fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
Eyjan

Hermann Björnsson: Mikil tækifæri í því að vera eina tryggingafélagið sem er óháð banka

Eyjan
Sunnudaginn 29. mars 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú eru öll stóru tryggingafélögin annaðhvort komin í samstarf við tiltekinn banka eða komin í eigu banka. Nema Sjóvá. Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, telur mikil tækifæri felast í því að geta fókuserað á tryggingar í stað þess að vera bara hluti af því sem einhver banki er að bjóða. Hann telur hættu á að tryggingahlutinn líði fyrir það að vera hluti af fyrirtæki sem hefur mörg tekjusvið og í því felist tækifæri fyrir Sjóvá. Hermann er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Hermann Björnsson - 3
play-sharp-fill

Hermann Björnsson - 3

Nú er svo komið að viðskiptabankarnir eru komnir í samstarf eða eiga tryggingafélög. Og nú er aðeins eitt tryggingafélag sem stendur sjálfstætt og það er einmitt Sjóvá. Maður veltir fyrir sér, einhver er tilgangurinn með þessu nána samstarfi eða jafnvel eignarhaldi milli banka og tryggingafélaga, þannig að það hljóta að vera einhverjir kostir í því. Hver er ykkar staða sem eruð eina sjálfstæða tryggingafélagið?

„Okkar staða er góð. Það þarf ekki að vorkenna okkur. Hún er mjög góð og við metum þennan breytta markað þannig að hann er mjög áhugaverður, býsna áhugaverður á mörgum sviðum, getum við sagt. Við metum okkar tækifæri þannig að við erum áfram sjálfstætt fókuserað tryggingafélag. Þegar tryggingafélag fer inn í svona stóran samruna þar sem bankarnir eru kannski með mjög mörg önnur tekjusvið heldur en bara bankapartinn í þessu, eignastýringar og fleira, fyrirtækjaráðgjöf og nefndu það. Þannig að oft er það þannig að kannski yfirstjórn þar hefur ekki alveg jafnan fókus á það sem ætti að hafa fókus á, meðal annars í þeim skilningi þá er einföldunin betri okkar megin. Það eru svolítið svona skilaboðin til okkar viðskiptavina. Við erum bara fókuseruð, konsentreruð á tryggingar. Það er okkar fag og við ætlum að sinna því vel. Við erum með um 34% hlutdeild á markaði þannig þannig að við stöndum sterkt.

En auðvitað er farið í þessa vegferð vegna þess að menn trúa á einhvers konar árangur af því og hann getur alveg verið til staðar. Það sem við til dæmis merkjum í því að það er ekki alveg einsýnt að viðskiptamaður tryggingafélagsins sé tilbúinn í þessi samskipti eða vilji ráðstafa sér og sínum hagsmunum inn í bankann og öfugt. Og í sjálfu sér líka finnst manni svolítið áhugavert að það eru margir ,sérstaklega af þessum sterkari aðilum, sem segja: „Ég vil sjálfstæðið, ég vil ekki vera háður svona einum aðila um allt.“ Þannig að ég er að segja að í þessu felast tækifæri eiginlega fyrir báða aðila, alveg klárlega, en alls ekki síður okkur.

En svo er það þannig líka og ég hef sagt það, að við þurfum að passa í öllu þessu að sagan er ekkert endilega með þessum samrunum.“

Nei, nei, við höfum séð þetta gerast áður og fara svo aftur í hina áttina.

„Það er mjög skammt síðan það var og það er líka lengra. Ég var starfsmaður Íslandsbanka þegar Íslandsbanki og Sjóvá runnu saman á sínum tíma. Það gekk ekki eftir og það sem oft er hættulegt í þessu er að aðilar fara svolítið svolítið í svona Excel-æfinguna eða PowerPoint-æfinguna og út úr því kemur eitthvað mjög áhugavert.“

Það kemur ekkert skárra en innslátturinn býður upp á.

„Nákvæmlega og þar stundum er gert ráð fyrir einhverju sem föstu, eins og viðskiptavinasambandinu. Það er ekki fasti. Númer tvö, þá er gert ráð fyrir því að það sé alveg sjálfgefið að það náist einhver einhver samlegð út úr því að renna saman deildum sem eru með kannski sérhæfða þekkingu, upplýsingatækni, lögfræði, fjárhagsbókhald eða eitthvað slíkt. En þarna eru hins vegar fyrirtæki sem í grunninn eru bara nokkuð ólík og ef þú ætlar að ganga svolítið langt í samlegðinni þarna, þá hefur það verið reyndin. ég er ekki að segja að það endilega verði núna, en það hefur verið reyndin, bæði í Evrópu og hér, að þessi samlegð komi á kostnað einhvers. Það er einhver sem verður svolítið undir í því. Og menn geta svo sem getið sér til um það hvort það verður litla tryggingafélagið eða bankinn sem verður undir.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Hvað er sannleikur?

Jón Gnarr skrifar: Hvað er sannleikur?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir
Hide picture