Segja má með nokkrum rétti að Guðbrandur Þorláksson biskup hafi bjargað íslenskunni með því að prenta bækur á íslensku, biblíuna og önnur trúarrit. Það skipti máli á hvaða tungumáli kirkjan var í hverju landi og hér varð kirkjan íslensk, ekki síst fyrir tilstilli Guðbrands. Við Íslendingar vorum almennt farnir að skrifa bækur á íslensku fyrr en tíðkaðist annars staðar í Evrópu, ekki síst hvað laust mál varðar. Halldór Guðmundsson er höfundur Líf í bókum, bókmenntasögu Íslands, sem kom út á dögunum. Halldór er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
En það er dálítið merkilegt, Íslendingasögurnar, við erum að tala svona um 12. öld, 12.-13. öld og við Íslendingar höfðum mikla sérstöðu meðal þjóða vegna þess að við byrjuðum þá að skrifa á okkar tungu. Úti í Evrópu þá var ekkert verið að skrifa á þjóðtungu. Það var skrifað á latínu.
„Latínan var dóminerandi mál hjá menntuðu fólki og til dæmis stóru króníkurnar sem Saxó hinn danski skrifaði, það var á latínu um árið 1200. Við förum í þetta fullt á 13. öld. Það er að vísu ein tegund af sögum, svokölluð söguljóð sem voru skrifuð á móðurmáli, til dæmis á Spáni, Frakklandi, Englandi en þau voru bæði ekki í lausu máli eins og okkar sögur og fjölluðu um Artúr konung, Karlamagnús og kónga og prinsessur og aðalsmenn. Meðan við erum að skrifa um það sem hann Grunnavíkur-Jón kallaði: Bændur flugust á.
Þó að sannarlega séu bændahöfðingjar kannski okkar aðall í þeirri merkingu sem er þannig að þá er þetta tiltölulega einstakt í evrópskum bókmenntum frá síðmiðöldum.“
Já, já, það er ekki fyrr en kannski tveimur öldum síðar, tveimur til þremur öldum síðar sem það fara að koma bókmenntir á þjóðtungu að einhverju marki í Evrópu, Bretlandi til dæmis.
„Ja, það var hefð sem að var skrifuð á svokallaðri anglónormönnsku og fleiri tungumálum frá þessum tíma. Þá voru skrifuð þessi söguljóð. En svo skrifa menn líka til dæmis riddarasögur. Þær eru skrifaðar á þjóðtungu og stundum er talað eins og fyrsta skáldsagan, það sé Don Kíkóti eftir Cervantes af því þar snýr hann út úr riddarasögunum. Og þegar maður skoðar Íslendingasögurnar þá fara þeir svo oft nærri því sem við tengjum skáldsögu í seinni tíma. Fara ansi nærri því. Bæði er fólk þarna undir eigin nöfnum og svo er írónía í þeim. Gera stundum sjálfir grín að hetjuhugsjóninni. Maður finnur þetta í Grettis sögu og svo í minni sögum, Fóstbræðra sögu og víðar. Þannig að það liggur við að við séum komin á landamæri þess sem kallað er borgaraleg skáldsaga á sínum tíma en svo hættir þetta. Menn hætta að skrifa svona sögur í margar, margar aldir. Það sem er gert er að skrifa riddarasögur. Þær eru skrifaðar bara alveg fram til 1900.
Svo eru menn að semja rímur upp úr öllum mögulegum söguöflunum og alveg eins upp úr söguöflun íslenskra fornsagna. En þessar stóru epísku frásagnir frá 13. til 14. öld, það bara rofnar sú hefð og aðrar komu í staðinn og elsta samfellda hefðin sem við eigum er rímnahefðin. Við rímuðum við allt.“
Ég tók eftir því að í yfirlitinu aftast með titla og nafnaskrá, þar er eitt nafn sem er með ansi mörg blaðsíðutöl fyrir aftan og það er Guðbrandur Þorláksson.
„Já, hann er náttúrulega einn fyrsti bókaútgefandinn á Íslandi og það er reyndar mjög gaman að sjá það í formála minnir mig að Vísnabók eða einhverri af þessum bókum sem hann gaf út, þar er hann líka fyrsti bókaútgefandinn sem kvartar. Þannig að þetta hefur fylgt stétt okkar allar þessar aldir vegna þess að hann segir: Sko, hér er ég að prenta þessar líka lærdómsríku og mikilvægu bækur og svo liggja þær bara í kjallara og uppi á lofti og hreyfast ekki. En það sem er merkilegt við hann er auðvitað útgáfustarfið sjálft því þarna eru komnar prentsmiðjur og það er byrjað að prenta og þó að hann vilji fyrst og fremst prenta guðsorð og eitthvað sem hefur uppeldisgildi þá prentar hann svo mikið á íslensku. Það er stóra málið í þessu og biblíuþýðingin sem hann á stóran hlut í og Guðbrandsbiblía sem hann lætur prenta í 500 eintökum, ef ég man rétt, alveg stórkostlegt …“
Risaupplag.
„Já, já, risaupplag á þeim tíma og rándýrt og reyndar svolítið mikið af villum í því en það er af því á löngum tímum þá bæði þýðir hann og les yfir og prófarkales sjálfur.“
Ja, maður þekkir það að maður verður alltaf að fá utanaðkomandi til að fara yfir textann.
„Það hefur örugglega stundum verið erfitt hjá honum en ef maður hugsar um þetta sögulega samhengi og bókmenntasögulega samhengi. Bókmenntasagan og tungumálið og við erum sko vestnorrænt tungumál sem kallað er, það er bara við, norska og færeyska. Norskan og færeyskan eignast engar biblíuþýðingar. Kirkjan þar er á dönsku. Ef þú spyrð Norðmenn um biblíuþýðingar frá 16. og 17. öld þegar verið var að gera þetta alls staðar í Evrópu þá eru það þýðingar á dönsku.“
Þetta er dálítið merkilegt af því að norskan er eiginlega danska með aðeins öðrum framburði.
„Já, en þessi gamla norskan sem var í málsamfélagi með okkur og var náskyld íslensku. Þessi tengsl þau fara að rofna um 1400. Svo gerist það eftir Kalmarbandalag og ég tala nú ekki um siðaskiptin að administrasjónin, stjórnsýslan í Noregi og kirkjan verður dönsk. Já. Þannig að það er hægt að segja með vissum rétti að Guðbrandur Þorláksson hafi bjargað íslenskunni.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.