fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Steindi Jr.: „Um leið og ég slaka á, þá dey ég“

Tómas Valgeirsson
Miðvikudaginn 23. október 2019 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það eru örugglega alls konar greiningar í gangi hjá mér sem kæmu í ljós ef ég myndi láta tékka á þeim. Ég er alltaf mjög orkumikill og hef verið þannig síðan í æsku. Ég sé sjálfan mig rosalega mikið í fimm ára dóttur minni. Hún vill alltaf fara í búninga og við erum bæði með leikrit á fullu. Það þarf alltaf að vera eitthvað í gangi,“ segir grínistinn Steinþór Hróar Steindórsson, þekktur af góðum landsmönnum sem Steindi Jr.

Grínistinn og framleiðandinn hefur verið sérlega áberandi upp á síðkastið vegna sjónvarpsþáttanna Góðir landsmenn. Í næstu viku frumsýnir hann svo „gay vampírumyndina“ Þorsta, sem unnin er í samstarfi við áhugamannaleikhópinn X og Hjört Sævar Steinason, en fyrr nefndir þættir hafa sýnt í grófum dráttum frá óvenjulegri tilurð, fjármögnun og sköpun bíómyndarinnar. Steindi er nýr gestur Föstudagsþáttarins Fókuss og segir þar frá svefnlausum dögum framleiðsluferlisins, því sem knýr hann áfram og listinni að slaka á með góðum símahrekk.

Þakklátt djöflasýrunni

Þorsti er fyrsta kvikmyndin sem Steindi framleiðir og jafnframt „fyrsta alvöru íslenska B-myndin“ að hans sögn. Myndin fjallar um Huldu, konu sem er grunuð um að hafa valdið dauða bróður síns og er því til rannsóknar hjá lögreglu. Eftir að hafa verið sleppt úr varðhaldi rekst Hulda rekst á mörg þúsund ára gamla, einmana og samkynhneigða vampíru, sem leikin er af Hirti, sem hjálpar henni að vekja bróður hennar til lífs aftur. Þá magnast farsinn þegar óvinir nálgast úr öllum áttum og þar á meðal óhugnanlegur sértrúarsöfnuður.

Steindi telur þetta vera hreinræktaða stemningsmynd, gerða til að bæta lit í einsleitt úrval í kvikmyndahúsum. „Þegar ég fer í bíó í dag liggur við að það sé stór ákvörðun. Önnur hver mynd í dag er tveir og hálfur tími eða þrír klukkutímar og fylgir því heilmikið skipulag í kringum það. Þorsti er ekki nema 85 mínútur og er ekta svona mynd sem þú getur átt stemningu yfir með félögunum,“ segir Steindi og tekur fram að einfaldar afþreyingarmyndir vanti í íslenska kvikmyndagerð.

Venjuleg íslensk bíómynd kostar heilmikið. Maður skilur að það sé ekki hægt að fá þennan aur til baka með einungis bíóaðsókn. Það þarf að leita í styrki erlendis og þá kemur danskt eða pólst „krú“ í huga. Auðvitað skilur maður þetta, þetta er rosalega dýrt og peningarnir þurfa að skila sér. Mér finnst samt líka vanta kvikmynd sem er hrein skemmtun. Það er ekki verið að eltast við endurgerðir eða sýningarétt eða verðlaun,“ segir hann. „Ég held að fólk verði þakklátt fyrir að fá alvöru djöflasýru.“

Í fimmta gír

Steindi segir Góða landsmenn og Þorsta vera eitt verk í hans huga, þótt hvort tveggja séu sjálfstæð verk. Framleiðsluferli kvikmyndarinnar hefur annars vegar verið óvenjulega hratt og hafa Steindi og hans teymi verið í kappi við klukkuna til að skila fullkláruðu verki í kvikmyndahús á tilsettum tíma.

„Þetta varð miklu stærra allt en það átti að verða. Ég er þó ógeðslega ánægður að sú hafi orðið raunin. Ég er búinn að vera í fimmta gír, stanslaust, og ég held að þetta sé þannig að um leið og ég slaka á þá dey ég. Þetta er auðvitað bara törn og fer sem betur fer að ljúka, en svo fer ég á heilsuhæli í tvær vikur og tek því rólega þar,“ segir Steindi. „Við urðum að standa við þessa dagsetningu, annars hefði myndin ekki verið sýnd.“

Lokaþátt Góðra landsmanna eiga Steindi og teymið enn eftir að klára og fer hann í loftið daginn á undan frumsýningu myndarinnar, en hópnum tókst að skila af sér Þorsta aðfaranótt föstudags. „Réttar sagt var myndin í raun tekin af okkur, en ég held að það sé fínt. Þegar fólk er farið að vinna of lengi í einhverju fer það í alls konar hringi með verkefnið, það fer að hata verkefnið eða vill ekki leyfa neinum að sjá,“ segir Steindi.

Hinn fullkomni símahrekkur

Steindi segir nauðsynlegt að kúpla sig frá eftir strembnar tarnir. Þá þykir honum gaman að hitta félaga sína með það að markmiði að rúnta og gera símaat. „Ég á mjög skemmtilegan vinahóp í Mosfellsbæ, sem eru fyndnustu menn á jörðinni. Þótt ég sé sjálfur 34 ára gamall, og við félagarnir það allir, þá erum við búnir að fullkomna símaat alveg gjörsamlega,“ segir Steindi.

„Við fundum hinn fullkomna símahrekk, sem gengur þannig fyrir sig að við eltum pítsusendil og sjáum nákvæmlega hvert hann fer. Svo flettum við upp nágrönnum manneskjunnar sem pantaði sér pítsuna og hringjum í þá. Þá segjumst við vera fólkið í næsta húsi, þykjumst vera sá sem pantaði og segjum: „Heyrðu, við erum með heila sextán tommu pítsu, vilt þú ekki bara sleppa því að elda í kvöld og ná í nokkrar sneiðar hérna hinum megin?“

Fólki finnst þetta náttúrulega bara geggjað boð. Það heldur kannski í fyrstu að það sé verið að fokka í því, en það gengur yfirleitt síðan í næsta hús. Það bankar svo á dyrnar og þá mætir því auðvitað þessi gífurlega pítsulykt og allar efasemdir hverfa,“ segir Steindi.

„Þetta verður svo óþægilegt og við félagarnir liggjum við bílrúðuna. Þá heyrir maður nágrannann droppa línuna: „Hvað segirðu? Er ekki til eitthvað auka?“.“

Þá segir Steindi að þeir félagarnir séu með „plan B“ ef þessi hrekkur klikkar. „Þá hringjum við í gaurinn sem pantaði pítsuna og segjum: „Þetta er gaurinn í næsta húsi. Heyrðu, við erum með börnin og sáum pítsubílinn, ekki væri séns að fá eina sneið yfir til að róa þau?“ Ég hef séð mann ganga yfir í næsta hús, í grenjandi rigningu, haldandi á pítsusneið og banka,“ segir Steindi.

Þáttinn má finna í heild sinni á DV.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar