.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“