Sú útreið sem Trump og flokkur hans fékk í Bandaríkjunum mun hafa víðtæk áhrif langt út fyrir Bandaríkin sjálf. Trumpismi hefur rutt sér til rúms í ýmsum löndum Evrópu og einnig á Íslandi. Í kosningunum var Trump og Trumpisma gjörsamlega hafnað sem mun leiða til þess að unnt verður að stemma stigu við gáleysislegri stefnu forsetans í mörgum málum þó ætla megi að hann geti haldið áfram að framfylgja rangri stefnu næstu tvö árin en engan veginn af sama krafti og verið hefur.
Orðið á götunni er að ákafir Trumpistar á Íslandi hafi orðið fyrir miklu áfalli þegar ljóst varð að Demókratar í Bandaríkjunum unnu ekki bara sigur, heldur stórsigur á öllum sviðum. Kjósendur völdu allar færar leiðir til að koma á framfæri óánægju sinni með Trump og gerðu sitt ýtrasta til að þagga niður í honum og hættulegri stefnu hans. Það hefur verið furðulegt að fylgjast með þingmönnum Sjálfstæðisflokksins hvernig þeir hafa smátt og smátt færst æ lengra til öfgahægri og tileinkað sér vinnubrögð og stefnu Trumps. Það hefur komið fram í auknu skilningsleysi á högum fólks og vaxandi kulda í afstöðu til almennings.
Sjálfstæðismenn hafa talað fyrir því að auka tengsl við Bandaríkin á kostnað tengsla við Evrópu. Formaður og varaformaður flokksins fóru nýlega til fundar við öfgasamtök í Bandaríkjunum eins og skýrt var frá í fjölmiðlum. Svo virðist sem talsvert hafi skort á að þau skildu þó orðræðuna sem fram fór vegna skorts á enskukunnáttu. Þá hefur örlað á Rússadekri hjá Sjálfstæðismönnum eins og hjá fyrrum forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, sem virðist vera orðinn bandamaður Sjálfstæðisflokksins í vaxandi mæli – nema um hrein elliglöp sé að ræða hjá honum.
Orðið á götunni er að Miðflokkurinn „státi“ ekki lengur af því einn að tileinka sér Trumpisma. Sjálfstæðismenn hafa verið að herða sig í slíkri stefnumótun. Það er svonefndur Miðflokksarmur Sjálfstæðisflokksins sem þar er mest áberandi. Einkum er um að ræða Jón Gunnarsson, Guðlaug Þór Þórðarson, Rósu Guðbjartsdóttur, Jens Garðar Helgason og sjálf Guðrún Hafsteinsdóttir hefur verið að sogast inn í þennan hóp.
Fróðlegt verður að sjá hvernig íslenskum Trumpistum reiðir af eftir að stefnunni hefur verið hafnað í ríki upphafsmannsins sjálfs. Íslensku Trumpistarnir hafa mænt á leiðtogann fullir lotningar og tekið sér hann til fyrirmyndar. En nú er hann fallinn af stalli.
Orðið á götunni er að íslenskir Trumpistar muni nú sleikja sár sín og velta fyrir sér framhaldinu eftir að andlegur leiðtogi þeirra hefur verið niðurlægður af eigin þjóð.