Á dögunum gerði ég hér að umtalsefni vanheilagt bandalag Vinstrisins (eða Die Linke) í Berlínarborg við islamska öfgahópa og arabíska bófaflokka. Í nýjasta hefti Spiegel er því ljóstrað upp að Elif Eralp, oddviti flokksins í Berlín, óttist „þetta fólk“ eins og hún orðar það sjálf („Angst vor diesen Leuten“). En þar vísar hún einmitt til islamista sem fóru mikinn í stuðningi við Vinstriflokkinn í aðdraganda kosninganna í Berlín. Meðal þeirra voru stuðningsmenn hermdarverkasamtaka Palestíuaraba en einnig voru arabísk glæpagengi virkjuð í baráttunni eins og ljóstrað hefur verið upp um í þýskum miðlum.
Vikuritið Spiegel greindi frá ótta Eralp að því að sagt er í óþökk hennar en Ulf Poschardt, útgefandi stórblaðsins Welt, telur að þar sé hallað réttu máli. Mun líklegra sé að þarna birtist okkur neyðarkall úr dýpstu afkimum sálar róttæks vinstrimanns. Í fyrsta sinn í sögu þýska Sambandslýðveldisins er róttækur flokkur (arftaki austur-þýska kommúnistaflokksins) nærri því að komast að kjötkötlunum; öðlast meiriháttar áhrif og sjálfsagt í startholunum að vinna að ýmsum þeim hugðarefnum sem sett voru á oddinn í kosningabaráttunni; til dæmis að berjast fyrir því að öllum innflytjendum verði veittur kosningaréttur óháð dvalarleyfi í landinu. En þetta daður Vinstriflokksins við miður geðsleg öfl ætlar undir eins að koma þeim í koll.
Stjórnmálaómenning
Goethe byggði Faust á þýskri þjóðsögu um mann nokkurn er átti að hafa selt djöflinum sál sína til að geta notið lífsins í sem fyllstum mæli. Poschardt líkir tengingum Vinstrisins við islamista (eða „islamfasista“ eins og hann kallar þá) og arabíska bófaflokka við samning Fausts við þann í neðra. Vinstrið sé í reynd miklu öfgafyllri flokkur en AfD sem er á hinum jaðri hins pólitíska áss. En ólíkt AfD nýtur Vinstrið velvildar margra blaðamanna og um flokkinn hefur ekki verið reistur eldveggur (þ. Brandmauer) líkt og um AfD sem merkir að allir flokkar útiloka hann sem samstarfskost (og vitaskuld ætti það sama að gilda um Vinstrið væru menn sjálfum sem samkvæmir). En Poschard veltir því jafnframt upp hvort hin breiða borgaralega miðja sé nokkru skárri þar sem hún skirrist við að taka á vandanum af festu og spyr hvað þeir menn séu yfir höfuð að gera í Þýskalandi sem kjósi að ganga undir merkjum hermdarverkasamtaka Palestínuaraba. Miðjumoðsflokkarnir séu ófærir um að taka á vandanum en Poschardt segir ekki annað í stöðunni en vísa því fólki úr landi í stórum stíl sem kalli eftir stofnun kalífadæmis sem sé ekkert annað fasískt trúarríki.
Að mati Poschardts mun neyðaróp vinstrikonunnar ekki koma til með að hafa nein afgerandi áhrif. Talsmenn hinna flokkanna (kristilegra, jafnaðarmanna, græningja og frjálslyndra) muni halda áfram að hneykslast á kosningasigri AfD í Saxlandi-Anhalt. En í reynd beri sömu flokkar ábyrgð á þeirri stjórnmálaómenningu sem nú ríkir. Ég sá á X-inu að Morten Feidel, aðstoðarritstjóri útgáfu Neue Zürcher Zeitung í Þýskalandi, gerði forsíðu Spiegel að umtalsefni þar sem rætt var um „ótta Elif Eralp“. Þegar AfD hafði unnið stórsigur í kosningunum í Saxlandi-Anhalt birti tímaritið mynd á forsíðunni af Ulrich Siegmund, oddvita flokksins í sambandslandinu, þar sem fyrirsögnin var „Hættulegasti maður Þýskalands“. Feidel velti því upp hver viðbrögðin hefðu verið hefði fréttin verið sú að Siegmund óttaðist um líf sitt. Því hefði vafalaust verið fagnað af mörgum. Í reynd sé tekið á Vinstrinu með silkihönskum en AfD mætt með hnúajárnum.
