

DV sagði frá því í morgun að breska hjólreiðasambandið hefði vísað einum aðildarklúbbi sambandsins úr því. Um er að ræða klúbbinn Porn Peddalers Cycle Club, eða Klámhjólaklúbbinn. Íslendingar eiga liðsmann í klúbbnum, klámstjörnuna Tinnu Gunnarsdóttur sem gengur undir nafninu Tindra Frost.
Sjá einnig: Tinna er íslensk klámstjarna í London: Hlaut Óskarinn í klámi – Kemur aldrei aftur heim
Á Instagram-síðu sinni segist hún hafa gengið til liðs við klúbbinn fyrir einu ári.
„Þvílíkt ævintýri sem þetta hefur verið. Það er ekki aðeins æðislegt að hjóla með samstarfsmönnum mínum úr klámbransanum heldur höfum við einnig safnað miklum pening fyrir Terrence Higgins Trust,“ skrifar Tinna, en Terrence Higgins Trust eru góðgerðarsamtök sem hafa það að markmiði að útrýma HIV-smitum í Bretlandi og auka kynheilbrigði Breta.
https://www.instagram.com/p/But2ft7gTQV/
„Nú hefur hjólaklúbburinn okkar misst aðild sína að breska hjólreiðasambandinu. Vinna okkar og styrktaraðila okkar er umdeild en ég held að við getum öll verið sammála um að hjólreiðar ættu að vera fyrir alla,“ bætir Tinna við.
Stuðningsyfirlýsingum hefur rignt yfir Tinnu í athugasemdum á Instagram en Tinna segir að hún og hjólreiðafélagar hennar ætli ekki að láta deigan síga.
„Við látum þetta ekki stoppa okkur.“
https://www.instagram.com/p/BnQV8JRgKD4/