Ég hlýt að vera að slá Evrópumet í tilgerð þar sem ég sit við stóra eikartunnu á þakbarnum á bjórsafninu í Brussel og skrifa þennan pistil í innbundna leðurbók með rauðum penna, umkringd frönskumælandi ferðamönnum. Ef ég væri ekki ég myndi ég æla á mig.
Ferðafélagar mínir standa úti á svölum með svissneskum og norskum laganemum og ræða turninn á ráðhúsinu, sem þeim finnst minna á Disney-kastala. Turninn var fullgerður árið 1455 og hefur því töluvert forskot á Walt Disney. En maður notar þau menningarlegu viðmið sem maður hefur.
Ég er hér í fræðsluferð ELSA, samtaka evrópskra laganema. Tæplega fimmtíu laganemar frá aðildarlöndum EFTA eru samankomnir til að heimsækja alþjóðastofnanir og sendiráð. Við hlustum á erindi, spyrjum spurninga og skoðum aðstæður sem gætu einn daginn orðið hversdagslegar. Skrifstofur, fundarherbergi, fólk með aðgangskort. Allt það sem getur fengið laganema til að finna fyrir einhverju sem líkist kynferðislegri spennu.
Það er auðvelt að verða spennt fyrir möguleikunum hér en mun erfiðara að verða spennt fyrir borginni sjálfri.
Í sannleika sagt verður Brussel ljótari því oftar sem ég kem hingað.
Á köflum liggja byggingarnar saman eins og kramin síld í tunnu. Gler, steypa, múrsteinn og auðir gaflar. Gamalt hús stendur við hlið skrifstofublokkar sem virðist hafa lent á lóðinni fyrir mistök. Þetta er ekki það skemmtilega ósamræmi sem verður þegar borg fær að eldast í setlögum. Mér finnst þetta frekar líta út eins og einhver hafi misst þolinmæðina.
Það kemur síðan í ljós að þessi tilfinning á sér sögulegan bakgrunn. Nafn líka.
Brusselvæðing.
Hugtakið er notað um borgarþróun þar sem fasteignaframkvæmdir og nútímavæðing ganga á eldri byggð og lífsgæði íbúanna. Að sögn skipulagsfræðingsins Géry Leloutre varð það til í mótmælabaráttu í Brussel undir lok sjöunda áratugarins. Það lýsti framkvæmdum sem íbúar töldu vera að eyðileggja hverfin þeirra. Síðan hefur það öðlast almennari merkingu í skipulagsumræðu.
Það er sérstakt hlutskipti fyrir borg að verða alþjóðlegt viðvörunarhugtak í skipulagsmálum.
Eitt frægasta dæmið er Maison du Peuple, hús eftir Victor Horta sem var opnað árið 1899. Þetta var alþýðuhús í býsna bókstaflegum skilningi. Þar voru verslanir, kaffihús, bókasafn, fundarsalir og aðstaða til læknisþjónustu. Efst var hátíðarsalur. Húsið var eitt af frægustu verkum Horta og var rifið árið 1965.
Þar þarf ekki að ímynda sér að einhver hafi sofnað á fundi. Niðurrifið mætti alþjóðlegri andstöðu. Í sýningarskrá Bozar um Horta er lýst hvernig Jean Delhaye, fyrrverandi samstarfsmaður hans, tók þátt í að skipuleggja mótmælin árið 1963. Sjö hundruð undirskriftir gegn niðurrifinu dugðu ekki. Belgíski sósíalistaflokkurinn hélt fast við áformin um nýja byggingu með níutíu metra skrifstofuturni.
Samkvæmt Elisabeth Horth, þáverandi aðstoðarforstöðumanni Horta-safnsins, þótti gamla húsið gefa flokknum úrelta ímynd. Nýbyggingin átti betur við hugmyndir hans um nútímann.
Mér finnst töluvert verra að vita þetta en að halda að enginn hafi áttað sig á verðmætunum. Fólk áttaði sig á þeim. Það mótmælti. Húsið var samt rifið.
En Brusselvæðing snerist ekki bara um einstök merkishús. Í norðurhluta borgarinnar var ráðist í framkvæmd sem hét Manhattan-áætlunin. Nafnið gefur ykkur hugmynd um hversu hófstillt þetta var.
Samkvæmt skjalasafni arkitektúrmiðstöðvarinnar CIVA fól borgarstjórn Brussel arkitektastofunni Groupe Structures árið 1960 að vinna skipulag fyrir um 53 hektara svæði við Norðurstöðina. Eftir rannsókn á hverfinu lagði stofan til að það yrði allt rifið og nýtt hverfi reist með verslunum, íbúðum og skrifstofum.
Meðal helstu drifkrafta Manhattan-áætlunarinnar voru fasteignaþróunaraðilinn Charles De Pauw og stjórnmálamaðurinn Paul Vanden Boeynants, sem gegndi meðal annars ábyrgðarstöðum í borgarstjórn Brussel. Þarna voru því bæði viðskiptahagsmunir og pólitískur stuðningur að baki.
Útfærsla áætlunarinnar frá 1966 gerði ráð fyrir um sjötíu háhýsum. Gangandi vegfarendur áttu að fara á milli bygginga eftir gönguleiðum í þrettán metra hæð. Um hverfið áttu að liggja hraðbrautir. Skipulagið var samþykkt árið 1967 og fyrstu skref í eignarnámi hófust sama ár. Samkvæmt rannsókn félagsfræðingsins Alberts Martens þurftu um tólf þúsund manns að yfirgefa hverfið. Tólf þúsund manns eru svolítið annað umræðuefni en hvort mér finnist skrifstofublokk ljót.
Uppbyggingin fylgdi heldur ekki niðurrifinu á þeim hraða sem til stóð. Efnahagskreppa áttunda áratugarins setti strik í reikninginn, félagslegu húsnæði, sem átti að taka við íbúunum seinkaði og stór svæði stóðu auð fram á tíunda áratuginn. Eignarnám og niðurrif tók meira en áratug en enduruppbyggingin meira en fjóra. Sveitarfélögin sátu á landi sem erfitt reyndist að fá einkaaðila til að byggja á.
Þegar ég spyr hver hafi eiginlega samþykkt Brussel eru því sannarlega til svör. Borgarstjórn fól arkitektum að skipuleggja, stjórnmálamenn studdu framkvæmdahugmyndir og þróunartýpur í fasteignabraski komu þeim áfram. Íbúarnir voru líka þarna, þótt þeir sæjust kannski illa á teikningunum.
Þetta breytir dálítið göngutúrnum. Ég byrjaði á að pirra mig á ósamstæðum húsum. Nú langar mig að sjá ljósmyndir af því sem stóð þarna áður og vita hvert fólkið fór.
Uppi á þakbarnum sé ég yfir þökin, borgin skánar í myrkri. Ráðhústurninn stendur upp úr og þau lýsa viljandi upp fallegar byggingar og sleppa hinum. Þetta er á endanum bara hugarfarið. Eða minnið. Eða spurning um hver skrifar söguna og hvaða saga er sögð.