Ein jörð – ein fjölskylda – ein framtíð
Hvers konar jörð ætlum við að skilja eftir handa börnum okkar og barnabörnum? Verður hún vettvangur friðar og samvinnu eða átaka um völd, auð og auðlindir?
Þann 15. janúar 1994 birtist grein eftir mig í Morgunblaðinu, „Lífssýn til framtíðar“. Þar setti ég fram einföld leiðarljós: Að bera virðingu fyrir öllu lífi, gera jörðina byggilega komandi kynslóðum, vinna að friði og kærleika, virða menningu annarra þjóða og leysa deilur með samningum.
Rúmum 32 árum síðar spyr ég: Höfum við færst nær þessari lífssýn eða fjær henni?
Við höfum náð stórkostlegum framförum í vísindum og tækni. Aldrei höfum við haft meiri möguleika til að skapa öllum jarðarbúum betra líf. Samt einkennist heimsmyndin af stríðum, ótta, ójöfnuði og vaxandi áhyggjum af framtíð jarðar.
Friður er forsenda hamingjuríks lífs
Friður, mannréttindi og sjálfbærni eru órjúfanleg heild. Án friðar verður erfitt að tryggja mannréttindi og sjálfbæra þróun. Án réttlætis og virðingar verður friðurinn brothættur.
Við eigum aðeins eina jörð. Við höfum ekki rétt til að ganga á lífsskilyrði komandi kynslóða vegna valdabaráttu eða skammtímahagsmuna.
Þess vegna þurfum við að gera meiri kröfur til þeirra sem fara með völdin. Leiðtogar verða að hafa hugrekki til að ræða við andstæðinga sína og leita lausna áður en fleiri mannslíf glatast.
Höfðafundurinn sýndi hvað er mögulegt
Í október 1986 hittust Ronald Reagan og Míkhaíl Gorbatsjov í Höfða. Heimurinn hafði lengi búið við ótta við kjarnorkustríð. Þótt ekki næðist endanlegt samkomulag varð fundurinn mikilvægur áfangi í afvopnunarviðræðum stórveldanna.
Nú, 40 árum síðar, stöndum við aftur frammi fyrir vaxandi spennu og vígbúnaðarkapphlaupi. Hvers vegna ættum við Íslendingar ekki að nýta reynsluna af Höfðafundinum og taka nýtt frumkvæði í þágu friðar?
Ísland hefur ýmsa kosti
Ísland er fámenn eyþjóð án fastahers, með sterka lýðræðishefð, mannréttindavernd og trúfrelsi. Við höfum jafnframt verið í fremstu röð þjóða í jafnréttismálum.
Landfræðileg lega okkar getur einnig verið styrkur. Hér væri hægt að skapa öruggt umhverfi þar sem samningsaðilar fá næði til að ræða erfiðustu málin án stöðugs áreitis.
Ísland er aðili að Atlantshafsbandalaginu og því ekki hlutlaust í öryggismálum. Það útilokar þó ekki að við getum boðið traustan vettvang fyrir viðræður, að því gefnu að samningsaðilar treysti fyrirkomulaginu.
Við þurfum heldur ekki að byrja frá grunni. Á Íslandi starfar þegar Höfði friðarsetur Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands. Hér er einnig þekking á alþjóðlegu samstarfi um frið, jafnrétti og þátttöku kvenna í sáttamiðlun.
Í október var haldin alþjóðlega friðarráðstefnan Imagine Forum í Hörpu í tilefni af 40 ára afmæli Höfðafundarins.
Þetta er grunnur sem við eigum að byggja á.
Sameinum kraftana með Sameinuðu þjóðunum
Víða um heim starfa stofnanir með áratugareynslu af friðarviðræðum. Má þar nefna CMI í Finnlandi og Centre for Humanitarian Dialogue í Sviss. Sameinuðu þjóðirnar hafa einnig þróað leiðbeiningar um árangursríka sáttamiðlun.
Við þurfum því ekki að finna upp nýjar aðferðir þar sem mikil þekking er þegar til staðar.
Ég legg til að Ísland taki frumkvæði að alþjóðlegri vinnuráðstefnu árið 2027 í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar, norrænar friðarstofnanir og aðra reynda sáttasemjara.
Markmiðið verði að sameina þekkingu og þróa hagnýtar leikreglur sem auka líkurnar á árangursríkum friðarviðræðum.
Reykjavíkursáttmáli um friðarviðræður
Á ráðstefnunni mætti vinna að drögum að Reykjavíkursáttmála um friðarviðræður. Sáttmálinn byggðist á alþjóðalögum, mannréttindum og leiðbeiningum Sameinuðu þjóðanna. Þar yrðu meðal annars skilgreindar reglur um gagnkvæma virðingu, trúnað, öryggi, þátttöku kvenna og þeirra samfélaga sem átökin bitna á, áframhaldandi samtal og eftirfylgni samninga.
Samningsaðilar gætu samþykkt þessar leikreglur áður en formlegar viðræður hefjast.
Enginn yrði þvingaður til samninga, en þátttakendur myndu skuldbinda sig til að vinna af heilindum að friðsamlegum lausnum og ákveða hvernig viðræðum yrði fram haldið þótt samkomulag næðist ekki á fyrsta fundi.
Árangurinn yrði ekki mældur í fjölda ráðstefna eða yfirlýsinga, heldur í því hvort tekst að stöðva ofbeldi, vernda mannslíf og stuðla að varanlegum friði.
Friðurinn byrjar hjá okkur sjálfum
Í Qigong og lífsrækt legg ég áherslu á að við ræktum með okkur innri ró, virðingu og góðvild. Að við lærum að staldra við, hlusta og skilja sjónarmið annarra áður en við bregðumst við. Þessi hugsun á ekki síður við um samskipti þjóða.
Við þurfum ekki að vera sammála um allt en við verðum að geta rætt ágreining án þess að gera hvert annað að óvinum.
Friður verður ekki byggður á ótta og hatri. Hann þarf að byggjast á virðingu, réttlæti og vilja til samvinnu.
Tökum næsta skref
Ég legg til að utanríkisráðuneytið, Höfði friðarsetur og aðrir íslenskir samstarfsaðilar kanni möguleikana á alþjóðlegri vinnuráðstefnu árið 2027.
Fyrsta skrefið gæti verið lítill undirbúningshópur sem leitaði samstarfs við Sameinuðu þjóðirnar og reyndar friðarstofnanir. Við þurfum ekki endilega nýjar stofnanir eða stórar byggingar. Við þurfum fyrst og fremst sameiginlegan vilja og fólk sem er tilbúið að vinna að friði.
Við Íslendingar getum ekki stöðvað öll stríð. En ef við getum hjálpað til við að skapa aðstæður þar sem leiðtogar setjast niður, ræða ágreining og finna lausnir sem bjarga mannslífum, þá höfum við lagt okkar af mörkum.
Fyrir 40 árum opnuðum við dyrnar í Höfða. Getum við nú sameinast um að opna þær aftur og gera Ísland að alþjóðlegum vettvangi þar sem þjóðir leita friðar í stað átaka?
Ein jörð – ein fjölskylda – ein framtíð.
Höfundur er formaður stjórnar Öldungaráðs Viðreisnar, viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun, friðarsinni og Qigong-kennari.