Að banna skoðanir
Bismarck kanslari komst eitt sinn svo að orði að fyrsta kynslóðin skapaði auð sem börn hennar eyddu. Þriðji ættliðurinn legði fyrir sig listasögu en sá fjórði stefndi lóðbeint til glötunar. Áðurnefndur Ulf Poschardt leggur út af þessari frægu tilvitnun í bók sinni Shitbürgertum sem út kom í fyrra og segir Sambandslýðveldið þýska vera á stigi umræddrar fjórðu kynslóðar. Ekki verði komist úr þessu öngstræti því höft séu á opinberri umræðu — menn umsvifalaust fordæmdir sem óalandi og óferjandi tali þeir tæpitungulaust og jafnvel látnir sæta eftirliti öryggismálayfirvalda tjái þér umdeildar skoðanir.
Við sjáum það líka í opinberri umræðu hér á landi að verulega skortir upp á hreinskiptar umræður um ýmis grundvallarmál. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, hefur undanfarna daga varað við alvarlegum afleiðingum óhefts straums innflyjenda til landsins og gert þar Múhameðstrúarmenn sérstaklega að umtalsefni. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingar og sveitungi Elliða, fordæmdi ummælin harkalega í skjóli þinghelgi og vísaði til ákvæða hegningarlaga sem banna tiltekna tjáningu.
Þau orð Ásu Berglindar að ljá máls á því að banna tjáningu pólitísks andstæðings voru hryggileg. Ef skoðun er meinað að njóta sín bitnar það á samfélaginu öllu. Sú skoðun sem þagað var um gæti hafa reynst rétt og þar með misstu menn færis á að snúa frá villu síns vegar. Og ef skoðunin reyndist röng þá misstu menn næstum jafnmikils því þegar sönnu og ósönnu lýstur saman verður skynjunun skýrari og okkur birtist fjörmeiri mynd af sannleikanum líkt og John Stuart Mill bendir á í Frelsinu.
Hreinskiptar rökræður eru óhjákvæmilegar til að leiða í ljós hvernig túlka beri reynsluna, því staðreyndir og rök þoka í burtu röngum skoðunum og rangri breytni. Staðreyndir, jafnt sem rök, þurfa því að eiga greiða leið að mannshuganum. Þetta eru engin ný sannindi. Meira að segja í hinni afar íhaldssömu Rómarkirkju var það til skamms tíma svo að enginn var tekinn í tölu heilagra manna nema hlýtt hefði verið á álit djöfulsins sem svo var nefnt. Til þess var fenginn sérstakur málflytjandi sem nefndur var advocatus Diaboli sem myndi útleggja sem formælandi djöfulsins. Sá sem talaði máli dýrlingsefnisins var aftur á móti nefndur advocatus Dei eða talsmaður Drottins. Stjórnmálamaður nokkur sem fordæmdi biskup Rómarkirkjunnar nýverið mætti nú athuga þetta. Ekkert heyrðist frá sama manni þegar islamskur ofsatrúarmaður jós úr skálum reiði sinnar hér á dögunum enda sjálfskipuðum riddurum réttlætisins sjaldnast gefið að vera sjálfum sér samkvæmir.
Forsenda friðar og sáttar
Hreinskiptar samræður um grundvallarrök eru líklega eitthvert skýrasta einkenni vestrænnar siðmenningar — svo sem sjá má þegar leyst er úr máli fyrir dómi. Það yrði ekki gott réttarfar ef menn skirrðust við að leggja fram tilteknar röksemdir fyrir rétti af því að einhverjar kreddur byðu þeim að gera það ekki — líkt og við verðum vitni að í þjóðfélagsumræðunni þegar alþingismaður hótar sveitarstjóra vegna orða hans hans með tilvísun til hegningarlaga.
Við skyldum nefnilega hafa hugfast að þegi ágreiningsmenn um skoðanir sínar getur aldrei komið til sanngjarnar og gagngerrar umræðu um þær. Tálmun umræðu getur beinlínis leitt til þess að mannsandanum fari aftur. Rétthugsun og rétttrúnaður bælir alla æðri hugsun og er ekkert annað andleg kúgun. Andstæðar skoðanir verða að njóta fulls jafnréttis. Önnur vogarskálin rís en hin hnígur allt eftir atorku og snilli talsmanna stefnanna. Hreinskiptar umræður um grundvallarrök eru beinlínis forsenda sáttar og þar með friðar í samfélaginu.